Ketamín og áfengi

Rannsókn sýndi að litlir skammtar af ketamíni geta dregið úr löngun þeirra sem telja sig drekka of mikið, til að halda því áfram.

Drykkja áfengis er stór þáttur í félags­legri hegðun okkar á vest­ur­löndum. Þó að notkun þessa fíkni­efnis sé bæði lög­leg og við­ur­kennd þá er áfengi í stórum og tíðum skömmtum alls ekki hollt.

Flestir vita að ofneysla áfengis er óholl, en margir upp­lifa van­mátt sinn gagn­vart því þegar kemur að félags­legum við­burðum og drekka þess vegna meira eða oftar en þeir myndu mögu­lega kjósa. Það getur verið erfitt að sann­færa heil­ann um að breyta út af van­anum.

Samkvæmt lít­illi rann­sókn sem birt var í Nature communications er hægt að sann­færa heil­ann um að gleðin þarf ekki að búa í ölglas­inu, trixið er bara örlítil lyfja­gjöf.

Í rann­sókn­inni voru þátt­tak­endur 90 karlar og konur sem töldu sig drekka helst til of mikið. Rann­sóknin gekk út á að búa til góða minn­ingu tengda bjór­drykkju í eitt skipti á rann­sókn­ar­stof­unni og reyna síðan að bæla þá minn­ingu. Rann­sak­endur gengu út frá því að ástæða þess að fólkið taldi sig drekka of mikið var vegna gleði­m­inn­ing­anna sem heil­inn tengdi áfeng­is­neysl­una við.

Eftir fyrstu til­raun þar sem bjór­drykkja var tengd við gleði­m­inn­ingar sneri hóp­ur­inn aftur á rann­sókn­ar­stof­una og var þá skipt í þrennt. Einn hluti fékk smá­skammt af ketamíni áður en reynt var að kalla fram gleði­m­inn­ingar með mynd af áfengi. Einn hluti fékk sama skammt af ketamíni áður en reynt var að kalla fram gleði­m­inn­ingar með mynd af app­el­sínusafa og þriðji hluti hóps­ins fékk ekk­ert ketamín en reynt var að kalla fram gleði­m­inn­ingar með mynd af áfengi.

Hópurinn var síðan beð­inn um að meta löngun sína í áfengi viku eftir til­raun­ina. Þar kom í ljós að þeir sem fengu ketamín áður en þeir sáu áfengi voru ólík­legri til að langa í áfengi í sam­an­burði við hóp­inn sem ekki fékk ketamín. Reyndar voru áhrifin enn til staðar 9 mán­uðum síðar þegar hóp­ur­inn var skoð­aður á ný.

Hér er þó um að ræða mjög litla rann­sókn þar sem þátt­tak­endur þurfa sjálfir að leggja mat á eigið ástand. Enginn af þátt­tak­end­unum í rann­sókn­inni var með greindan alkó­hól­isma en að eigin sögn töldu þau sig neyta of mikil áfengis.

Ketamín er deyf­andi lyf sem helst er notað sem róandi lyf eða við miklum sárs­auka. Nýjustu rann­sóknir benda til þess að lyfið geti einnig haft áhrif á þung­lyndi.

Þó hér hafi sést mark­tækur munur milli þeirra sem fengu lyfið (ketamín) og þeirra sem ekki fengu lyf var hóp­ur­inn líka þannig sam­settur að flestir sem tóku þátt höfðu löngun til að minnka drykkju.

Þessar nið­ur­stöður sýna þess vegna kannski helst að mögu­lega er hægt að nota lyf eins og ketamín til að hjálpa til við að minnka drykkju. En ekki er víst að lyfið geri mikið gagn þegar áfeng­is­neyslan er komin á alvar­legt stig.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár