Vill gera bólusetningar barna að skilyrði fyrir inntöku í leikskóla

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill að bólu­setn­ingar verði gerðar að skil­yrði við inn­töku í leik­skóla. Bólu­setn­ingar yngstu árgang­anna voru lak­ari síð­ustu tvö árin en áður hefur verið sam­kvæmt nýrri skýrslu sótt­varn­ar­læknis.

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill að bólu­setn­ingar verði gerðar að skil­yrði við inn­töku í leik­skóla Reykja­víkur. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Hildur að hún telji rétt að Reykja­vík­ur­borg geri almennar bólu­setn­ingar að skil­yrði fyrir inn­töku, með ein­staka und­an­tekn­ingum og segir margar Evr­ópu­þjóðir hafa brugðið á sama ráð.

Hildur hyggst flytja til­lög­una í borg­ar­stjórn þar sem hún telji ástæðu til að bregð­ast við hættu sem skap­ist af óvið­un­andi þát­töku í bólu­setn­ingum á Íslandi að mati sótt­varn­ar­læknis. „Minnki þátt­taka enn frekar má búast við að hér­lendis fari að breið­ast út sjúk­dómar sem ekki hafa sést um ára­bil. Misl­ingar eru sér­stakt áhyggju­efni en sam­kvæmt WHO hafa misl­ingar náð gíf­ur­legri útbreiðslu í Evrópu síð­ustu tvö ár,“ segir Hildur.

Þetta hyggst borg­ar­full­trú­inn gera þrátt fyrir að eigin sögn vera ekki fylgj­andi boðum og bönnum.

Sótt­varn­ar­læknir gaf fyrir helgi út skýrslu um þátt­töku í almennum bólu­setn­ingum barna á Íslandi árið 2017. Þar kom fram að þátt­taka á árinu 2017 var svipuð og á árinu 2016, þar sem þátt­taka yngstu árgang­anna í bólu­setn­ingum var lak­ari en áður hefur verið.

„Ef þátt­taka minnkar enn frekar má búast við að hér á landi fari að sjást sjúk­dómar sem ekki hafa sést um ára­bil. Sér­stak­lega eru misl­ingar áhyggju­efni en þeir hafa nú geisað af krafti víða í Evrópu um nokk­urra ára skeið. Mikil flug­um­ferð um Ísland gerir það að verkum að sótt­varna­læknir fær reglu­lega spurnir af því að ein­stak­lingur með smit­andi misl­inga hafi verið í flug­vél með við­komu á Íslandi. Með­göngu­tími sjúk­dóms­ins er um 10-14 dagar en getur verið allt að 3 vikur og með dvín­andi þátt­töku yngstu árgang­anna í bólu­setn­ingum er hætt við að far­aldur geti komið upp ef smit berst inn á leik­skóla hér á landi,“ segir í umfjöllun Land­læknis um skýrsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bólusetning

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár