Stefnir í áframhaldandi samdrátt fjórflokksins

Fylgi fjór­flokks­ins, bak­beins­ins í íslenskum stjórn­málum, hefur dreg­ist hratt saman á skömmum tíma. Fylgið hefur minnkað umtals­vert í síð­ustu þremur kosn­ingum og kann­anir sýna að sú þróun virð­ist ekki á und­an­haldi. Þvert á móti.

Sögu­lega hafa fjórir flokkar verið und­ir­staðan í íslenskum stjórn­mál­um. Þeir hafa stundum skipt um nafn en á hinu póli­tíska lit­rófi hafa þeir raða sér nokkuð skýrt frá vinstri til hægri í ára­tugi.

Sam­an­lagt hafa þessir fjórir flokk­ar, sem í dag heita Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð, Sam­fylk­ing­in, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og áður­nefndur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­, oft­ast nær verið með um 90 pró­sent allra atkvæða.

Sá tími er lið­inn.

Sögulega með yfir 90 prósent fylgi

Kerfið sem var við lýði hér­lendis frá lýð­veld­is­stofnun og fram á eft­ir­hrunsárin er oft kallað 4+1 kerfið. Það sam­an­stóð af ofan­greindum fjór­flokki og oft einum tíma­bundnum til við­bótar, sem end­ur­spegl­aði með ein­hverjum hætti stemmn­ingu hvers tíma. Dæmi um það var til dæmis Banda­lag jafn­að­ar­manna, Kvenna­list­inn, Borg­ara­flokkur­inn, Þjóð­vaki og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn.

[adspot]Árið 1963 fengu flokk­arnir sem þá skip­uðu fjór­flokk­inn sam­tals 99,8 pró­sent atkvæða. Árið 1987, þegar einn vin­sæl­asti fimmti leik­ar­inn, Borg­ara­flokk­ur­inn, steig fram á sviðið hlaut fjór­flokk­ur­inn 74,6 pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum árið 2009, fáeinum mán­uðum eftir banka­hrun­ið, hlaut fjór­flokk­ur­inn 90 pró­sent atkvæða.

Eðlisbreyting árið 2013

Gjör­breyt­ing hefur orðið á hinu póli­tíska kerfi frá kosn­ing­unum 2013, en í þeim fór sam­an­lagt fylgi hefð­bundnu flokk­anna fjög­urra datt niður í 74,9 pró­sent. Þá náðu sex flokkar kjöri á þing. Í kosn­ing­unum 2016 féll það svo niður í 62 pró­sent, og flokk­arnir á þingi urðu sjö. Ári síðar var fylgið 65 pró­sent og flokk­arnir orðnir átta.

Nú berj­ast níu stjórn­mála­flokkar um athygli kjós­enda, þar sem Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur sýnt að hann getur náð athygli þeirra í kosn­ingum með því að koma inn manni í borg­ar­stjór Reykja­víkur í fyrra.

Stefnir niður á við

Samkvæmt nýj­ustu könnun MMR nýtur fjór­flokk­ur­inn stuðn­ings 51,3 pró­sent kjós­enda. Hann hefur ein­ungis einu sinni mælst með minna sam­eig­in­legt fylgi, í júlí 2019, þegar fylgið mæld­ist 51,2 pró­sent og mun­ur­inn því mjög innan skekkju­marka. Haldi sú þróun áfram sem verið hefur und­an­farna mán­uði verður ekki langt í að fylgið fari undir 50 pró­sent í könn­unum eins af stóru könn­un­ar­fyr­ir­tækj­anna.

[links]Í könn­unum Gallup mæld­ist fylgi flokk­anna fjög­urra sam­tals 58,9 pró­sent í nóv­em­ber 2019, og því ívið hærra en það hefur verið að mæl­ast hjá MMR. Lægst fór það í 55,8 pró­sent í júlí síð­ast­liðnum.

Það eru svip­aðar slóðir og fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar og Fram­sóknar fór í á árunum 2015 og 2016, þegar Píratar fóru með him­in­skautum í könn­unum. Frá apríl 2015 og fram til mars 2016 mæld­ist fylgi þess flokks á bil­inu 30 til 36 pró­sent. Síðan hefur það hríð­fallið og mælist nú oft­ast í kringum tíu pró­sent markið.

Allir stjórnarflokkarnir tapa

Þrír af þremur flokkum sem til­heyra gamla kjarn­anum í íslenskum stjórn­málum hafa tapað fylgi á þessu kjör­tíma­bili sam­kvæmt könn­unum bæði Gallup og MMR. Hjá fyrr­nefnda fyr­ir­tæk­inu hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapað 3,5 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og mælist nú með 21,7 pró­sent. Fylgis­tap þessa stærsta flokks íslenskra stjórn­mála er enn meira hjá MMR, en þar mælist hann með 18,1 pró­sent fylgi sem er 7,1 pró­sentu­stigi minna en hann fékk upp úr kjör­köss­unum haustið 2017.

[adspot]Vinstri græn hafa tapað 3,3 pró­sent af kjör­fylgi sínu sam­kvæmt Gallup og standa þar í 13,6 pró­sent fylgi. Hjá MMR er tapið nán­ast tvö­falt meira – 6,7 pró­sentu­stig – og fylgið þar mælist nú 10,6 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist minni hjá Gallup (7,8 pró­sent) en hjá MMR (9,4 pró­sent). Báðar töl­urnar eru þó undir því fylgi sem hann fékk síð­ast þegar það var kosið og 10,7 pró­sent kjós­enda veittu Framsókn atkvæði sitt.

Samfylkingin mælist með meira fylgi

Eini hluti fjór­flokks­ins sem hefur bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu er Sam­fylk­ingin. Kjör­fylgi hennar var 12,1 pró­sent, sem er næst versta nið­ur­staða flokks­ins frá stofnun hans. Sú versta var 2016 þegar Sam­fylk­ingin þurrk­að­ist næstum út af þingi með 5,9 pró­sent atkvæða. Það var ansi langt frá þeim hæðum þegar flokk­ur­inn fékk í kringum 30 pró­sent atkvæða og skil­greindi sig sem annan turn­inn í íslenskum stjórn­málum, á móti Sjálf­stæð­is­flokknum.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur haldið áfram að bragg­ast á þessu kjör­tíma­bili. Í síð­ustu könnun Gallup mæld­ist það 15,8 pró­sent, sem er 3,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í októ­ber 2017. Hjá MMR mælist fylgið minna, eða 13,2 pró­sent, sem er samt 1,1 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk síð­ast þegar kosið var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár