Rótleysi, ferðalög, flakk og tilgangur lífsins

Hjördís Eyþórs­dóttir gefur út ljós­mynda­bók­ina „Put all our Trea­sures Together“.

Eitt af verkum Hjördísar.
Eitt af verkum Hjör­dísar.

Ljós­mynd­ar­inn Hjördís Eyþórs­dóttir gefur út sína fyrstu ljós­mynda­bók. Verkið „Put all our Trea­sures Together” er er verk um tíma­bil í lífi. Þar sem rót­leysi, ferða­lög, flakk og til­gangur lífs­ins eru meg­in­þemað. Áhorf­and­inn er leiddur í gegnum ljós­myndir sem eru litlir fjár­sjóðir í hvers­dags­leik­anum.

„Hug­myndin laum­að­ist svo­lítið aftan að mér, ég var búin að vera að mynda lengi án þess að vera með hug­mynd um hvað ég ætti að gera við efnið. Þetta gerð­ist svo hægt og rólega að það má segja að verkið hafið orðið til án þess að ég fatt­aði það. Það var í raun ekki fyrr en ég var nýbúin að gera annað verk þar sem ég vann með safn (e. archive) eða fundnar myndir að ég ákvað að kíkja með opnum hug á þessar svoköll­uðu til­gangs­lausu ljós­myndir. Þá safn­aði ég þeim saman og horfði á þær einsog þær væru fundnar myndir. Þaðan kemur svo hug­myndin um fjár­sjóð­inn, því eitt og sér er ein­hver mynd ekk­ert svaka­lega merki­leg en safnir þú þeim saman þá mynda þær í raun fjár­sjóð­inn sem lífið er þegar maður er bara að lifa venju­legu lífi. Ég sá í þessum myndum mjög aug­ljóst hvernig lífið mitt er búið að vera síð­ustu 3 ár, bæði jóð­rænt og mynd­rænt og þetta kom mér mjög á óvart. Þarna hafði verkið fengið að vaxa sam­síða líf­inu mínu - alltaf að bæt­ast í bunk­ann en eng­inn aug­ljós áfanga­staður. Svolítið einsog lífið, við vitum ekk­ert hvert það leiðir okkur.“

[adspot]Hjördís segir þema verks­ins vera það sem blasti við henni, eftir að hún skoð­aði mynd­irnar mikið eftir á, þ.e. mikið rót­leysi, flakk og leit að ein­hverju sem sé ekki svo aug­ljóst. „Í raun er ég alls ekki að segja mína per­sónu­legu sögu með verk­inu, heldur er ég bara að sýna sögu af tíma­bili hver svo sem hún er og fólk gerir svo upp við sig hver sagan er. Það eru flestir sem hafa átt tíma­bil í líf­inu sínu þar sem áfanga­stað­ur­inn er óljós, ég er svo­lítið að vinna með það, að verða full­orðin og átta mig á mínum til­gangi í þessu lífi. Án þess að dæma leið­ina eða stjórna henni of mikið - ég sem höf­undur verks­ins er í raun að setja saman í bók með sögu sem ég fann eftir að allt efnið var nú þegar til staðar.

Þetta er mitt fyrsta verk sem er svona gefið út og ég er mjög stressuð og spennt fyrir við­tök­unum. Verkið er útskrift­ar­verk mitt úr Ljós­mynda­skól­anum en þar er megin áhersla lögð á að vinna með ljós­mynda­mið­il­inn á list­rænan hátt. Einnig var verkið valið sem eitt af 22 fram­úr­skar­andi útskrift­ar­verkum hjá Blurring the Lines en þau hjá Blurring the Lines eru með það mark­mið að gefa ungum lista­mönnum plat­form á alþjóð­legum vett­vangi og vekja athygli á því sem er að ger­ast í ljós­mynda­heim­inum í dag. Þá verður gefin út bók með öllum verk­efn­unum sem voru valin og þau kynnt á Paris Photo í París í nóv­em­ber.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár