Karolina fund: Litla litabókin

Eva Jónína Dan­í­els­dóttir, 5 ára lista­maður, teiknar myndir í nýja lita­bók.

Eva Jónína Daníelsdóttir spáir í spilin ásamt pabba sínum.
Eva Jónína Dan­í­els­dóttir spáir í spilin ásamt pabba sínum.

Eva Jónína Dan­í­els­dóttir er 5 ára stelpa sem hefur mik­inn áhuga á mynd­list. Hún hefur ákveðið að gefa út lita­bók fyrir börn á svip­uðum aldri. Eva teiknar sjálf allar mynd­irnar í bók­ina, en Daníel S. Jónsson, faðir hennar, mun aðstoða hana við umbrot og upp­setn­ingu á kápu. Feðginin hafa sett upp Facebook-síðu þar sem áhuga­samir geta fylgst með ferl­inu. Safnað er fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund. Kjarninn hitti Daníel og tók hann tali.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að lita­bók­inni?

Við höfum ekki þurft að kaupa jóla- og afmæliskort, né merki­miða í nokkur ár, því Eva tók snemma að sér að útbúa allt slíkt upp á eigin spýtur. Hug­myndin að bók­inni kvikn­aði upp­haf­lega út frá þessum kortum sem hún teikn­aði. Við, for­eldrar Evu, tókum eftir því að hún var búin að koma sér upp ákveðnu verk­ferli. Fyrst teikn­aði hún allar útlínur með svörtum penna, og að því loknu hófst hún handa við að lita mynd­ina. Útkoman varð því oft á tíðum ekk­ert ólík myndum í lita­bók. Upp­haf­lega setti ég þessa hug­mynd fram í hálf­kær­ingi. En eftir því sem við hugs­uðum meira um þetta, þá fannst okkur hug­myndin alltaf skemmti­legri.

[adspot]

Er eitt­hvað þema að finna í lita­bók­inni?

Í raun­inni ekki. Flestar lita­bækur búa yfir þema, og eru oftar en ekki hlið­ar­af­urð af teikni­myndum eða annarri sölu­vöru tengdum börnum. Okkur finnst slíkar bækur oft á tíðum inni­halda of ein­hæfar myndir, satt að segja. Við ákváðum því snemma að fara þver­öf­uga leið, og í Litlu lita­bók­inni er þemað eig­in­lega bara hug­ar­flug Evu sjálfrar. Af þeim myndum sem þegar eru til­búnar þá er mest um ein­hvers konar fígúrur. Talsvert af dýra­myndum, en líka vél­menni, geim­verur, trúðar og bara alls kyns furðu­verur. Eina skil­yrðið er að Eva sé sátt við teikn­ing­arnar, og að henni finn­ist sjálfri spenn­andi að lita þær.

Nú kemur fram á Karolina Fund-síðu Litlu lita­bók­ar­innar að Eva vilji styrkja bæði Barna­spít­ala Hrings­ins og Styrkt­ar­sjóð gigt­veikra barna. Hvernig kom það til?

Eva er sjálf gigt­veik. Hún var greind strax þegar hún var tveggja ára, og hefur meira og minna verið á lyfjum síðan, ásamt því að þurfa að heim­sækja spít­ala og lækna reglu­lega, auk þess sem hún fer viku­lega í sjúkra­þjálfun. Um leið og við ákváðum að ráð­ast í útgáfu bók­ar­innar, þá stakk hún upp á því að við myndum gefa veikum börnum lita­bækur. Þannig varð Barna­spít­ali Hrings­ins fyrir val­inu. Okkur fannst svo liggja beint við að Styrkt­ar­sjóður gigt­veikra barna fái líka sinn skerf, ef ein­hver hagn­aður verður af útgáf­unni.

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár