Þjóðlagasveitin Þula vill út

Þjóð­laga­sveitin Þula stefnir á þjóð­laga­mót á Spáni í sumar. Átta ung­menni bjóða til tón­leika svo af ferða­lag­inu megi verða.

Þjóðlagasveitin Þula er skipuð átta ungmennum á aldrinum 15 til 17 ára. Þau safna nú fyrir ferð til Spánar til að geta komið fram á þjóðlagahátíð.
Þjóð­laga­sveitin Þula er skipuð átta ung­mennum á aldr­inum 15 til 17 ára. Þau safna nú fyrir ferð til Spánar til að geta komið fram á þjóð­laga­há­tíð.

Átta ung­menni á aldr­inum 15 til 17 ára skipa Þjóð­laga­sveit­ina Þulu undir hand­leiðslu Eydísar Franzdóttur og Pamelu De Sensi. Hópurinn stefnir á þjóð­laga­mót á Spáni í sumar. Öll ung­mennin eru tón­list­ar­nem­endur í tón­list­ar­skóla Kópavogs.

Þula býður þeim sem vilja styrkja þau til ferð­ar­innar á tón­leika 27. mars næst­kom­andi.

Eydís er óbó­leik­ari og tón­list­ar­kenn­ari við Tón­list­ar­skóla Kópavogs. Eydís var búsett um tíma í Tékk­landi og þaðan þekkir hún til tékk­neskra þjóð­laga­hefðar.

Pamela er flautuleik­ari og einnig tón­list­ar­kenn­ari við Tón­list­ar­skóla Kópavogs, auk þess að reka fyr­ir­tækið Töfra­hurð sem hefur staðið fyrir fjölda tón­leika, tón­list­ar­við­burða og gefið út vand­aðar tón­list­ar­bækur fyrir börn. Pamela er frá Ítalíu en hefur verið búsett á Íslandi til ára. Saman eru þær í for­svari fyrir Þjóð­laga­sveit­ina Þulu. Kjarninn hitti Eydísi.

Hvað er það sem heillar við þjóðlagatónlistina?

„Íslensk þjóð­lagatón­list er arfur okkar og það eitt og sér heillar. Það er líka frá­bær­lega gaman að leika og iðka þjóð­lagatón­list þegar hún kemst á flug, nokkuð sem er fátítt meðal okkar en þekkt víða erlendis.“

Hafið þið í Þjóðlagasveitinni Þulu spilað lengi saman?

„Þjóð­laga­sveitin Þula hefur spilað íslenska þjóð­lagatón­list um nokk­urra ára skeið undir minni hand­leiðslu í Tón­list­ar­skól­anum í Kópavogi sér og öðrum til ánægju en einnig til vit­und­ar­vakn­ingar á íslenskri þjóð­lagatón­list og þeirri gleði sem hægt er að hafa af flutn­ingi hennar.“

„Upp­runa­lega stofn­aði ég þjóð­laga­hóp til að spila á móti tékk­neskum þjóð­laga­hópi frá Prag sem kom hingað tvisvar með nokk­urra ára milli­bili og við héldum þjóð­laga­há­tíðir á Árbæj­ar­safni með þeim hópi. Fyr­ir­mynd mín var þessi tékk­neski hópur og aðrir slíkir sem ég þekki þaðan. Víða í Evrópu eru þjóð­laga­hópar starf­ræktir og þykir besta skemmtun að spila í þeim bæði tón­list­ar­lega og félags­lega.“

[adspot]

„Það má segja að starfið með þjóð­laga­sveit­inni Þulu hafi verið ævin­týri lík­ast. Sveitina skipa átta mjög fjöl­hæfir tón­list­ar­nem­endur á aldr­inum 15 til 17 ára sem öll spila á hljóð­færi, syngja og jafn­vel dansa. Þau eru alveg ótrú­leg og gaman að fylgj­ast með hvernig gleðin tekur völd í flutn­ingi þeirra. Þau smita hvert annað af leik­gleði og þó ein­hver mæti þreyttur og illa upp­lagður til leiks þá hefur gleðin tekið öll völd innan stuttrar stundar.“

„Mark­miðið; að mynda íslenskan þjóð­laga­hóp þar sem leikin er íslensk þjóð­lagatón­list sér og öðrum til gleði hefur virki­lega náð að blómstra í með­förum þeirra. Þula hefur komið fram víða og hefur hvar­vetna vakt athygli fyrir fág­aðan flutn­ing, geislandi gleði og skemmti­lega fram­komu þar með talið á Þjóð­laga­há­tíð­inni á Siglu­firði 2016, á Nótunni í Eldborg Hörpu 2016, í Hof á Akureyri, Barna­menn­ing­ar­há­tíð, Orma­dögum og víðar. Hópurinn kemur fram í þjóð­bún­ingum 19. aldar. Enginn annar sam­bæri­legur hópur er starf­ræktur á land­inu.“

Fyrir hverju eru þið að safna?

„Í júlí er ferð­inni heitið í fyrstu utan­lands­ferð­ina, á alþjóð­legu þjóð­laga­há­tíð­ina Moonlight í Blanes, rétt fyrir sunnan Barcelona á Spáni, en sveitin verður fyrsti íslenski hóp­ur­inn til að taka þátt í þess­ari stóru hátíð.“

„Í til­efni af fjár­öflun fyrir ferð­ina, hefur Þula efnt til söfn­unar á Karolina Fund þar sem boðið er til tón­leika í Kefas Frí­kirkj­unni í Fagra­þingi 2a mánu­dags­kvöldið 27. mars kl. 20.00. Einnig er hægt að bóka hóp­inn á sér­staka við­burði í 10-20 eða 30 mín.“

„Að sjálf­sögðu er einnig hægt að styrkja hóp­inn um lít­il­ræði þó fólk eigi ekki tök á að hlusta á hóp­inn að sinni. Á tón­leik­unum í Kefas lofum við bestu skemmtun. Þar mun Þula flytja allt að klukku­tíma efn­is­skrá sem þau fluttu á Þjóð­laga­há­tíð­inni á Siglu­firði í fyrra en hefur aldrei áður heyrst í heild á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sveitin kom mjög á óvart á þjóð­laga­há­tíð­inni og hlaut mikil lof fyrir leik sinn.“

„Það eru ekki margir sem þekkja tón­leika­stað­inn: Kefas Frí­kirkj­una. Kirkjan stendur á alveg frá­bærum stað með útsýni yfir Elliða­vatn, Heiðmörk, Bláfjöll og allan fjalla­hring­inn. Þarna er tón­list­ar­skóli Kópavogs með kennslu aðstöðu og frá­bæra aðstöðu til tón­leika­halds sem okkur langar líka að kynna fyrir tón­leika­gestum okkar.“

Söfn­un­ina er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár