300 blaðsíðna uppflettirit fyrir foreldra

For­eldra­hand­bókin er verk­efni vik­unnar á Karolina fund.

Þóra Sig­urð­ar­dóttir hefur hefur um ára­bil starfað við margs konar rit­störf, blaða­mennsku og dag­skrár­gerð. Hún hefur und­an­farið ár unnið að end­ur­út­gáfu For­eldra­hand­bók­ar­innar, heldur úti sam­nefndri vef­síðu sem er upp­full af alls kyns fróð­leik og létt­meti tengdu for­eldra­hlut­verk­inu.

For­eldra­hand­bókin kom upp­haf­lega út árið 2010 en hefur verið ófá­an­leg um ára­bil. Nú er unnið að því að gefa hana út aftur, með tölu­verðum við­bótum. Í For­eldra­hand­bók­inni hefur Þóra tekið saman hag­nýtar upp­lýs­ingar, ráð­legg­ingar og reynslu­sögur um allt frá bleiu­skiptum og brjósta­gjöf til fæð­ing­ar­þung­lyndis og fyrsta ferða­lags­ins sem getur reynst ógn­vekj­andi upp­lifun með lít­inn ein­stak­ling í föru­neyt­inu.

Hver er for­saga For­eldra­hand­bók­ar­innar?

„Hug­myndin að for­eldra­hand­bók­inni kvikn­aði fyrst þegar ég var nýbúin að eign­ast mitt fyrsta barn og hélt að þetta yrði dans á rósum. Fljót­lega fór að bera á brestum þar sem ég var alls ekki með þetta á hreinu og fann að ég þurfti hjálp. Á mér brunnu ótelj­andi spurn­ingar og mér fannst erfitt að fá svar við þeim á einum stað. Ég átti mikið af erlendum bókum en mér fannst þær oftar en ekki syk­ur­húða raun­veru­leik­ann og alls ekki end­ur­spegla það sem ég var að upp­lifa.“

„Ég byrj­aði að sanka að mér fróð­leik, aðal­lega með því að hringja í mér vitr­ara fólk og sam­visku­sam­lega punktaði ég allt hjá mér til að gleyma engu. Smám saman stækk­aði ráða­bunk­inn og ég vildi deila honum með öðrum sem væru mögu­lega að ganga í gegnum það sama og ég. Fyrst átti þetta bara að vera lít­ill bæk­lingur sem ég ætl­aði að dreifa á heilsu­gæslu­stöðvar en síðan óx verk­efn­inu fiskur um hrygg og úr varð 300 blað­síðna upp­fletti­rit um flest allt það sem við kemur for­eldrum og barni fyrsta árið.“

Hvers konar bók er For­eldra­hand­bókin og hvaða upp­lýs­ingar er þar að finna?

„Bókin er fjöl­þætt og í hana skrifa bæði sér­fræð­ingar og for­eldrar (sem vissu­lega eru sér­fræð­ingar). Bæði er verið að deila reynslu og sér­fræði­þekk­ingu og mikil áhersla er lögð á að hafa allan aðgang að upp­lýs­ingum sem skýrastan. Bókin fer út um víðan völl og skipt­ist í fjóra megin parta; barnið, nær­ing, lík­am­inn eftir fæð­ingu og for­eldra­hlut­verkið.“

Hefur vinnan við For­eldra­hand­bók­ina haft ein­hver áhrif á þína eigin reynslu af for­eldra­hlut­verk­inu?

„Ég skrifa bók­ina sam­hliða upp­eldi sonar míns fyrstu tvö árin þannig að vissu­lega spegl­ast mín reynsla að ein­hverju leyti í bók­inni og að sama skapi hefur allur sá haf­sjór af fróð­leik sem í bók­inni er haft áhrif á mína reynslu. Það er líka svo merki­legt með börn að þó þau komi úr nákvæm­lega sama gena­meng­inu þá geta þau verið svo ólík og brugð­ist við aðstæðum á ólíkan hátt.

Bókin kom fyrst út árið 2010 og fékk ofsa­lega góðar við­tökur. Það hefur lengi staðið til að upp­færa hana og bæta við og loks­ins sjáum við fram á að geta klárað þá vinnu. Við erum að safna fyrir útgáf­unni inn á Karolina Fund en þar er hægt að kaupa bók­ina á sér­legum kosta­kjörum. Mér finnst magnað að geta fjár­magnað verk­efni með þessum hætti og ég vona inni­lega að það gangi eftir því ann­ars erum við auð­vitað bara á byrj­un­ar­reit. Að geta mögu­lega fjár­magnað útgáfu með þessum hætti er stór­kost­legt og ég er mjög spennt að sjá hvernig þetta fer allt saman.“

Af hverju ákvaðstu að gefa bók­ina út sjálf?

„Það var erfið ákvörðun en að sama skapi lang­aði mig að takast á við útgáfu og stíga veru­leg út fyrir þæg­ind­ara­mmann. Ég hef lengi verið við­loð­andi útgáfu­mál, skrifað nokkrar bækur og hannað fleiri. Mér finnst þetta spenn­andi verk­efni og hlakka til að sjá hvort þetta tekst. Hug­mynda­fræðin á bak við hóp­fjár­mögnun finnst mér líka ákaf­lega snjöll. Að geta stutt við einka­fram­tak með þessum hætti og eins og í til­felli For­eldra­hand­bók­ar­innar - fá hana á betra verði keyrða heim að dyrum. Win-win fyrir báða aðila - ein­yrkj­ann og kaup­and­ann.“

Verk­efnið er að finna á Karolina fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár