Karolina Fund: Brandur fer í hjólastól til Nepal

Lista­mann­inn og sam­fé­lags­frum­kvöðul­inn Brand Karlsson langar að kom­ast langt út fyrir þæg­ind­ara­mmann sinn og í ævin­týri í Himalaya.

Brandur Karlsson kemst ekki um án hjóla­stóls og aðstoðar en hann hefur lært að treysta á stól­inn og sam­fé­lagið til að kom­ast um og láta gott af sér leiða. Fyrr á árinu fékk hann NPA, not­enda­stýrða per­sónu­lega aðstoð, og með því ræt­ist lang­þráður draumur um að geta ferð­ast og sjá heim­inn. Nepal er eitt það land í heim­inum með hvað versta aðgengi fyrir fólk í hjóla­stól, Brandur og vinir ætla að leifa okkur að fylgj­ast með ferða­lag­inu og áskor­unum í gegnum sam­fé­lags­miðla @brandur_tra­vels og heim­ilda­mynd sem verður gerð af góð­vinum Brands frá Vanaheim.

„Ég er búinn að hafa þessa flugu í höfð­inu í mörg ár. En svo vissi ég að stundin var runnin upp þegar ég kynn­ist Rahul Bharti, sem bjó heima hjá mér á meðan hann kenndi nám­skeið í alda­gömlum nudd með­ferðum hér á landi. Ég tók eftir auknum fram­förum í end­ur­hæf­ingu á meðan að hann var í heim­sókn, þannig þegar hann bauð mér til sín til Kathmandu til að æfa með honum þá var það ekki spurn­ing hvort heldur hvenær. Í mars er komið að því.

Það má líka segja að þessi ferð sé fram­hald af vit­und­ar­vakn­ingu sem ég og aðrir höfum barist fyrir um aðgeng­is­mál. Ég hef farið nokkra hringi í kringum landið til að vekja athygli á mál­efnum hreyfi­haml­aðra, en það að vera bund­inn við hjóla­stól minnkar ver­öld manns mikið.“

Samhliða æfingum með Rahul ætlar Brandur og hóp­ur­inn sem fer með honum að láta reyna á það hvort þau geti lagt nepölsku sam­fé­lagi ein­hvert lið. „Ég hef lært mikið und­an­farin ár af öllum frá­bæru frum­kvöðl­unum sem ég unnið með í gegnum mjög fjöl­breytt verk­efni og hef safnað verð­mætri reynslu sem mér finnst gaman að deila. Ég trúi því að sam­vinna og nýsköpun geti leyst öll okkar vanda­mál, ef kerfin styðja við frum­kvöðla. Svo er aldrei að vita hvort eitt­hvað sem ég læri í Nepal geti ekki gagn­ast okkur hér á Íslandi.“

Hópurinn ætlar svo halda ráð­stefnu í sept­em­ber þar sem farið verður yfir ferð­ina og árang­ur­inn af henni með sjálf­bærni mark­mið S.Þ. að leið­ar­ljósi. „Einnig munu góðir vinir halda stutt erindi um hvaða tæki­færi blasa við Íslandi í tengslum við sam­fé­lags nýsköpun og áhrifa fjár­fest­ingar.“

Hér er hægt að skoða og styrkja ferða­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár