Óskandi að þingmenn settu traust á stjórnmálum ofar eigin hag

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar for­dæmir ummæli Klaust­urs-þing­mann­anna og segir það ósk­andi að þing­menn settu virð­ingu Alþingis og traust á stjórn­málum ofar eigin hag og segðu af sér þing­mennsku.

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.
Inga Björk Mar­grétar Bjarna­dóttir, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar.

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar telur að vegna fram­göngu sinnar og við­bragða séu þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins rúnir trausti.

„Óskandi væri að þeir settu virð­ingu Alþingis og traust á stjórn­málum í land­inu ofar eigin hag, og segðu af sér þing­mennsku,“ segir í ályktun frá fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar.

Fram­kvæmda­stjórnin for­dæmir ummæli þing­manna sem féllu á veit­inga­staðnum Klaustri þriðju­dags­kvöldið 20. nóv­em­ber. Í álykt­un­inni segir að hegðun af þessu tagi sé engum sæm­andi og allra síst kjörnum full­trúum á Alþingi Íslend­inga.

Afsökunarbeiðnir þingmanna einkennst af undanbrögðum frekar en iðrun

Fram­kvæmda­stjórnin segir það vand­séð hvernig hægt sé að ætl­ast til þess að sam­starfs­fólk þing­manna á Alþingi vinni með þeim á ný. „Sárt er að verða vitni að sam­tali sem opin­berar slíka mann­fyr­ir­litn­ingu. Vandséð er hvernig hægt sé að ætl­ast til þess að sam­starfs­fólk þing­mann­anna á Alþingi vinni með þeim á ný — ekki síst ef haft er í huga að afsök­un­ar­beiðnir við­kom­andi þing­manna hafa að mestu ein­kennst af und­an­brögðum frekar en iðrun,“ segir í álykt­un­inni.

Bakslag í baráttu kvenna, fatlaðs fólks og hinsegin fólks

Í álykt­unni segir að upp­tök­urnar séu bakslag í jafn­rétt­is­bar­áttu kynj­anna, í bar­áttu kvenna, fatl­aðs fólks og hinsegin fólks. „Það er grát­legt að jað­ar­settir hópar þurfi að sitja undir slíkum árásum enn þann dag, sér í lagi af hálfu þeirra sem setja lög í land­inu um rétt­inda þeirra og kjör.“

Að lokum segir í álykt­un­inni að Sam­fylk­ingin sé flokkur jafn­að­ar­manna og málsvari mann­rétt­inda, jafn­réttis og kven­frelsis, og líti því á það sem hlut­verk sitt að styðja við og vald­efla þá hópa sem jað­ar­settir eru í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið undanfarið ár