Milljarður í hlutafé, miklar afskriftir og stanslaust tap í boði útgerðarmanna

Í árs­reikn­ingi Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla er til­gangi félags­ins lýst. Þar stendur að hann sé „að styðja frjálst við­skipta­líf og efla heil­brigðan hugs­un­ar­hátt í öllum þjóð­fé­lags­málum, og yfir höfuð beita sér fyrir hverju því, er miðar til sannra fram­fara í hví­vetna.“

Hvað sé heil­brigður hugs­un­ar­háttur og sannar fram­farir er afar hug­lægt mat. En ljóst er að eig­endur Árvakurs hljóta að telja félagið vera að ná til­gangi sínum. Eig­enda­hóp­ur­inn hefur nefni­lega sett yfir millj­arð króna af sínum eigin pen­ingum í þennan elsta starf­andi fjöl­miðli lands­ins, sem stofn­aður var 1913.

Samhliða þess­ari miklu fjár­fest­ingu eig­enda­hóps­ins, en nán­ast allir í honum eru með sjáv­ar­út­veg sem aðal­starf, hefur Árvakur fengið gríð­ar­lega mikið af skuldum felldar niður hjá við­skipta­banka sínum. Þegar nýju eig­end­urnir tóku við árið 2009 voru skuldir félags­ins færðar niður um 3,5 millj­arða króna. Það dugði ekki til og því voru skuld­irnar færðar niður um einn millj­arð króna í árs­lok 2011. Árvakur er því eitt fárra fyr­ir­tækja á Íslandi sem hefur farið tvisvar í gegnum skulda­nið­ur­fell­ing­ar­þvotta­vél­ina frá banka­hruni.

Þessar skulda­nið­ur­fell­ingar hafa hins vegar ekki leitt til þess að rekstur félags­ins hafi náð við­snún­ingi. Sam­an­lagt tap Árvakurs frá 2009 og út árið 2014 er tæp­lega 1,3 millj­arðar króna. Á þessu sex ára tíma­bili hefur hið 102 ára félag ein­ungis einu sinni skilað hagn­aði. Hann var upp á sex millj­ónir króna árið 2013. Það þykir ekki mikið fyrir félag sem er með árlega veltu yfir þrjá millj­arða króna.

Þegar Árvakur ætlaði að sameinast 365


Lengst af var Árvakur í eigu afkom­enda Hall­gríms Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu Huldu Val­týs­dóttur. Árið 2005 varð breyt­ing þar á þegar Björgólfur Guð­munds­son og tengdir aðilar hófu að kaupa hluti í Árvakri og komust loks í ráð­andi stöðu innan þess. Til við­bótar við Morg­un­blaðið átti Árvakur á vef­mið­il­inn mbl.is, sem hafði verið stofn­settur 1998 fyrstur frétta­miðla og hefur nær sleitu­laust verið mest sótta vef­síða lands­ins síðan þá, og prent­smiðju.

Við banka­hrunið hurfu pen­ingar Björg­ólfs og hann fór skömmu síðar í stærsta per­sónu­lega gjald­þrot sem átt hefur sér stað á Íslandi. Þegar skiptum á búi hans lauk kom í ljós að Björgólfur hafði átt 35 millj­ónir króna upp í 85 millj­arða króna kröfur.

[caption id="attachment_13783" align="alignnone" width="624"] Ef af sam­runi Árvakurs og 365 hefði orðið að veru­leika hefði ein við­skipta­blokk, sem stýrt var af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, ráðið yfir nán­ast öllum frjálsum fjöl­miðlum á Íslandi.[/caption]

Hann hafði því enga getu lengur til að styðja við Árvakur eftir banka­hrunið og rekst­ur­inn varð, væg­ast sagt, þungur. Frí­blaðið 24 stundir, sem Árvakur hafði keypt til að keppa við Frétta­blaðið á frí­blaða­mark­aði, var lagt niður fjórum dögum eftir að Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland og sam­hliða var til­kynnt um þá fyr­ir­ætlun eig­enda Árvakurs og 365 að renna Frétta­blað­inu inn í Árvakur gegn því að 365 myndi eign­ast 36,5 pró­senta eign­ar­hlut.

Þær fréttir vöktu mikla athygli, enda hefðu þær þýtt að einu starf­andi dag­blöð lands­ins legð­ust saman í sæng. Sam­ein­ingin hefði einnig þýtt að 365 myndi eiga þorra þeirra fjöl­miðla á Íslandi sem hefðu ein­hverjar tekjur af aug­lýs­inga­sölu á þeim tíma.

Sam­run­inn var rök­studdur með þeim aðstæðum sem ríktu í sam­fé­lag­inu. Samhliða efna­hags­á­falli hefði aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn hrunið og tug­pró­senta geng­is­fall íslensku krón­unnar gert inn­kaup á pappír í blöðin gríð­ar­lega þung. Auk þess var þeim rökum beitt að Árvakur myndi ekki lifa af nema sam­run­inn yrði sam­þykktur. Fjár­hags­erf­ið­leikar félags­ins væru ein­fald­lega það miklir að þetta væri eina leiðin til þess. Ef af sam­run­anum hefði ein við­skipta­blokk, sem stýrt var af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, ráðið yfir nán­ast öllum frjálsum fjöl­miðlum á Íslandi.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið stóð hins vegar fast í lapp­irnar í þessu máli og hafn­aði sam­run­anum. Í ákvörðun eft­ir­lits­ins, sem birt var í byrjun febr­úar 2009, sagði að það væri „mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að sam­runi Árvakurs hf., Frétta­blaðs­ins ehf. og Póst­húss­ins ehf. muni skapa alvar­leg sam­keppn­is­leg vanda­mál og hindra þar með virka sam­keppni á öllum mörk­uðum máls­ins þar sem áhrifa gætir [...] Sökum þess er það mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að ógilda beri sam­run­ann“.

Gríðarlegir rekstrarerfiðleikar


Raunar hafði verið ljóst um nokk­urra mán­aða skeið að Sam­keppn­is­eft­ir­litið ætl­aði ekki að sam­þykkja sam­runa 365 og Árvakurs og aðrar leiðir til að við­halda rekstri félags­ins voru því skoð­aðar.

Ekki bar að van­meta þann rekstr­ar­vanda sem Árvakur glímdi við á þessum tíma. Útgáfu­fé­lagið var rekið með 570 millj­óna króna halla árið 2008. Áætlanir sem unnið var eftir höfðu gert ráð fyrir 340 millj­óna króna hagn­aði og því var raun­veru­leik­inn 910 millj­ónum krónum verri en upp­haf­legt plan. Auk þess skuld­aði félagið 4,4 millj­arða króna.

Fyrir utan þær miklu skuldir sem hvíldu á félag­inu, og voru aðal­lega við Glitni og síðar Íslands­banka, var lausa­fjár­staða þess þröng. Raunar var hún mun þrengri en upp­lýst var opin­ber­lega um. Sjálft flagg­skip útgáf­unnar, Morg­un­blaðið, átti nefni­lega í miklum rekstr­ar­legum erf­ið­leikum. Áskrif­endum hafði fækkað tölu­vert með til­komu Frétta­blaðs­ins og staða þess á aug­lýs­inga­mark­aði veikst gríð­ar­lega. Samhliða hafði ekki verið ráð­ist í nægi­lega miklar hag­ræð­ing­ar­að­gerðir innan blaðs­ins til að mæta þessum nýja veru­leika.

Átti ekki fyrir launum starfsmanna


Í des­em­ber 2008 hafði hlutafé fyrrum eig­enda verið þurrkað út og Árvakur var algjör­lega upp á náð og mis­kunn Íslands­banka kom­inn, en hann hafði verið reistur á grunni Glitnis. Í upp­hafi þess mán­aðar átti að liggja fyrir fram­tíð­ar­lausn á fjár­málum félags­ins.

[caption id="attachment_7988" align="alignnone" width="715"] Íslands­banki hélt á örlögum Árvakurs, og þar með Morg­un­blaðs­ins, í höndum sér.[/caption]

Á sama tíma átti Árvakur ekki fyrir launum starfs­manna og papp­írs­birgðir félags­ins, sem voru nauð­syn­legar til að Morg­un­blaðið gæti komið áfram út, voru á þrotum. Innan Íslands­banka virt­ist um tíma ekki vera vilji til að fleyta útgáf­unni yfir þessa brekku. Árvakur, og þar með Morg­un­blaðið, stefndi ein­fald­lega í þrot og yfir­stjórn­endur félags­ins voru farnir að und­ir­búa sig undir að til­kynna um slíkt opin­ber­lega. Engu breytti þótt um 80 manns hefði verið sagt upp störfum hjá félag­inu frá banka­hruni. Skyndi­leg breyt­ing varð hins vegar á afstöðu Íslands­banka sem féllst á að veita félag­inu skamm­tíma­fjár­mögnun og setja það í sölu­ferli til að kanna hvort áhugi væri ein­hvers staðar gagn­vart því að koma að félag­inu gegn því að end­ur­fjár­magna það og styðja við rekst­ur­inn til fram­tíðar.

Hann reynd­ist heldur betur vera til staðar.

Kaupendahópur myndaður


Til að byrja með voru ýmsir nefndir til sög­unnar í fjöl­miðlum sem mögu­legir kaup­endur. Hópur í kringum Árna Hauksson, sem hafði áður átt hlut í 365 og Húsa­smiðj­unni, var einn þeirra. Þá reyndu nokkrir starfs­menn Árvakurs að setja saman til­boð og útgáfu­fé­lagið Birtíngur lýsti einnig yfir áhuga. Strax í des­em­ber var farið að kvis­ast út að Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfélags Vest­manna­eyja, hefði áhuga fyrir hönd eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Gunn­laugur Sævar er afar hand­geng­inn ákveðnum kreðsum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem eflaust er auð­veld­ast að kenna við fyr­ir­ferða­mesta ein­stak­ling­inn innan þeirra, Davíð Oddsson.

Þegar fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka setti loks Árvakur í form­legt sölu­ferli bár­ust þrjú skuld­bin­andi til­boð í félagið. Eitt þeirra var frá almenn­ings­fé­lagi undir for­ystu Vil­hjálms Bjarna­sonar, þá fram­kvæmda­stjóra Samtaka fjár­festa og nú þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Um þús­und manns höfðu skráð sig fyrir hlutafé í félag­inu. Hugmynd hóps­ins var að skrá Árvakur á markað ef til­boði þeirra yrði tekið.

Þá bauð Óskar Magn­ús­son, sem hafði meðal ann­ars verið for­stjóri Hagkaupa, Íslands­síma og Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar, í félagið fyrir hönd hóps sem hann var sagður leiða. Óskar vildi á þessum tíma­punkti ekki upp­lýsa hverjir væru með honum í hópnum. Þriðja til­boðið var síðan frá lit­ríkum áströlskum fjár­festi, Steve Cosser, sem hafði dúkkað upp á Íslandi síðla árs 2008 og viðrað alls kyns hug­myndir um fjár­fest­ingar.

Grundvöllur kaupanna „viðskiptalegs eðlis“


Þann 26. febr­úar 2009 var til­kynnt að hópur Óskars, sem hafði stofnað félagið Þórsmörk ehf. utan um til­boðið, myndi eign­ast Árvakur með yfir­töku skulda og nýju hlutafé. Auk Óskars til­heyrðu Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, Gísli Baldur Garð­ars­son, Gunnar B. Dungal, Pétur H. Pálsson, Þorgeir Bald­urs­son í Odda og útgerð­ar­kóng­ur­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son, kenndur við Samherja, hópnum. Augljós sjáv­ar­út­vegskeimur var af félag­inu og margir eig­endur þess höfðu náin tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Óskar sagði við Morg­un­blaðið að þessu til­efni að mark­miðið með kaup­unum væri „fyrst og fremst það að reka góðan, traustan og trú­verð­ugan fjöl­miðil sem Morg­un­blaðið hefur verið og koma honum upp úr því fari sem hann hefur verið í að und­an­förnu[...]Við teljum að það megi gera úr þessu góðan og arð­væn­legan rekstur. Það er aðal­mark­mið þeirra fjár­festa sem hafa komið til liðs við mig í þessu verk­efni til þessa. Svo eru sjálf­sagt mis­mun­andi ástæður hjá hverjum og einum. Eflaust bera allir ein­hverjar til­finn­ingar til Morg­un­blaðs­ins, hafa áhuga á þessu merka fyr­ir­bæri í íslenskri fjöl­miðla­sögu og vilja af ýmsum ástæðum að það blað verði gefið út áfram. Grund­völl­ur­inn er samt sem áður við­skipta­legs eðlis“.

Kaupverðið ekki gefið upp


Til að eign­ast Árvakur þurfti ekki að borga Íslands­banka neitt. Það þurfti ein­fald­lega að yfir­taka ein­hverjar skuldir og leggja til nýtt hlutafé. Samkvæmt til­kynn­ingu Íslands­banka um málið kom fram að um 200 millj­ónum króna hefði munað á til­boði Þórs­merkur og næst­hæsta til­boð­inu, sem var frá félagi í eigu Steve Cosser og við­skipta­fé­laga hans Everhard Visser. Kaup­verðið var hins vegar ekki gefið upp.

[caption id="attachment_12503" align="align­right" width="225"] Ólafur Steph­en­sen, fyrrum rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.[/caption]

Nýir eig­endur réð­ust ekki í neinar sér­stakar breyt­ingar inn­an­húss fyrst um sinn. Ólafur Steph­en­sen, sem hafði verið ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins sum­arið 2007, hélt stóli sínum og engar stór­vægi­legar upp­sagnir voru boð­aðar. Það breytt­ist allt um miðjan sept­em­ber þegar Ólafi var sagt upp störfum. Ólafur, sem er yfir­lýstur Evr­ópu­sam­bands­sinni, hafði haldið á lofti stefnu í þeim mála­flokki sem var nýjum eig­endum ekki að skapi. Auk þess voru þeir ekki ánægðir með afstöðu sem birt­ist í rit­stjórn­ar­skrifum blaðs­ins í Icesave-mál­inu, sem þá var farið að taka á sig býsna hat­ramma mynd. Í þeim skrifum hafði samn­inga­leið verið gert hátt undir höfði. Ítrekað hafði verið þrýst á Ólaf að skipta um kúrs í þessum málum, en hann hafði ávallt neitað.

Í stað Ólafs voru tveir nýir rit­stjórar ráðnir. Þeir voru Haraldur Johann­es­sen, fyrrum rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins, og Davíð Oddsson, fyrrum for­sæt­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Ný stefna mótuð með nýjum ritstjórum


Með ráðn­ingu þeirra Davíðs og Haraldar voru send skýr skila­boð um breytta stefnu blaðs­ins. Sú stefna hefur alla tíð síðan ein­kennst af nokkrum ráð­andi þáttum: Andstöðu við vinstri­st­jórn­ina sem sat frá 2009 - 2013, Evr­ópu­sam­bandið, Icesave-samn­ing­anna og and­stöðu við breyt­ingar á kvóta­kerf­inu og aukna gjald­töku sem lögð var á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki. Þessi stefna birt­ist sér­stak­lega í rit­stjórn­ar­greinum Morg­un­blaðs­ins.

Líkt og áður sagði var kaup­verðið á Árvakri aldrei gefið upp. Hlutafé Þórs­merkur í félag­inu var hins vegar metið á 300 millj­ónir króna í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2009. Því verður að telj­ast lík­legt að það sé sú upp­hæð sem greidd hafi verið fyrir það. Til við­bótar settu nýir eig­endur Árvakurs strax 150 millj­ónir króna inn í rekst­ur­inn á árinu 2009. Alls greiddu þeir 650 millj­ónir króna í hlutafé inn í Þorsmörk, svo ljóst var að þeir ætl­uðu sér að hafa borð fyrir báru. Í lok árs 2009 voru enn rúm­lega 200 millj­ónir króna til að draga á frá eig­end­unum.

[caption id="attachment_9379" align="alignnone" width="624"] Davíð Oddsson var ráð­inn rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins í sept­em­ber 2009. Hann situr enn á rit­stjóra­stóli blaðs­ins.[/caption]

4,5 milljarða skuldir afskrifaðar og 1,2 milljarðar settir í móðurfélagið


Ekki leið á löngu þar til að það fé var uppurið og hlut­haf­arnir greiddu 540 millj­ónir króna í nýtt hlutafé inn í Árvakur árið 2012. Skömmu áður hafði Árvakur farið í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu, númer tvö frá árinu 2009, á árinu 2011. Þá afskrif­aði við­skipta­banki þess um einn millj­arð króna af skuldum þess og gerði Árvarkur að frekar skuld­léttu félagi. Sam­an­lagt hafði því um 4,5 millj­arðar króna af skuldum félags­ins verið afskrif­aðar.

Kjarninn hefur árs­reikn­ing Þórs­merkur vegna árs­ins 2014 undir höndum. Þar kemur fram að eig­endur félags­ins hafi alls sett 1.221 millj­ónir króna inn í Þórsmörk, en eina eign félags­ins er Árvakur og Lands­prent, félag utan um rekstur prent­smiðju félags­ins. Á síð­asta ári var hlutafé í Árvakri aukið um 80 millj­ónir króna. Ef þeir pen­ingar hefðu ekki verið settir inn í Árvakur hefði tap félags­ins á síð­asta ári verið yfir 120 millj­ónir króna.

Árvakur hefur tapað 1,3 milljörðum á sex árum


Raunar er tap­rekstur eitt­hvað sem eig­endur Árvark­urs eru orðnir býsna vanir. Rekstr­ar­tap félags­ins var 667 millj­ónir króna árið 2009. Árið eftir tap­aði það 330 millj­ónum króna alls og árið 2011 nam tapið 205 millj­ónum króna. Tapið 2012 var 47 millj­ónir króna. Árið 2013 skil­aði Árvakur sex millj­óna króna hagn­aði en í fyrra var rekst­ur­inn aftur kom­inn öfugu megin við núllið. Þá tap­aði félagið 43 millj­ónum króna. Samtals nemur tap Árvakurs á tíma­bil­inu 2009 til loka árs 2014, eða þann tíma sem uppi­staðan í núver­andi eig­enda­hópi hefur átt félagið, númið tæp­lega 1,3 millj­arði króna.

Skuldir Árvakurs hafa lækkað umtals­vert und­an­farin ár, sér­stak­lega vegna skulda­nið­ur­fell­inga við­skipta­banka félags­ins, og eru nú um 1,1 millj­arður króna. Lang­tíma­skuldir þess eru að minnka hratt og eru nú um 536 millj­ónir króna.

Nánast að öllu leyti í eigu sjávarútvegsins


En hverjir eru þessir eig­endur og hvaða hag hafa þeir af því að reka félag í tap­rekstri ár eftir ár?

Í stuttu máli eru helstu eig­end­urnir stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins. Alls félög tengd sjáv­ar­út­vegi 79,37 pró­sent af útgefnu hlutafé í Þórsmörk, eig­anda Árvakurs. Flestir for­svars­menn félag­anna hitt­ast víðar en á hlut­hafa­fundum Árvakurs. Þeir sitja nær allir í stjórn Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem áður hét Lands­sam­band íslenskra útgerð­ar­manna (LÍÚ).

[caption id="attachment_21282" align="alignnone" width="800"] Nánast allur eig­enda­hópur Árvakurs teng­ist sjáv­ar­út­vegi.[/caption]

Óskar Magn­ús­son, sem leiddi kaupin á Árvakri árið 2009 og starf­aði sem útgef­andi félags­ins árum saman, hætti störfum þar í fyrra. Hlutur hans í Þórsmörk, alls 12,37 pró­sent, var keyptur af Legalis sf., félagi sem Sig­ur­björn Magn­ús­son veitir for­stöðu. Sig­ur­björn situr í stjórn Ísfélags Vest­manna­eyja. Þegar sá hlutur er lagður við aðra hluti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í Árvakri er eign­ar­hald aðila tengdum þeim atvinnu­vegi 91,74 pró­sent. Þegar við bæt­ist hlutur sem Halldór Krist­jáns­son, tengda­sonur fyrrum eig­enda Stál­skipa, fer þetta hlut­fall upp í 95,84 pró­sent.

Aðrir eig­endur eru Þorgeir Bald­urs­son, for­stjóri Odda ( á 0,08 pró­sent), Jón Pálmason, sem á m.a. Ikea á Íslandi ásamt bróður sínum og er bróðir Ingi­bjargar Pálma­dóttur, aðal­eig­anda 365 miðla (á 2,05 pró­sent) og Ásgeir Bolli Krist­ins­son, fjár­festir sem oft­ast hefur verið kenndur við tísku­vöru­versl­un­ina Sautján (2.05 pró­sent).

Í umboði Þórs­merkur sitja fimm manns í stjórn. Sig­ur­björn Magn­ús­son er stjórn­ar­for­maður en auk hans sitja Ásdís Halla Braga­dóttir (fyrrum bæj­ar­stjóri Garða­bæjar fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins og einn aðal­eig­anda heima­þjón­ust­unnar Sinnum), Bjarni Þórður Bjarna­son (fram­kvæmda­stjóri Arctica Finance), Katrín Pét­urs­dóttir (for­stjóri Lýsis) og Frið­björn Orri Ket­ils­son (fyrrum rit­stjóri og ábyrgð­ar­maður vefs­ins amx.is, sem hætti starf­semi 1. októ­ber 2013).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár