Miðflokkurinn vill stöðva fjármögnun styrkja til fjölmiðla

Mið­flokk­ur­inn lagði til að þeir fjár­munir sem eiga að renna í styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla á næsta ári verði teknir af fjár­lögum. Flokk­ur­inn ætlar að leggja fram eigin hug­mynd um styrki „með annarri aðferð­ar­fræði“.

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Í minni­hluta­á­liti Birgis Þór­ar­ins­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, vegna fjár­laga leggur hann til að þær 400 millj­ónir króna sem ætl­aðar eru til styrktar einka­reknum fjöl­miðlum á næsta ári verði felldar út úr frum­varp­inu.

Þar segir hann að Mið­flokk­ur­inn sé með í smíðum til­lögur sem feli í sér styrk til einka­rek­inna fjöl­miðla en með annarri aðferða­fræði en til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar gera ráð fyrir. Til­lög­urnar verði kynntar innan skamms.“

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum var gert ráð fyrir að 400 millj­ónir króna fari í stuðn­ing við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla á næsta ári. Í áliti meiri­hluta fjár­laga­nefndar, sem sam­anstendur af þing­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar, er ekki lagt til að beinar breyt­ingar verði gerðar á þess­ari ráð­stöfun.

[adspot]Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lagði frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna miðla fram í vor og það hefur verið afgreitt úr rík­is­stjórn. Hún á þó enn eftir að mæla fyrir því á Alþingi en heim­ildir Kjarnans herma að um það hafi náðst sam­staða.

And­staða hafði verið við það innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks en sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar stendur vilji hennar til að fjár­magna áform Lilju á næsta ári. Af þeim 400 millj­ónum króna sem eyrna­merktar eru þessum til­gangi eiga 50 millj­ónir króna að renna til text­unar og tal­setn­ing­ar.

Til við­bótar við 350 milljón króna greiðslu vegna beinna styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla á að styðja við slíka með stuðn­ingi sem nemi allt að 5,15 pró­­­­sent af launum starfs­­­­fólks á rit­­­­stjórn sem fellur undir lægra skatt­­­­þrep tekju­skatts­­­­stofna. Umfang þeirrar aðgerðar er metið 170 millj­ónir króna. Því eiga áformin í heild að kosta um 520 millj­ónir króna á ári.

Fjórð­ungur kostn­aðar upp að þaki

Mark­miðið með aðgerð­unum er að efla hlut­verk rík­­­­is­ins, þegar kemur að fjöl­miðlaum­hverf­inu, og styrkja rekstr­­­­ar­um­hverf­ið, en í frum­varp­inu felst meðal ann­­­­ars að stíga fyrstu skrefin í átt að því sem þekkst hefur á Norð­­­­ur­lönd­unum um ára­bil. Í frum­varp­inu er lagt til að stuðn­­­­ingur rík­­­­is­ins við einka­rekna fjöl­miðla verði tví­­­­þætt­­­­ur.

Sá stuðn­ingur sem nú er gert ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu felur í sér að veita stjórn­­­völdum heim­ild til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla í formi end­­­ur­greiðslu á allt að 25 pró­­­sent af til­­­­­teknum hluta ­rit­­­stjórn­­­­­ar­­­kostn­að einka­rek­inna fjöl­miðla. Skil­yrði fyrir styrknum verða að við­tak­endur upp­­­­­fylli ýmis skil­yrði fjöl­miðla­laga, efni þeirra sé fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing og bygg­ist á frétt­um, frétta­tengdu efni og sam­­­fé­lags­um­ræðu í víðum skiln­ing­i.

Lagt er til að lögin taki gildi 1. jan­úar 2020 og end­­­ur­greiðslur mið­ist við síð­­­ast­liðið ár.Gert er ráð fyrir end­­­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður verði bund­inn við beinan launa­­­kostnað blaða- og frétta­­­manna, rit­­­stjóra og aðstoð­­­ar­­­rit­­­stjóra, mynda­­­töku­­­manna, ljós­­­mynd­­­ara og próf­­­arka­­­les­­­ara auk verk­taka­greiðslna fyrir sömu störf.

Hlut­­fall end­­­ur­greiðslu verði að hámarki vera 25 pró­­­sent af kostn­aði við fram­an­­­greint, þó ekki hærri en 50 millj­­­ón­ir til hvers umsækj­anda vegna síð­­­ast­lið­ins árs. Jafn­­­framt kom fram í frum­varps­drög­unum að heim­ild sé til að veita stað­bundnum fjöl­miðlum við­­­bótar end­­­ur­greiðslu.

Fram­lög til RÚV aukast

Útvarps­gjaldið hækkar um 2,5 pró­sent milli ára sam­kvæmt fjár­lög­unum og áætl­aðar tekjur Rík­is­út­varps­ins (RÚV) vegna þeirra aukast um 180 millj­ónir króna. Áætlað er að útvarps­gjaldið verði 4.770 millj­ónir króna á næsta ári.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sagði í ágúst að í und­ir­bún­ingi væri að RÚV hverfi af aug­lýs­inga­mark­aði. Rík­is­miðl­inum verði hins vegar bætt upp það tekju­tap en hann hefur haft yfir tvo millj­arða króna í slíkar tekjur á und­an­förnum árum.

Þjón­ust­u­­samn­ingur RÚV við mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráðu­­neyt­ið, sem skil­­greinir hlut­verk, skyldur og umfang RÚV, rennur út í lok þessa árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár