Hamskipti: Ný plata með Ólafi Torfasyni

Tón­list­ar­kenn­ari búsettur í Finn­landi safnar fyrir sóló­plötu á Karolina Fund.

Ólafur Torfason er tón­list­ar­kenn­ari sem hefur verið búsettur í Helsinki síðan árið 2008. Árið 2016 stofn­aði Ólafur nýjan tón­list­ar­skóla þar sem ber nafnið Music Adventures. Samhliða rekstri og stofnum tón­list­ar­skól­ans hefur Ólafur verið að vinna að nýrri sóló­plötu sem hefur fengið nafnið Ham­skipti. Hann safnar nú fyrir henni á Karolina Fund.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Um vorið 2014 slitum ég og barns­móðir mín sam­vistum. Þessi plata og þessi ljóð eru að mörgu leyti samin í raun­tíma, eða þessar meta­for­íur sem birt­ast í þessum ljóðum, var mín leið til að reyna form­festa hvernig mér leið og mín við­leitni til að skilja hvað þetta allt saman þýddi. Ég upp­lifði þessi sam­bands­slit sem ákveðna teg­und á ham­skiptum, eins og útgáfa af mér, og á köflum tím­inn sjálfur, væri að deyja, þyrfti að deyja til þess að ég og tím­inn gætum byrjað upp á nýtt. Þessi plata fjallar um Ham­skipti en list­sköp­unin sjálf var mín leið til hafa ham­skipti.

[adspot]Um vorið 2014 kom ég heim til Íslands til að vinna og til að ná áttum. En til þess að geta verið í nærum­hverfi dóttur minnar, ákvað ég að flytja aftur til Helsinki um haustið og skapa líf á nýjum grunni. Seinni hluti plöt­unnar fjallar einmitt um þessa end­ur­bygg­ingu.“

Hvernig líður þér núna?

„Mér líður mjög vel í dag skól­inn vex og dafnar og svo ég er mjög ánægður með útkom­una á þess­ari plötu, það er ólýs­an­lega til­finn­ing að leggja eitt­hvað svona mikið á sig og vera þokka­lega sáttur með afrakst­ur­inn.“

Þú ætlar að halda tón­leika laug­ar­dag­inn 23 mars og ert að safna fyrir plöt­unni á Karolina Fund?

„Já á slóð­inni ham­skipti.com má styrkja við þetta verk­efni, kaupa miða á útgáfu­tón­leik­ana og kaupa plöt­una í for­sölu.“

Eitthvað sem þú vilt koma á fram­færi að lokum ?

„Ég myndi vilja þakka þeim hjá Karolina Fund, og sér­stak­lega Inga, fyrir aðstoð­ina við að setja þessa síðu upp og skerpa á fram­setn­ing­unni á verk­efn­inu. Svo myndi ég vilja þakka Sigríði og þeim hjá Frí­kirkj­unni í Hafn­ar­firði fyrir að leggja þessu verk­efni lið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár