Kristín hættir sem aðalritstjóri

Kristín Þor­steins­dóttir útgef­andi og aðal­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins stígur til hliðar. Verður áfram útgef­andi og sér um rekstur blaðs­ins. Fjórir rit­stjórar taka við blað­inu, vefnum og Mark­aðnum.

Kristín Þor­steins­dóttir sem verið hefur aðal­rit­stjóri og útgef­andi Frétta­blaðs­ins síð­ast­liðin fjögur ár hættir sem rit­stjóri og verður aðeins útgef­andi auk þess sem hún mun „ein­beita sér að rekstri frétta­stof­unnar“.

Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðs­ins þar sem segir frá nýju skipu­riti Torgs ehf., útgáfu­fé­lagi Frétta­blaðs­ins sem er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur for­stjóra félags­ins.

Rit­stjórar Frétta­blaðs­ins verða: Kjartan Hreinn Njálsson og Ólöf Skafta­dóttir auk þess sem Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir verður rit­stjóri vef­út­gáfu Frétta­blaðs­ins. Hörður Ægisson mun áfram rit­stýra Mark­aðnum, við­skipta­blaði Frétta­blaðs­ins.

Þá hefur verið stofnuð ný deild, Stafræn verk­efni, IT og mark­aðs­mál og mun Jóhanna Helga Við­ars­dóttir stýra henni þvert á svið. Sigrún L. Sig­ur­jóns­dóttir mun áfram stýra fjár­mála­sviði og Elmar Hall­gríms Hall­gríms­son sölu, grein­ingum og dreif­ingu.

Í frétt­inni segir að mark­mið nýs skipu­lags sé að „efla alla þætti starfs­sem­innar með sér­staka áherslu á staf­rænan hluta og um leið skil­greina verk­svið betur með það að mark­miði að bjóða neyt­endum og aug­lýsendum betri fjöl­miðla“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár