Skattrannsóknarstjóri fékk nýlega gögn frá namibískum yfirvöldum

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur bæst í hóp fjöl­margra ann­arra rann­sókn­ar­að­ila, hér­lendis og erlendis, sem eru að skoða gögn um mögu­leg íslensk lög­brot í Namibíu. Opin­berað var í gær að Samherji liggi undir grun um að hafa framið lög­brot.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Mynd: RÚV/Skjáskot

„Skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafa nýlega borist gögn frá namibískum yfir­völdum. Ekkert frekar er hægt að upp­lýsa um það á þessu stigi, þ. á m. að hverjum þau bein­ast.“

[links]Þetta segir í svari Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort að emb­ætt­inu hafi borist gögn sem tengj­ast meintum skattsvikum íslensks fyr­ir­tækis í Namibíu. Bryndis seg­ist hins vegar ekki geta tjáð sig um ein­stök mál.

Í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik sem sýndur var í gær­kvöldi kom meðal ann­ars fram að vís­bend­ingar væru um að greiðslur upp á að minnsta kosti 1,4 millj­­arða króna frá Sam­herja til hóps sem inn­i­heldur meðal ann­­ars tvo ráð­herra í Namib­­íu, séu mút­u­greiðslur og að við­­skipti fyr­ir­tæk­is­ins í Afr­ík­u­land­inu séu skýr dæmi um spill­ing­u.

Um­fjöll­unin var unnin í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og Wikileaks.

Þar kom einnig fram að rök­studdur grunur sé um stór­fellda skatta­snið­göngu Samherja við að koma ágóð­anum af þeim við­skiptum sem fyr­ir­tækið stund­aði þar undan og til skatta­skjóla. Þá liggur fyrir að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­is­ins, stöðv­aði við­skipti við félög tengd Samherja á Kýpur og Marshall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti voru ekki upp­fyllt. Þau mál eru til skoð­unar hjá norsku efna­hags­brota­deild­inni og deildar emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara þar í landi, sam­kvæmt Stund­inni.

Kjarninn greindi frá því í gær­kvöldi að Jóhannes Stef­áns­son, sem var verk­efna­stjóri Sam­herja í Namibíu fram til árs­ins 2016, og steig fram í Kveik-þætti kvölds­ins, hefði rætt við starfs­menn hér­aðs­sak­sókn­ara í gær.

[adspot]„Við munum taka efni þessa þáttar til skoð­unar og metum það sem þarna kemur fram ásamt öðrum gögnum sem emb­ættið hefur aflað sér til þess að taka afstöðu til þess sem verður gert í fram­hald­in­u,“ sagði Ólafur Þór Hauks­son hér­aðs­sak­sókn­ari í sam­tali við Kjarn­ann aðspurður um hvort að emb­ættið sé með meintar mút­ur­greiðslur og ýmis önnur meint lög­brot, eins pen­inga­þvætti og skatt­svik, Sam­herja í Namibíu og Nor­egi til skoð­un­ar.

Jóhannes við­ur­kenndi í Kveiks-þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­völd í Namib­­íu, hefði fengið laga­­lega stöðu upp­­­ljóstr­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­a.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár