Blöðrur drepa fjölda sjófugla á ári

Það eru ekki öll dýr jafn heppin og álftin í Garða­bænum sem bjargað var frá Red Bull dósinni.

Í vik­unni fjöll­uðu fjöl­miðlar um álft sem sást í Garða­bænum með Red Bull dós fasta á goggnum. Í þessu til­felli fór allt vel að lokum og tókst starfs­fólki Nátt­úru­fræði­stofn­unar að fjar­lægja dós­ina.

Ekki eru öll dýr jafn heppin og álftin í þessu til­felli. Stað­reyndin er sú að sorp frá mann­fólki veldur fjölda villtra dýra skaða á hverju ári og getur í mörgum til­fellum leit til dauða þeirra. Meðal þeirra dýra eru albatrosar sem eiga þann vafa­sama heiður að vera sá hópur fugla sem inn­byrðir hvað mest af rusli.

Í grein sem birt­ist í tíma­rit­inu Scientific Reports nýlega er fjalla um það hvaða áhrif það hefur á dán­ar­tíðni albatrosa að inn­byrða plast.

Mjúkt plast líklegra til að draga fugla til dauðan

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­hóps­ins voru 20% líkur á dauða fugla ef þeir átu eitt plast­stykki. Ef plast­stykkin voru níu voru lík­urnar 50% en 100% þegar stykkin voru orðin 93.

Við skoðun á dauðum fuglum var ljóst að algeng­ast var að þeir inn­byrtu hart plast. Mjúkt plast hafði aftur á móti verri afleið­ingar fyrir fugl­ana.

Mjúkt plast taldi aðeins um 5% plast­stykkja sem fugl­arnir borð­uðu en olli 40% dauðs­fall­anna. Þar á meðal voru blöðrur versti söku­dólg­ur­inn. Þær leiddu til dauða hjá nær einum af hverjum fimm fugli sem inn­byrti þær.

Það sem gerir mjúkt plast á borð við blöðrur verra til inn­töku en hart plast er sú stað­reynd að það á ekki eins greiða leið í gegnum melt­ing­ar­veg­inn.

Meðal fugl­anna sem skoð­aðir voru var algeng­asta ástæða dauða stífla í melt­ing­ar­vegi. Þar á eftir komu sýk­ingar og önnur vanda­mál tengt stíflum í melt­ing­ar­vegi.

Nauðsynlegt að draga úr plastmengun

Höfundar grein­ar­innar segja þessar nið­ur­stöður skýrt merki um mik­il­vægi þess að draga úr plast­mengun í haf­inu. Sé ekk­ert að gert er hætt við því að við­kvæmar teg­undir, á borð við albatrosa, tap­ist fyrir fullt og allt.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár