Karolina fund: Heimildarmyndin Leitin að Siggu Lund

Fjöl­miðla­konan Sigga Lund vill fjár­magna heim­ild­ar­mynd um sam­band­s­lit og leit­ina að sjálfri sér.

Það kann­ast margir við fjöl­miðla­kon­una Siggu Lund. Hún er þekkt­ust fyrir að hafa séð um morg­un­þátt­inn Súper á FM957 sem var einn vin­sæl­asti morg­un­þáttur lands­ins um nokk­urra ára skeið. Hún starf­aði einnig á Bylgj­unni, Létt­bylgj­unni og K100, Aust­ur­frétt og á sjón­varps­stöð­inni N4 þar sem hún sinnti meðal ann­ars þátta­gerð í þætt­inum Að austan.

Árið 2014 vatt hún kvæði sínu í kross og flutti á sveita­bæ­inn Vað­brekku í Hrafn­kels­dal og gerð­ist fjár­bóndi ásamt kærasta sínum sem er fæddur þar og upp­al­inn. Í þessum afdal byrj­aði borg­ar­stelpan að snappa frá líf­inu og til­ver­unni í sveit­inni.

Í dag er Sigga flutt úr dalnum og snappar opin­ber­lega um leit­ina af sjálfri sér eftir sam­bands­slit við sam­býl­is­mann sinn til 7 ára. Ferða­lagið kallar hún „Leitin að Siggu Lund“. Nú langar henni að gera heim­ild­ar­mynd um þessa veg­ferð sem hefur leitt hana til Balí.

Hver er for­sagan að þessu verk­efni?

„Þetta hófst allt á Snapchat skömmu eftir sam­bands­slitin. Þegar ég sagði fylgj­endum mínum frá skiln­að­inum, spurði ég hvort þeir hefðu áhuga á að fylgja mér á þeirri nýju veg­ferð að leita að sjálfri mér, því aug­ljós­lega er maður pínu týndur á svona tíma­mótum. Við­brögðin létu ekki á sér standa svo ég hélt af stað. Ekkert hand­rit, bara lífið eins og það kemur fyrir sjónir. Ferða­lagið kalla ég „Leitin að Siggu Lund“. Nú fjórum mán­uðum síðar hafa fylgj­endur mínir fylgt mér í gegnum súrt og sætt. Þetta hefur verið sann­kölluð rús­sí­ban­areið sem nú hefur leitt mig alla leið hingað til Indónesíu því ég heyrði að Balí sé senni­lega einn af bestu stöð­unum í heim­inum til að finna sjálfan sig.“

Hvað kom til að þú ákvaðst að fara þessa leið?

„Ég var nokkuð dug­leg að snappa úr sveit­inni og tókst að skapa nokkuð virkt sam­fé­lag á miðl­inum. Mér fannst eðli­legt að halda því áfram. Þess utan var ég ein­mana og mér fannst gott að tjá mig um reynslu mína og upp­lifun og fá öll við­brögðin. Hug­myndin að heim­ild­ar­mynd­inni kom síðar.“

Hverju breytti það að vinna úr hlut­unum opin­skátt?

„Þetta er í raun alveg magn­aður gjörn­ingur. Ég fann það strax í byrjun að þarna voru ein­hverjir töfrar í gangi. Öll þessi við­brögð frá fylgj­endum mínum hafa hjálpað mér gíf­ur­lega og gefið mér bæði orku og kraft og hvatt mig áfram. Á sama tíma fæ ég fjöld­ann allan af skila­boðum frá fólki sem segir að snappið mitt, og það að ég tali svona opin­skátt og ein­lægt um reynslu mína hjálpi þeim og hvetji þau. Það eru svo margir að tengja við það sem ég er að tjá mig um og upp­lifa, fyrir utan að það er fullt af fólki sem er sjálft að ganga í gegnum skilnað, eða hafa ein­hvern tíma gert það, skrifað mér og sagt að þeim finn­ist svo gott að finna að það sé ekki eitt. Ég við­ur­kenni samt alveg að mér finnst þetta ekki alltaf auð­velt. Sér­stak­lega þegar maður er í djúpu döl­unum. Þá langar manni ekki alltaf að opna fyrir snappið og gráta fyrir framan fólk eða yfir höfuð tjá sig. Þá langar manni helst að fara bara undir sæng og breiða yfir höf­uðið. En ég tók ákvörðun um að vera trú verk­efn­inu. En sem betur fer er þetta ekki bara grátur og sorg. Það er oft stutt í grínið og hlát­ur­inn, og svo gleðst maður yfir sigrunum og hverju því skrefi sem maður tekur í átt að sátt­inni.“

Hvað ertu að gera á Balí?

„Ég tók þá hug­rökku ákvörðun að segja upp vinn­unni minni, selja allt dótið mitt og halda á vit ævin­týr­anna. Hér er ég sækja nám­skeið sem heitir „Trans­form your life“ with Ósk. Ósk (Guðbjörg Ósk Frið­riks­dóttir) þerapisti hefur búið á Balí um langt skeið og hefur haldið fjöl­mörg nám­skeið fyrir hópa og ein­stak­linga. Ég er hér fyrst og fremst til að vinna í sjálfri mér, hug­leiða, fara í jóga og njóta orku stað­ar­ins sem tengir mig betur við hjartað svo ég átti mig betur á því hvaða skref ég vil taka næst. Ég ætla vera hér þar til í byrjun mars.“

En af hverju heim­ild­ar­mynd?

„Góð spurn­ing. Frá því ég hóf þetta ferða­lag og þessa leit að sjálfri mér hef ég geymt hverja ein­ustu upp­töku af snapp­inu. Og þegar ég fór að rifja upp og líta yfir þessa veg­ferð síð­ustu vikur og mán­uði sá ég bara að ég er með eitt­hvað í hönd­unum sem þarf að taka skref­inu lengra. Þetta er alveg ótrú­lega magnað ferli sem ein­stak­lingur gengur í gegnum þegar hann skilur. Það sem ég hef líka upp­götvað er, að allir þeir sem skilja eru mjög ein­mana í sinni sorg og sínu ferli. Það er rauði þráð­ur­inn í öllum mínum sam­skiptum við fylgj­endur mína. Þess vegna vil ég aðeins taka þetta upp á yfir­borðið og kryfja til mergjar. Svo yrði þetta ekki bara skiln­að­ar­saga, heldur saga ein­stak­lings sem vaknar upp af löngum dvala og leggur í leit að sjálfri sér, því einu og sér er mjög áhuga­vert að fylgja eftir.

Það að ég sé núna á Balí, er til dæmis eitt­hvað sem ég sá ekki fyrir í upp­hafi ferða­lags­ins. Síðast en ekki síst langar mig flétta inn í þetta þessum töfrum sem hafa mynd­ast á milli mín og fylgj­enda minna á Snapchat og vil ég hik­laust fá þá til að vera hluti af mynd­inni, með alla sína reynslu og inn­legg, fyrir utan hvað það væri gaman að hitta allt þetta fólk sem ég hef deilt lífi mínu með svo per­sónu­lega.

Ég hef sett af stað hóp­fjár­öflun á Karolina Fund til að hrinda verk­efn­inu af stað. Það væri gaman að sjá þetta verða að veru­leika og vona ég að sem flestir sjái sem fært um að leggja verk­efn­inu lið. Ég bendi líka öllum sem áhuga hafa að upp­lifa ferða­lagið með mér og sjá hvernig heim­ild­ar­mynd­inni miðar ef söfn­unin tekst. Addaðu mér undir sigga-lund á Snapchat.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár