Hinsegin frá A til Ö

Hvað er eikyn­hneigð? Er opið sam­band hinsegin? Er bleik­þvottur snið­ugur og er hinsegin menn­ing til?

Vefsíðan Hinsegin fá A til Ö verður öllum til fróðleiks um hinsegin málefni. Myndin er frá Gleðigöngunni í Reykjavík þar sem mannréttindum er fagnað.
Vefsíðan Hinsegin fá A til Ö verður öllum til fróð­leiks um hinsegin mál­efni. Myndin er frá Gleði­göng­unni í Reykja­vík þar sem mann­rétt­indum er fagnað. Mynd: Anton Brink

Hinsegin frá A til Ö er vef­síða þar sem hægt verður að fletta upp ýmsum hug­tökum er við­koma hinsegin veru­leika. Hjónin Auður Magndís Auð­ar­dóttir félags­fræð­ingur og Íris Ellen­berger sagn­fræð­ingur standa að síð­unni en þær hafa báðar ára­langa reynslu af því að fjalla um og fræða um hinsegin mál­efni. Þær rák­ust oft á að lítið sem ekk­ert efni var til á íslensku um þennan mála­flokk og fólk þurfti að þekkja erlendu hug­tökin og leita svo á rang­hölum nets­ins að upp­lýs­ingum um það. Með síð­unni stór­eykst aðgengi að upp­lýs­ingum um hinsegin mál­efni á íslensku. Kjarninn hitti Auði Magndísi og tók hana tali.

Um hvað verður fjallað á síð­unni?

„Síðan bygg­ist á því að hinsegin hug­tök eru skýrð á ein­faldan og aðgengi­legan hátt. Bæði er um að ræða hug­tök sem notuð eru um fólk svo sem inter­sex, pankyn­hneigð og lesbía en einnig fræði­legri hug­tök á borð við gagn­kyn­hneigt við­mið, sís­hyggju og sam­tvinnun. Sú umfjöllun er þá í raun inn­gangur að hinsegin fræðum.

Að auki verða innslög frá ólíkum hópi hinsegin fólks þar sem það setur hug­tökin sem um ræðir í per­sónu­legt sam­hengi því allt snýst þetta jú á end­anum um mann­lega til­veru. Þannig ættu allir að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi.“

[adspot]

Hvaðan kemur efnið?

„Efnið er tekið saman úr ýmsum áttum og margt af því er efni sem við höfum sjálfar skapað þegar við höfum verið með fyr­ir­lestra og vinnu­stofur í gegnum tíð­ina. Við fáum efnið meðal ann­ars frá erlendum vef­síðum en einnig í gegnum per­sónu­legar sögur og fræði­legt efni. Þar sem um gras­rótar-mála­flokk er að ræða er síðan alls ekki strang-fræði­leg þó fræði­legt efni sé inn á milli í bland.“

Hvaða hópum gagn­ast Hinsegin frá A til Ö?

„Vefsíðan mun gagn­ast öllu áhuga­fólki um fjöl­breyti­leika mann­lífs­ins, nem­endum sem eru að læra félags­fræði, mann­fræði, kynja­fræði eða hinsegin fræði, fjöl­miðla­fólki, aðstand­endum hinsegin fólks og hinsegin fólki sjálfu.

Efnið hefur verið prufu­keyrt í kynja­fræði­á­föngum í Kvennó við góðar und­ir­tektir bæði nem­enda og kenn­ara. Einn nem­andi skrif­aði okkur til dæmis og sagði: Það var svo sem margt sem ég hafði ekki svo mikið sem heyrt minnst á fyrr en í Hinsegin hand­bók­inni, t.d. jað­ar­kyn­ver­und, ein­kyn­hneigð, fjöl­kyn­hneigð, skoli­os­exu­ality, aromantic, kynsegin, butch, norma­tívur, marg­þætt mis­munun, öráreitni, bleik­þvottur, queerbaiting, hinsegin saga. Það er samt gott að vera búin að kom­ast að því hvað maður vissi tak­markað.“

Hvenær opnar síðan?

„Gagna­grunn­ur­inn sjálfur er til­bú­inn en gerð hans var styrkt af Þró­un­ar­sjóði náms­gagna, Sam­tök­unum '78 og Reykja­vík­ur­borg. Nú vantar bara að koma honum í aðgengi­legt form á vef­síðu sem væri öllum opin. Þess vegna ákváðum við að safna fyrir gerð vef­síð­unnar á Karolina Fund. Söfnunin gengur vonum framar en nokkrir dagar eru eftir og okkur vantar enn örlít­inn loka­sprett. Verk­efnið má finna á Karolina fund. Við gerum svo ráð fyrir að síðan opni næsta haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár