Ein bólusetning og búið!

Hvers vegna þarf fólk að fara í bólu­setn­ingu við inflú­ensu á hverju ári?

Margir kann­ast við það að fá bólu­setn­ingu við inflú­ensu á hverju ári. Það kann að hljóma furðu­lega vegna þess að sumar bólu­setn­ingar, eins og misl­inga­bólu­setn­ingu, fáum við þegar við erum unga­börn og hún end­ist ára­tugum saman.

Ástæðan fyrir þessu er að inflú­ensa er í fyrsta lagi sjúk­dómur sem margar veirur valda og í öðru lagi þá breyt­ast þessar veirur mjög hratt. Þess vegna er þörf á nýrri inflú­ensu­bólu­setn­ing á hverju ári.

Það myndi þó óneit­an­lega spara heil­brigð­is­kerf­inu og okkur almenn­ingu heil­mikið (bæði kostnað og fyr­ir­höfn) ef ein bólu­setn­ing gegn inflú­ensu væri nóg. Reyndar hefur verið unnið að því á mörgum stöðum í heim­inum og nýlega skrif­aði rit­stjórn Hvatans grein um bólu­efni sem búið er til úr RNA sam­eindum.

Fleiri hafa þó unnið að þessu göf­uga mark­miði og í lok oktró­ber birt­ist grein í Science þar sem rann­sókn­ar­hópur við Scripps Research Institute, í sam­starfi við fjöl­margar stofn­anir, gat notað bólu­efni á mýs með því frá­bærum árangri.

Prótínið sem bólu­efnið bein­ist að heitir Neuram­ini­dase, og er ensím sem veiran notar til að dreifa sér úr frumum hýs­ils­ins. Þetta sama prótín er lyfja­mark veiru­lyfs­ins Tamiflu sem margir þekkja.

Hingað til hefur fáum dottið í hug að nota þetta prótín sem bólu­efna­mark. Líklega vegna þess að þetta prótín er ekki það fyrsta sem lík­am­inn kemst í snert­ingu við, við veirusmit. Þetta prótín starfar á seinni stigum veiru­sýk­ing­ar­innar. Þegar rann­sókn­ar­hóp­ur­inn próf­aði bólu­efnið á músum sem voru sýktar með 12 mis­mun­andi veiru­stofnum, lifðu allar mýsnar af. Í þess­ari rann­sókn var bólu­efnið notað sem lyfja­gjöf eftir smit og mýsnar lifðu allar af þrátt fyrir að með­höndl­unin ætti sér ekki stað fyrr en 72 klst eftir smit.

Enn sem komið er á eftir að gera frek­ari rann­sóknir til að sýna fram á virkni efn­is­ins í mann­inum. Það má þó leiða að því líkur að hér gæti verið fram­tíðar inflú­ensu­bólu­efni eða veiru­lyf á ferð­inni.

Umfjöllun birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár