Skúli Mogensen segir Stefán Einar ítrekað hafa farið með „dylgjur og ósannindi“

Stofn­andi og for­stjóri WOW air fer hörðum orðum um höf­und nýrrar bókar um sig og flug­fé­lagið. Hann seg­ist sann­færður um að það hefði verið hægt að bjarga flug­fé­lag­inu frá gjald­þroti.

„Ég ætl­aði ekki að tjá mig um skrif Stefáns Einar enda ekki svara vert. En því miður get ég ekki lengur orða bund­ist enda hefur Stefán núna ítrekað farið með dylgjur og ósann­indi um mál­efni WOW air.“

Svona hefst stöðu­upp­færsla Skúla Mogensen, stofn­anda, eig­anda og for­stjóra WOW air, sem hann setti á Facebook í dag. Tilefnið var við­tal við Stefán Einar Stef­áns­son, við­skipta­rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og höf­und nýrrar bókar um Skúla og WOW air sem kom nýverið út, í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun.

[adspot]Í stöðu­upp­færsl­unni telur Skúli upp nokkur dæmi um það sem hann segir dylgjur eða ósann­indi í mál­flutn­ingi Stefáns Einars. „Stefán Einar hefur áður borið fram alvar­legar ásak­anir og rang­færslur í garð WOW air sem áttu ekki við rök að styðj­ast. Það er ástæðan fyrir því að ég hafði engan áhuga á að ræða við hann um félagið. Alvar­leg­ast var þegar hann full­yrti að WOW air skuld­aði Isavia 2 millj­arða í stórri for­síðu­grein sem Morg­un­blaðið birti 15. sept­em­ber 2018 þegar við vorum á loka metr­unum við að klára umrætt skulda­bréfa­út­boð. Núna liggja fyrir gögn sem sýna svo ekki verður um villst að skuld okkar við Isavia var nær einum millj­arði á þessum tíma en ekki tveim millj­örðum eins og Stefán Einar full­yrti. Þessi frétt og sú umræða sem skap­að­ist í fram­hald­inu hafði mjög nei­kvæð áhrfi á skulda­bréfa­út­boðið og starf­semi WOW air.“

Tölusettar rangfærslur

Alls telur Skúli til sex atriðin sem hann segir Stefán Einar fara rangt með í bók sinni.

Í fyrsta lagi segir hann það „alfarið rangt að Ben Baldanza hafi komið í stjórn WOW air fyrir til­stuðlan eða þrýst­ing frá Airbus eða ein­hverja aðra hags­muna­að­ila. Stað­reyndin er sú að ég hringdi í Ben skömmu eftir að hann hætti hjá Spirit Airlines og hann kom til Íslands nokkrum dögum seinna og við ákváðum að bjóða honum í stjórn WOW air sem hann þáði. Eina aðkoma Airbus var að ég hringdi í vin minn hjá Airbus sem gaf mér síma­núm­erið hjá Ben svo að ég gæti haft sam­band við hann. Að öðru leyti hafði Airbus ekk­ert með aðkomu Ben að félag­inu að gera.“

Í öðru lagi sé það alfarið rangt að Airbus og leigusalar hafi haft miklar áhyggjur af rekstri WOW air um það leyti sem Baldanza kom í stjórn félags­ins í byrjun árs 2016. „Á þessum tíma var afkoma og rekstur WOW air mjög góður og keppt­ust flug­véla­fram­leið­endur og leigusalar að selja/og eða leigja WOW air fleiri flug­vélar. WOW air skil­aði góðum hagn­aði bæði 2015 og 2016 þannig að þessar full­yrð­ingar stand­ast engan veg­inn.“

Í þriðja lagi sé það einnig alfarið rangt að Skúli og stjórn WOW air hefðu vilj­andi hundsað aðvör­un­ar­orð ann­ara í flug­heim­inum. „Það er mjög auð­velt að vera vitur eftir á og eins og við höfum útskýrt þá liggur núna fyrir að við gerðum mikil mis­tök að færa okkur frá lággjalda­stefn­unni og að inn­leiða breið­þot­urnar inn í leið­ar­kerfi okkar. Þetta reynd­ist dýr­keypt mis­tök en aug­ljós­lega töldum við þær réttar þegar þær voru teknar. Allar stærri ákvarð­anir voru ræddar ítrekað á stjórn­ar­fundum félags­ins þar með talið flota­mál og leið­ar­kerfi félags­ins. Ben tók virkan þátt í þeim umræðum og var oft með gott inn­legg í umræð­una en hann skil­aði aldrei sér­á­liti um nein mál­efni félags­ins né í neinum ákvörð­unum sem teknar voru á stjórn­ar­fundum WOW air.“

[adspot]Í fjórða lagi sé það alfarið rangt að helm­ing­ur­inn af sex millj­arða króna skulda­bréfa­út­boði WOW air hafi verið skulda­leið­rétt­ing eða skuld­breyt­ing. „Þetta er rangt og stenst enga skoðun enda hefur ekk­ert komið fram sem styður þessa full­yrð­ingu Stefán Einars.“

Óformlegur fundur

Í fimmta lagi segir Skúli að sam­tal WOW air-manna við Icelandair í byrjun sept­em­ber í fyrra um mögu­lega sam­ein­ingu félag­anna, sem greint er frá í bók Stefáns Einars, hafi verið á óform­legum nótum. „Ég hitti fyrst Ómar Bene­dikts­son fyrir til­viljun á flug­ráð­stefnu í London og við spjöll­uðum saman. Það var ákveðið að við myndum fá okkur kaffi þegar heim var komið með Boga Níls for­stjóra Icelandair. Ég og Ragn­hildur Geirs­dóttir hittum svo Ómar og Boga þar sem við vorum fyrst og fremst að ræða hvort að það væri þess virði að fara í við­ræður eða ekki og ef slíkar við­ræður ættu að fara fram með hvaða hætti það gæti verið. Það var ákveðið að fara ekki í slíkar við­ræður og því fóru aldrei form­legar við­ræður í gang og því bar hvorki Icelandair né okkur skylt að upp­lýsa mark­að­inn um það á þeim tíma enda engin ástæða til.“

[links]Í sjötta lagi fjallar Skúli um aðkomu Sam­göngu­stofu og ann­arra opin­berra aðila að WOW air á síð­ustu metr­unum í líf­tíma félags­ins. Hann segir að það virð­ist hafa „gleymst“ í umræð­unni að WOW air hafi verið með und­ir­rit­aðan skil­yrtan samn­ing við Indigo Partners um allt að níu millj­arða króna fjár­fest­ingu á þessum tíma sem hefði tryggt fram­tíð WOW air um ókomna tíð. „Við unnum mjög náið með Sam­göngu­stofu og öðrum eft­ir­lits­að­ilum við að upp­fylla skil­yrði samn­ings­ins þar með talið að ná sam­komu­lagi við alla skulda­bréfa­eig­endur okkar, sem við gerðum. Ná að end­ur­semja og skila breið­þot­unum, sem við gerðum. Við unnum því í góðri trú um að við værum að upp­fylla öll skil­yrði samn­ings­ins og myndum klára end­an­legan samn­ing eins og til stóð 28. febr­úar 2019. Allt fram að þeim tíma vorum við öll sann­færð um að WOW air myndi lifa áfram. Því miður varð það ekki raunin.“

Sagan verður sögð einn daginn

Skúli segir í lok færsl­unnar að hann skorist ekki undan ábyrgð sinni á falli WOW air og að hann óski þess sann­ar­lega að hafa gert ýmis­legt öðru­vísi. Ég er sann­færður að það hefði verið hægt að bjarga WOW air og þeim miklu verð­mætum sem þar lágu ekki síst fyrir þjóð­ar­búið og íslenska neyt­endur. Það líður vart sá klukku­tími að ég hugsi ekki um WOW air, þann frá­bæra hóp starfs­fólks sem gerði WOW að veru­leika, far­þega okkar og allt sem við vorum búin að byggja upp í sam­ein­ingu. Sú saga verður einn dag­inn sögð.“

WOW air fór í þrot 28. mars síð­ast­lið­inn. Áhrifin á íslensks efna­hags­líf hafa verið mikil en ásamt loðnu­bresti er gjald­þrot félags­ins helsta ástæða þess að nú er búist við sam­drætti í íslenskum þjóð­ar­bú­skap í ár í stað áfram­hald­andi hag­vaxtar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár