Viðhorf Gissurar lýsi mikilli vanvirðingu gagnvart fólki af erlendum uppruna

Efling krefst þess að félags- og barna­mála­ráð­herra láti ráðu­neyt­is­stjóra axla ábyrgð.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Efling hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna ummæla Gissurar Pét­urs­sonar, ráðu­neyt­is­stjóra félags­mála, sem mætti fyrir hönd félags- og barna­mála­ráð­herra, Ásmundar Einars Daða­sonar, í pall­borð um mál­efni erlends starfs­fólks á Íslandi á Þjóð­­ar­­spegli Háskóla Íslands í síð­ustu viku. Undir yfir­lýs­ing­una skrifa Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins, og Agnieszka Ewa Ziólkowska, vara­for­maður.

Efling for­dæmir í yfir­lýs­ing­unni ummæli og fram­göngu ráðu­neyt­is­stjór­ans og skorar á Ásmund Einar að axla ábyrgð í mál­inu.

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, vitn­aði einnig í ummæli Giss­urar í pontu Alþingis í gær en hann sagði að þau hefðu verið ansi slá­andi. Hann sagði að Gissur hefði meðal ann­ars sagt að hann teldi ekki ástæðu til að fræða inn­flytj­endur um rétt­indi sín á vinnu­mark­aði heldur væri það á ábyrgð inn­flytj­enda að afla sér upp­lýs­inga. Auk þess hefði hann sagt að það þýddi ekk­ert að styrkja íslensku­­kennsl­u þar sem inn­­flytj­endur nenntu ekki að læra tung­u­­mál­ið og enn fremur hefði hann sagt hversu gott það væri að losna við fólk af íslenskum vinnu­mark­aði í þessu sam­hengi.

Í yfir­lýs­ingu Eflingar kemur fram að mál­flutn­ingur þátt­tak­enda hafi almennt verið vand­aður að und­an­skildum þeim sem við­hafður hafi verið af full­trúa rík­is­valds­ins.

[links]Þá hafi Dovelyn Rannveig Mendoza, sér­fræð­ingur í stefnu­mótun á sviði fólks­flutn­inga, velt því fyrir sér eftir ummæli Gissurar hvort þýð­ingin hefði verið rétt og hvar hún væri eig­in­lega stödd.

„Það voru fleiri en Dovelyn sem trúðu vart ummælum og fram­göngu Gissurar á fund­inum. Ástæðan var sú að ummælin voru full­kom­lega úr sam­hengi við grunn­for­sendur umræð­unnar – að fólk af erlendum upp­runa sem starfi á íslenskum vinnu­mark­aði sé fólk, mann­eskjur, sem sátt­máli meiri­hluta okkar sem búum hér um að starf­rækja vel­ferð­ar­þjóð­fé­lag nái til,“ segir í yfir­lýs­ingu Eflingar.

Ummælin vöktu ugg og reiði meðal þátttakenda

Þau við­horf gagn­vart verka­fólki af erlendum upp­runa sem end­ur­spegl­uð­ust í ummæl­unum voru á þessa leið sam­kvæmt Eflingu:

Það er auð­velt að losa sig við þau og það er kostur! Við höfum boðið þeim íslensku­nám­skeið en þetta fólk nennir ekki að læra tungu­málið! Af hverju ættum við að hlúa að þeim – við vitum ekki betur en að það sé á leið úr landi!

Þá kemur fram hjá Eflingu að við­horf sem þessi lýsi mik­illi van­virð­ingu gagn­vart fólki af erlendum upp­runa. Dovelyn Rannveig hafi dregið þá hlið­stæðu og sett í sam­hengi við reynslu sína af mál­efnum erlends verka­fólks í Mið-Aust­ur­löndum að orð ráðu­neyt­is­stjóra líkt­ust við­horfum vald­hafa í Jórdaníu og Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum til erlends verka­fólk.

Gissur ber mikla ábyrgð innan málaflokksins

„Ummælin vöktu ugg og reiði meðal þátt­tak­enda í pall­borði og áhorf­enda. Hein de Haas beindi orðum sínum til ráðu­neyt­is­stjór­ans og und­ir­strik­aði mis­tök ann­arra þjóða sem hafa hunsað og van­rækt erlent verka­fólk sem leggur hönd á plóg á vinnu­mark­aði og sest að í sam­fé­lag­inu.

Því miður hefur Efling þurft að hafa afskipti af alvar­legum málum þar sem brotið hefur verið með grófum og skipu­lögðum hætti á erlendu verka­fólki. Sem ráðu­neyt­is­stjóri félags­mála, og áður for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, ber Gissur mikla ábyrgð innan mála­flokks­ins. Við með­höndlun mál­anna hafa full­trúar Eflingar orðið vitni að ummælum og fram­göngu sem eru í sam­ræmi við ofan­greind ummæli þar sem hann hefur haft vel­ferð brota­þola í flimt­ingum og lagt áherslu á vænt­an­legan brott­flutn­ing verka­manna úr landi fremur en úrlausn og skipu­lega með­ferð brot­anna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Ásmundur Einar illa upplýstur

Jafn­framt vitna þær Sólveig Anna og Agnieszka Ewa í grein Sabine Leskopf, sem birt­ist á Kjarn­anum um helg­ina, en hún fjall­aði um ummæli Gissurar á gagn­rýn­inn hátt.

„Því sem hér hefur verið lýst bendir til van­hæfis núver­andi ráðu­neyt­is­stjóra félags­mála­ráðu­neytis til að starfa að málum er snerta erlent verka­fólk. Ráðherra sem skipað hefur í emb­ættið og ber póli­tíska ábyrgð, Ásmundur Einar Daðason, hefur í til­svörum vísað til þess að hann sé illa upp­lýstur um það sem sagt var í hans umboði á fund­inum,“ segir í yfir­lýs­ingu Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár