Karolina Fund: Skandali – nýtt (and)menningarrit

Skandali er hugsað sem far­ar­tæki fyrir unga höf­unda sem eru að stíga sín fyrstu spor á rit­vell­inum.

Skandali er hug­ar­fóstur nokk­urra ein­stak­linga sem eiga það sam­eig­in­legt, en ekki endi­lega
margt annað, að hafa ást og áhuga á orðum. Skandali er blað sem til stendur að gefa út í
fyrst sinn í vor, og sem fyr­ir­hugað er að birti sem fjöl­breytt­ast efni og taki sér­stak­lega vel
við efni frá yngri og óþekkt­ari pennum. En Skandali er meira en bara blað. Aðstand­endur
verk­efn­is­ins vilja með þess­ari útgáfu skapa opið sam­fé­lag fyrir skap­andi ein­stak­linga að
koma sama, standa að við­burðum, deila sínum verkum í öruggu umhverfi og geta þar
fengið yfir­lestur, ráð og deilt skoð­unum. Áhuga­samir geta fylgst með þessu ferða­lagi á
Facebook-síðu verk­efn­is­ins. Nú stendur yfir söfnun fyrir kostn­aði í gegnum Karolina Fund.
Kjarninn hitti rit­stjóra fyrsta tölu­blaðs­ins, Ægi Þór, að máli.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?
„Eins og svo margar góðar sögur hófst ferlið á bar yfir bjór. Vinur minn (og nú með­limur
rit­stjórnar) stakk uppá því að gefa út bók­mennta­tíma­rit. Í stuttu máli má segja að ég hafi
ekki haft trú á fyr­ir­tæk­inu. Reyndar skaut ég það harka­lega niður enda með­vit­aður um
ves­enið og kostn­að­inn við slíka útgáfu. En einsog eitt­hvað inception dæmi þá var engu að
síður búið að planta fræ­inu, og það svo óx og dafn­aði þangað til ég ákvað loks að fara
raun­hæft að skoða mögu­leik­ana.

[adspot]Skiptir þar miklu að ég hafði nýlega gefið sjálfur út mína
fyrstu ljóða­bók og þar sem það ferli gekk allt smurt hugs­aði ég að tíma­rit gæti nú ekki verið
svo mikið mál. Áður en ég vissi af vorum við svo komin með dríf­andi og öfl­uga rit­stjórn og
það varð ekk­ert aftur snúið.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?
„Öll erum við (í rit­stjórn) sam­mála um að það skorti val­kosti fyrir unga og óreynda höf­unda
sem eru að stíga sín fyrstu skref í rit­list­inni (og list­inni almennt). Jafn­framt vantar
aðgengi­legra blað, rit sem er ekki eins hátt skrifað og t.d. Tímarit M&M. Blað sem er ódýrt
en samt vel rit­stýrt og sem tekur við óhefð­bundnu og öðru­vísi efni.

Þetta er það sem við
viljum gera með þessu blaði. Við viljum bjóða upp á svona DIY fílíng, án þess þó að gera
bara hvað sem er. Við viljum að umsjón­ar­menn blaðs­ins séu jafn­ingjar þeirra sem skrifa í
það. Blaðið sjálft er svo hugsað sem aðeins fyrsta skref í átt að því að skapa sam­fé­lag
skap­andi ein­stak­linga. Við ætlum að standa fyrir reglu­legum upp­lestrum og öðrum
við­burðum, ásamt því að bjóða upp á sam­fé­lag þar sem fólk getur deilt hug­myndum, fengið
yfir­lestur og ráð­lagt hvort öðru.“

Hvað þarf fólk að vita sem gæti viljað taka þátt í þessu ferli?
„Við viljum gjarnan fá fleiri aðila til liðs við okkur. Margir með­limir rit­stjórnar þekkj­ast ekk­ert
sér­stak­lega inn­byrðis þannig að við erum alls engin klíka sem býður engum með. Þvert á
móti viljum við að rit­stjórn blaðs­ins og útgáfu­fé­lag þess sé síbreyti­legur félags­skapur. Allir
sem vilja taka að sér ein­hver verk­efni, hver svo sem þau eru, eru vel­komnir í hóp­inn. Við
munum svara öllum fyr­ir­spurnum og lesa yfir allt efni sem berst okkur.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið undanfarið ár