Metani breytt í koltvíoxíð

Hvatinn fjallar um líkan af nokk­urs konar met­an­bind­andi loft­ræst­ingu sem vís­inda­hópur við Stanford Uni­versity hefur gert til þess að koma í veg fyrir að metan fari beint út í and­rúms­loftið.

Þær loft­teg­undir sem valda gróð­ur­húsa­á­hrifum eru fjöl­margar og hafa allar mis­mun­andi eig­in­leika. Flest höfum við heyrt talað um koltví­oxíð sem spilar eina stærstu rull­una í þessum efnum. Koltví­oxíð­styrkur í and­rúms­lofti hefur auk­ist gríð­ar­lega á síð­ast­liðnum ára­tugum og er það einn okkar helsti mæli­kvarði á hraða lofts­lags­breyt­inga. Þrátt fyrir alla athygl­ina sem koltví­oxíð fær er það alls ekki sú loft­teg­und sem getur valdið mestum skaða.

Loft­teg­undin metan er nefni­lega mun skæð­ari gróð­ur­húsa­loft­teg­und en koltví­oxíð. Fyrir hverja met­an­sam­eind í loft­hjúpnum eru 380 kotví­oxíðs­sam­eindir, en þrátt fyrir þetta skekkta hlut­fall er koltví­oxíð ábyrgt fyrir 82% gróð­ur­húsa­á­hrifa og metan 18%.

Það er því akkur í því að losa sem minnst af met­ani útí and­rúms­loftið. En það er hæg­ara sagt en gert. Metan mynd­ast t.d. í miklu magni þegar bakt­er­íur brjóta niður mat­vælin okkar og rusla­haugar lands­ins losa heil­mikið metan, sem oftar en ekki er lítið nýtt.

Til að koma í veg fyrir að metanið fara beint upp í and­rúm­loftið hefur vís­inda­hópur við Stanford Uni­versity gert líkan af nokk­urs konar met­an­bind­andi loft­ræst­ingu. Í henni felst að soga inn loft, festa metanið og breyta því svo í koltví­oxíð.

Til að þetta efna­hvarf megi eiga sér stað er loftið sogað inní málm­svampa sem kall­ast zeolite. Zeolite er að mestu sam­sett úr áli, kísil og súr­efni. Inní þessum málm­svömpum eru svo efni eins og kopar og járn sem binda metanið.

Gasið er svo losað sem koltví­oxíð út í and­rúms­loftið. Það orkar tví­mælis að binda metan til að losa það út í formi ann­arrar gróð­ur­húsa­loft­teg­undar en eins og segir hér að ofan er metan samt sem áður mun erf­ið­ari loft­teg­und þegar kemur að gróð­ur­húsa­á­hrifum í sam­an­burði við koltví­oxið.

Þar að auki bindur rann­sókn­ar­hóp­ur­inn vonir við að geta bundið fleiri gróð­ur­húsa­loft­teg­undir á svip­aðan hátt, þar á meðal mögu­lega koltví­oxíð. Sem er þá breytt í aðrar gas­teg­undir sem hafa minni áhrif á and­rúms­loftið.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár