Björgum Vagninum!

Vagninn á Flateyri er fyrir löngu orð­inn að merki­legri stofnun í sam­fé­lag­inu á Flateyri. Nú stendur til að ráð­ast í end­ur­bætur á hús­næð­inu.

Nýir eig­endur Vagnsins á Flateyri hyggja á meiri­háttar end­ur­bætur og þó nokkrar breyt­ingar á hús­næð­inu. Fyrstu skref eru fólgin í björg­un­inni, því hús­næðið liggur undir skemmdum vegna leka og því akút mál að ráð­ast í end­ur­bætur.

Safnað er fyrir fyrstu nauð­syn­legu fram­kvæmd­unum á Karolina Fund undir heit­inu Björgum Vagninum. Aðstand­endur söfn­un­ar­innar er hópur fólks úr öllum áttum – núver­andi og brott­fluttir Flat­eyr­ingar, eig­endur Vagnsins og öllum sem þykir vænt um Vagninn. Fólk sem á sér þann draum að gefa Vagninum þá löngu tíma­bæru upp­lyft­ingu sem hann á skilið, enda hefur Vagninn séð um að lyfta öðrum upp í ára­tugi.

Hópurinn sem tók við Vagninum í vor sam­anstendur af þremur pörum sem öll eru svo­kall­aðir sum­ar­fuglar á Flateyri. Þau eru Geir Magn­ús­son, ljósameist­ari í kvik­mynda­gerð, Ragn­heiður Ólafs­dóttir nudd­ari, Hálfdan Lárus Pedersen, leik­mynda og inn­an­húss­hönn­uður, Sara Jóns­dóttir, stjórn­andi Hönn­un­ar­Mars, Sindri Páll Kjart­ans­son, kvik­mynda­gerð­ar­maður og Arn­þrúður Dögg Sig­urð­ar­dóttir pródúsent. Þessu fólki er margt til lista lagt og hóp­ur­inn hefur lík­leg­ast að geyma öll elem­ent sem þarf til að gera góðan stað frá­bæran.

Kjarninn hitti Söru Jóns­dóttur og tók hana tali.

[adspot]

Hvaða merkingu hefur Vagninn fyrir samfélagið á Flateyri?

Vagninn hefur víð­tæka merk­ingu fyrir sam­fé­lagið. Þetta er í raun sam­komu­hús Flat­eyr­inga og þar slær hjartað. Þar kemur fólk saman, snæðir, skemmtir sér, skrafar og dansar. Vagninn er krá, veit­inga­staður, skemmti­staður og tón­leika­staður. Vagninn hefur gegnt ýmsum hlut­verkum í gegnum tíð­ina allt frá rekstri sjoppu yfir í billj­ard­stofu og einnig skilst okkur að þar hafi verið rekin hljóm­plötu­verslun og að sjálf­sögðu var þar ver­búð á efri hæð­inni. Stað­ur­inn á stað í hjörtum margra, ekki aðeins Flat­eyr­inga, heldur einnig þeirra sem brott­fluttir eru, sem og mýmargra tón­list­ar­manna, sem þar hafa komið fram.

Það er eig­in­lega magnað að flestir sem koma að máli við okkur og vita að við höfum tekið við Vagninum, eiga þaðan góðar minn­ingar og fáum við að heyra margar skemmti­legar sögur. Það er eitt­hvað sér­stakt við Vagninn og hann virð­ist hitta fólk í hjarta­stað.

Nú í sumar buðum við uppá frá­bæran mat­seðil með hrá­efni frá svæð­inu auk þess sem gesta­kokkar komu og snéru öllu í hring við góðan orðstír. Dagskrá sum­ars­ins var fjöl­breytt og bauð meðal ann­ars uppá tón­leika með KK, Mugison, Góss og Daða Frey, sem öll hafa komið áður á Vagninn til að spila eða njóta. Svo var þrauta­braut í garð­inum, Íslands­mótið í Kubbi fór fram á tún­inu við Vagninn og fjöl­mörg pöbbagisk voru haldin. Núna um helg­ina, fyrstu helg­ina í sept­em­ber er svo gam­an­mynda­há­tíð á Flateyri og þá verður nú fjör enda kemur Rudda­polkapönk­nikku­sveitin Skárren ekk­ert og spilar hjá okkur laug­ar­dags­kvöldið 2. sept­em­ber.

En svo eiga sér einmitt líka stað óvænt­ari og minna skipu­lagðir við­burðir t.a.m. heim­sótti okkur og spil­aði sekkja­pípu­leik­ari sem stefnir að Guinness-heims­meti í sekkja­pípu­leik í öllum löndum heims, einnig kom til okkar sirku­slista­fólk frá Banda­ríkj­unum og tróð upp. Þarna eiga sér stað ein­hverjir töfrar. Vagninn er ynd­is­legur hluti af frá­bæru sam­fé­lagi. Það er alltaf eitt­hvað sem heillar. Má þá nefna að sekkja­pípu­leik­ar­inn hefur aldrei verið meira en einn dag á hverjum stað á sínu ferða­lagi um heim­inn, en ákvað að fram­lengja á Flateyri um tvær auka nætur og sirku­slista­fólkið var farið að vafra um fast­eigna­síður nets­ins til að finna sér hús á Flateyri degi eftir að þau komu.

Hvers vegna þurfa lítil samfélög almennt á stöðum eins og Vagninum að halda?

Í minni bæj­ar­fé­lögum er gríð­ar­lega mik­il­vægt að starf­rækja slíka staði. Það verður að vera til staður þar sem fólk kemur saman í mat og drykk. Samvera og sam­komur göfga jú and­ann. Svona staður eins og Vagninn verður jú líka stað­ur­inn þar sem utan­að­kom­andi lista­menn sækja og sýna listir sínar. Staður eins og Vagninn er menn­ing­ar­mið­punktur bæj­ar­fé­laga. Slíkur mið­punktur bæj­ar­fé­laga er einnig aðdrátt­ar­afl fyrir ferða­menn, því fólk almennt gerir sér frekar ferðir og dvelur lengur í bæjum þar sem boðið er uppá mat, drykk og upp­á­komur.

Staður eins og Vagninn gegnir oft veiga­meira hlut­verki heldur en bara sem krá eða skemmti­staður. Þetta er mið­punktur bæj­ar­ins og hjartað. Vagninn hefur til að mynda ekki aðeins þjónað sem skemmti­staður heldur sam­komu­staður af margs­konar til­efni. Þetta var t.a.m. sama­staður björg­un­ar­fólks í leit­inni eftir flóðið á Flateyri. Svona staðir verður miklu mik­ils­verð­ari í litlu bæj­ar­fé­lagi en hver veit­inga- eða skemmti­staður í stærri bæjum og borgum.

Hvaða framkvæmdir þarf að ráðast í til að hægt verði að starfrækja Vagninn áfram?

Við tókum við Vagninum í vor. Ástandið er slæmt enda þakið búið að míg­leka. Við þurfum að bjarga hús­inu frá eyði­legg­ingu fyrst og fremst. Við förum var­lega í hlut­ina enda erum við félag­arnir að gera þetta án fjár­sterkra bak­hjarla. Okkar bak­hjarlar hafa reynst Flat­eyr­ingar sem búa á eyr­inni en einnig brott­fluttir, enda eru það þeir sem standa með okkur fyrir söfnun á Karolina Fund sem heitir Björgum Vagninum. Söfnunin hefur gengið vel enda eins og ég segi ótrú­lega margir sem eiga góðar minn­ingar af Vagninum og tengja við nauð­syn þess að halda honum gang­andi. Við erum nýkomin yfir 50% hjall­inn og hvetjum auð­vitað alla sem eftir eiga að styrkja söfn­un­ina með smá fram­lagi. Það má amk fá bjór fyrir, eða jafn­vel þrí­réttað á Vagninum.

Fyrsti fas­inn í fram­kvæmdum er að ráð­ast í þakið og eru þær fram­kvæmdir við það að klár­ast. Við þurftum að rífa þakið af og laga und­ir­lag og nokkuð af sperrum og leggja nýtt járn. Næst munum við halda áfram að afklæða húsið og sjá hversu mikið þarf að fjar­lægja og laga. Við förum að engu óðs­lega og erum að vissu leyti að gera þetta af hug­sjón og vænt­um­þykju fyrir Vagninum og bæj­ar­fé­lag­inu. Í fram­hald­inu langar okkur svo að fara í meiri­háttar fram­kvæmdir og end­ur­bætur. Við erum jú hópur sem að hluta hefur staðið í end­ur­bótum og breyt­ingum fjöl­margra veit­inga og skemmti­staða í Reykja­vík fyrir aðra. Nú erum við að gera þetta fyrir okkur, Flateyri og Vagns­unn­endur, sem er meiri­háttar. Okkur langar að taka Vagninn í gegn á góðu tempói, án asa, vit­leysu og góð­ærisæðis. Í öllu ferl­inu er stefnan að halda hjart­anu í góðum slætti og varð­veita sál stað­ar­ins.

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár