Bólusótt í hættu

Er rétt­læt­an­legt að geyma veirur eins og bólu­sótt, sem geta valdið jafn­miklum mann­skaða og raun ber vitni?

Það kann­ast senni­lega ekki margir við smit­sjúk­dóm­inn bólu­sótt lengur. Honum var nefni­lega útrýmt árið 1979, eftir mjög árang­urs­ríka bólu­setn­inga­her­ferð gegn honum.

Bólusótt var skæður veiru­sjúk­dómur sem smit­að­ist mjög auð­veld­lega manna á milli. Veiran (Variola virus) virð­ist hafa fylgt mann­inum í margar aldir og nokkrum sinnum komu upp far­aldrar m.a. hér á landi, sem eins og ann­ars staðar leiddu til dauða u.þ.b. þriðj­ungs þeirra sem smit­uð­ust.

Bólusótt á reyndar heið­ur­inn af þróun bólu­efna, en þaðan er orðið bólu­efni einmitt komið. Það var enski lækn­ir­inn Edward Jenner sem upp­götv­aði gildi þess að bólu­setja fólk með vessa úr kúa­bólu, náskyldri veiru um alda­mótin 1700-1800.

Það var þó ekki fyrr en á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar sem Alþjóð­ar­heil­brigð­is­mála­stofn­unin lagð­ist í aðgerðir gagn­gert til að vinna bug á þess­ari skæðu veiru.

Síðasta skráða til­fellið af bólu­sótt­arsmiti átti sér stað í Sómalíu árið 1977. Árið 1979 dó svo ung bresk kona eftir að hafa kom­ist í snert­ingu við veiruna á rann­sókn­ar­stofu. Eftir það slys var rann­sókn­ar­stofum gert að eyða bólu­sótt­ar­veirum sem höfðu verið not­aðar til rann­sókna. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin lýsti síðan yfir útrým­ingu veirunnar.

Það eru þó tvær rann­sókn­ar­stofur sem vitað er að bólu­sótt­ar­veiran lifir enn. Önnur þeirra er stað­sett í Banda­ríkj­unum og hin í Rúss­landi. Veiran gengur því ekki manna á milli en henni er haldið við af vís­inda­mönnum sem freista þess að nota hana til rann­sókna.

Reyndar er engin til­viljun að rann­sókn­ar­stof­urnar, sem hvor­ugar hafa lýst yfir vilja til að eyða veirunni, eru stað­settar í þessum tveimur löndum. Sagan segir að lengi hafi verið unnið að því að koma síð­ustu bólu­sótt­ar­veir­unum end­an­lega fyrir katt­ar­nef, en póli­tík hafi staðið því fyrir dyrum.

Önnur rann­sókn­ar­stof­anna komst í frétt­irnar um dag­inn, þegar eldur komst upp í henni. Vegna við­halds á bygg­ingum rann­sókna­set­urs veiru­rann­sókna og líf­tækni í Novosi­birsk, í Rúss­landi varð spreng­ing sem olli því að eldur braust út.

Þó spreng­ingin hafi átt sér stað fjarri bólu­sóttar veirunni og eld­ur­inn hafi fljót­lega verið slökktur brut­ust út miklar umræður, t.a.m. á twitter varð­andi öryggi heims­byggð­ar­innar. Umræðan var raunar til­efn­is­laus því veiran hefði aldrei lifað af bruna. Til þess að bólu­sótt­ar­far­aldur bryt­ist út þyrfti ann­ars konar slys t.d. óvar­lega með­höndlun vís­inda­manna á veirunni.

Það er ekki þar með sagt að umræðan um öryggi okkar gegn bólu­sótt sé óþörf. Fréttir sem þessar vekja okkur til umhugs­unar á hvort rétt­læt­an­legt sé að geyma veirur eins og bólu­sótt, sem geta valdið jafn­miklum mann­skaða og raun ber vitni. Á sínum tíma drap veiran nefni­lega þriðj­ung þeirra sem hún smit­aði.

Á sama tíma er saga bólu­sótt­ar­innar vitn­is­burður um frá­bæran árangur bólu­setn­inga. Við þurfum ekki annað en létta inter­net leit til að sjá að bólu­sótt er ein af þeim "líf­verum" sem við fögnum útrým­ingu á.

Umfjöll­unin birt­ist líka á Hvatinn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár