Síðdegisblundur fyrir blóðþrýstinginn

Síð­deg­is­blundur getur gert mikið gagn sam­kvæmt nýlegri rann­sókn sem grískur rann­sókn­ar­hópur mun kynna í kom­andi viku.

Við könn­umst mörg við það að verða sybbin um miðjan dag­inn, oft skömmu eftir hádegið. Víða í heim­inum er þetta svo við­ur­kennt fyr­ir­bæri að nær allir í sam­fé­lag­inu fá sér síð­deg­is­blund um þetta leyti.

Slíkt hefur for­feðrum okkar Íslend­inga lík­lega ekki þótt mjög hag­stætt. Enda ómögu­legt að eyða þeim örfáu birtu­stundum sem við fáum hér á vet­urna í að sofa.

Síð­deg­is­blundur er þó alls ekki alltaf slæm hug­mynd, og raunar mjög góð hug­mynd ef marka má rann­sókn sem grískur rann­sókn­ar­hópur mun kynna á ráð­stefnu ACC (American College of Cardiolgy) í næstu viku.

Samkvæmt þeim nið­ur­stöðum sem teknar eru saman í ágrip­inu fyrir ráð­stefn­una getur síð­deg­is­blundur lækkað blóð­þrýst­ing mark­tækt um 3 – 5 mm Hg. Slík lækkun er í sumum til­fellum það sem lyfja­með­ferð skilar fólki sem grein­ist með of háan blóð­þrýst­ing, svo það munar um minna.

Alls tóku 212 sjálf­boða­liðar þátt í rann­sókn­inni. Þeim var skipt í tvo sam­bæri­lega hópa, annar hóp­ur­inn tók sér síð­deg­is­blund meðan hinn hóp­ur­inn var not­aður sem við­mið­un­ar­hópur til að skoða hvort blund­ur­inn hefði áhrif á líðan þátt­tak­enda.

Sjálf­boða­lið­arnir svör­uðu löngum spurn­inga­lista um heilsu sína og líðan ásamt því að skil­greina lífs­stíl sinn, matar­æði og hreyf­ingu fyrir rann­sak­endum. Til að fylgj­ast með blóð­þrýst­ingi þátt­tak­enda voru þeir látnir ganga með sírita, svo mæl­ingin var ekki ein­ungis tekin einu sinni á dag heldur með reglu­legu milli­bili.

Helstu nið­ur­stöð­urnar voru sem fyrr segir að síð­deg­is­blundur, sem varði að með­al­tali í 50 mín­útur lækk­aði blóð­þrýst­ing þátt­tak­enda. Munurinn á hóp­unum var mark­tækur um að með­al­tali 3-5 mm Hg.

Enn á eftir að stað­festa nið­ur­stöð­urnar með því að end­ur­taka rann­sókn­ina í nýjum og jafn­vel stærri hópi. Þangað til, getur varla skaðað að leggja sig í um það bil hálf­tíma á dag, hafi maður á annað borð tæki­færi til þess.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár