Kolrassa krókríðandi hyggist gefa út Drápu á ný

Platan Drápa eftir Kolrössu krókríð­andi kemur aftur út, 25 árum eftir upp­haf­lega útgáfu. Hljóm­sveitin safnar fyrir útgáf­unni á Karolína fund.

Hljóm­sveitin Kolrassa Krókríð­andi/Bell­at­rix fagnar í ár 25 ára afmæli sínu og af því til­efni stefnir hún að end­ur­út­gáfu sinnar fyrstu plötu, Drápu á vínyl- og geisla­plötu, en hún hefur verið ófá­an­leg í ára­tugi. Hljóm­sveitin mun einnig flytja plöt­una einu sinni með upp­runa­legum með­limum á tón­leikum 25. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Hljóm­sveitin stendur nú um þessar mundir fyrir hóp­fjár­mögnun á verk­efn­inu hjá Karolina Fund og geta áhuga­samir tekið þátt í söfn­un­inni á vefnum.

Upp­runa­legir með­limir Kolrössu eru Elíza Newman, tón­list­ar­kona og tón­list­ar­kenn­ari, Sigrún Eiríks­dóttir leik­skóla­stjóri, Birgitta Vil­bergs­dóttir, flug­freyja og öku­kenn­ari og Ester Ásgeirs­dóttir, hljóð­maður og starfs­maður kvik­mynda­safns Íslands. Kjarninn hitti Elízu Newman og ræddi við hana um verk­efnið.

Hvers vegna varð Kolrassa Krókríð­andi til á sínum tíma?

Hljóm­sveitin fædd­ist út úr annarri hljóm­sveit sem við höfðum stofnað í grunn­skóla sem kall­að­ist Menn. Við vorum fjórar vin­konur í Keflavík og okkur lang­aði að gera eitt­hvað sem vakti sem mesta athygli og hneyksl­aði sem flesta í Keflavík. Þannig að Kolrassa fædd­ist þannig. Við vorum svoldið á skjön við flesta jafn­aldra okkar, og að stofna hljóm­sveit var í raun okkar leið til að brjót­ast út úr norm­inu og láta rödd okkar heyr­ast.

[adspot]

Hljóm­sveitin lagð­ist í dvala árið 2001 eftir að hafa verið nokkuð áber­andi í íslenskri tón­list­ar­flóru. Hafið þið eitt­hvað komið saman síðan þá?

Jú, við höfum verið dob­blaðar til að koma saman ein­staka sinnum við mjög sér­stök til­efni. Það fyrsta var 60 ára afmæli Myllu­bakka­skóla í Keflavík árið 2012 þar sem upp­runa­lega Kolrassa kom saman í fyrsta sinn í 19 ár og var það kveikjan að því að við gátum hugsað okkur að gera meira. Við höfum komið fram tvisvar á Eistna­flugi, rokk­há­tíð­inni í Nes­kaup­stað, og svo á 17. júní og hátíð­ar­tón­leikum í Hörpu til að halda upp á 100 ára kosn­inga­af­mæli kvenna á Íslandi. Í ár höldum við svo upp á 25 ára afmæli hljóm­sveit­ar­innar og okkur þótti til­valið að slá til í tón­leika og end­ur­út­gáfu okkar fyrstu plötu Drápu í afmælis Vinyl útgáfu.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Kolrassa Krókríð­andi, sem saman stóð af fjórum 17 ára stúlkum, gaf út Drápu sem valin var ein af plötum árs­ins árið 1992. Hvað stendur til hjá hljóm­sveit­inni núna að 25 árum liðnum?

VIð eigum 25 ára afmæli í ár og okkur langar að halda upp á það með smá húll­um­hæi! Við erum að stefna á að end­ur­út­gefa Drápu í hátíð­ar­vinyl- og CD-útgáfu þar sem hún hefur ekki verið fáan­leg í ára­tugi. Einnig ætlum við að halda end­ur­út­gáfu­af­mæl­is­tón­leika á Húrra 25. nóv­em­ber þar sem upp­runa­legir með­limir Kolrössu koma saman og flytja Drápu í heild sinni ásamt nokkrum vel völdum lögum frá þessu tíma­bili. Við erum á fullu núna með hóp­fjár­mögnun hjá Karolina Fund fyrir plöt­una og getur fólk farið inn á Karolina Fund-síð­una og pantað þar ein­tak af Drápu á Vinyl og CD ásamt alls­konar gúmmulaði eins og Drápubol og miða á tón­leik­ana. Mikið hefur breyst – það er rétt – síðan platan kom út, en Drápa hefur elst alveg sér­stak­lega vel og að hlusta á hana núna er algjört æði, eins og að vera sendur aftur í tím­ann inn í hug­ar­heim skrít­inna ung­lings­stelpna sem höfðu engu að tapa á því að láta allt vaða!

Söfnun Kolrassa Krókríð­andi fyrir Drápu á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár