Alzheimers og tannholdsbólga

Þekking á Alzheimers sjúk­dómnum hefur fleygt fram vegna fjölda rann­sókna sem unnar eru í kringum hann.

Alzheimers sjúk­dóm­ur­inn hefur verið títt umræddur á Hvatanum

http://www.hvatinn.is/smasjain/alzheimers-laeknad-med-einu-ensimi/

í gegnum tíð­ina. Enda hefur þekk­ingu okkar á sjúk­dómnum fleygt fram vegna fjölda

rann­sókna

sem unnar eru í kringum hann.

Hvað það er sem veldur sjúk­dómnum er ekki full­kom­lega skil­greint, enda koma þar margir þættir að, erfða­fræði­legir sem og umhverf­is­þættir. Sem dæmi virð­ast ákveðnar veiru­sýk­ingar geta ýtt undir myndun sjúk­dóms­ins. Fleiri örverur hafa einnig verið nefndar og má þar nefna bakt­er­í­una Porp­hyromonas gingi­valis.

P. gingi­valis er algeng í munni og talið er að u.þ.b. 1 af hverjum 5 séu með bakt­er­í­una í eðli­legri flóru munns­ins. Þó hún lifi þar í flestum til­fellum í sátt og sam­lynd við umhverfi sitt þá getur hún valdið tann­holds­bólgum.

Leyfar af bakt­er­í­unni hafa fund­ist í tauga­vefs­sýnum úr Alzheimers sjúk­lingum og hefur það leitt vís­inda­hópa til þess að skoða hvort hún geti á ein­hvern hátt stuðlað að myndun sjúk­dóms­ins.

Bakt­er­ían finnst ekki bara í tauga­vefja­sýnum Alzheimers sjúk­linga heldur getur hún einnig ferð­ast frá munni yfir í heil­ann. Þetta kemur fram í rann­sókn sem fjallað var um á árlegri ráð­stefnu American Association of Anatomists, „Experimental Biology“ sem haldin var í Orlando dag­ana 6-9 apríl.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn leit­aði eftir bakt­er­í­unni, þ.e. erfða­efni hennar eða efni sem hún seytir, í heila­sýnum frá látnum Alzheimers sjúk­lingum. Þau not­uð­ust síðan við mýs til að skoða ferða­lag bakt­er­í­unnar. Það var fram­kvæmt með því að koma bakt­er­í­unni fyrir í munni mús­anna og leita svo eftir henni í heila­vef.

Enn á eftir að skil­greina hvaða líf­fræði liggur að baki því að bakt­er­ían ýtir undir Alzheimers. Söku­dólg­ur­inn gæti verið ensím sem bakt­er­ían seytir í miklu magni þegar hún t.d. veldur tann­holds­sýk­ingum. Það gætu verið góðar fréttir því þessi ensím eru heppi­leg lyfja­mörk gegn bakt­er­í­unni.

Þar sem þessi bakt­ería er til­tölu­lega algeng í bakt­er­íuflóru okkar mann­anna þá getur virst erfitt að berj­ast gegn henni og þá mögu­lega Alzheimers. Hér gildir því, eins og alltaf, að hugsa vel um tenn­urnar sínar, tann­bursta og nota tann­þráð, og reyna þannig að halda bakt­er­í­unni innan skyn­sam­legra marka.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár