Hlutafé útgefanda Fréttablaðsins aukið um 150 milljónir

Hlutafé Torg ehf., útgef­anda Frétta­blaðs­ins, var aukið af 365 miðlum um 149,5 millj­ónir króna í lok síð­asta árs.

Hlutafé Torg ehf., útgef­anda Frétta­blaðs­ins, var aukið af 365 miðlum um 149,5 millj­ónir króna í lok síð­asta árs. Við­skipta­blaðið greinir frá.

365 miðlar færðu rekstur Frétta­blaðs­ins yfir í Torg, eftir kaup Vodafone, nú Sýnar, á öðrum fjöl­miðlum 365 miðla í des­em­ber. Greitt var fyrir aukið hluta­féð með þeim eignum sem 365 miðlar lögðu í Torg sam­kvæmt gögnum sem fyr­ir­tækið sendi inn til fyr­ir­tækja­skrár.

Þar kemur fram að yfir­færsla verð­mæta 365 miðla til Torgs bygg­ist á bók­færðu verði í reikn­ings­skilum 365 miðla en fram­kvæmd hafi verið sér­stök yfir­ferð á eign­unum með til­liti til virð­is­rýrn­unar. Þá stað­festu stjórn­ar­menn og lög­giltur end­ur­skoð­andi að þær eignir sem færðar hafi verið yfir í Torg væru að minnsta kosti 149,5 millj­óna króna virði.

Ekki liggur fyrir hvert bók­fært virði eign­anna er en 365 miðlar hafa ekki skilað árs­reikn­ingum fyrir árin 2016 og 2017.

Tilkynnt var um það í mars 2017 að Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, hefði und­ir­ritað samn­ing um kaup á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að und­an­skildum eignum er varða útgáfu Frétta­blaðs­ins. Þeir miðlar sem seldir voru yfir frá 365 miðlum voru Stöð 2 og tengdar sjón­­­varps­­­stöðv­­­­­ar, útvarps­­­­­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins (t.d. Bylgj­an, X-ið og FM957) og frétta­vef­­­ur­inn Vísir.is. Frétta­­­stofa 365 fylgdi með í kaup­un­um, en hún er ein stærsta frétta­­­stofa lands­ins og sú eina sem heldur úti dag­­­legum sjón­­­varps­frétta­­­tíma utan frétta­­­stofu RÚV.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa Fjar­skipta og flestra miðla 365 með skil­yrðum í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins. Keyptu eign­irnar fær­ðust yfir til Fjar­skipta 1. des­em­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár