Grenningarlyf sem virkar best til lengri tíma

Samkvæmt nýrri rann­sókn gæti gamla megr­un­ar­lyfið phentermine nú fengið hlut­verk sem lang­tíma lyf við offitu.

Offita er vax­andi vanda­mál í vest­rænum ríkjum þar sem mikil þyngd getur aukið lík­urnar á líff­stílstengdum sjúk­dómum eins og syk­ur­sýki týpu tvö eða hjarta og æða­sjúk­dómum. Offita getur einnig valdið álagi á stoð­kerfi þeirra sem við hana glíma, svo það er til mik­ils að vinna að hjálpa fólki með offitu.

Í dag er offita álit­inn lang­tíma­sjúk­dómur og við vitum að megr­un­ar­kúrar eru ekki þær töfra­lausnir sem aug­lýs­ingar vilja meina. Lífstíls­breyt­ingar á borð við breytt mat­ar­ræði og hreyf­ingu eru alltaf besti kost­ur­inn, en í mörgum til­fellum duga þau ekki til.

Því hafa verið þróuð fjöl­mörg lyf sem geta hjálpað fólki í ofþyngd til að ná stjórn á sínum vanda. Oft eru lyfin þó dýr eða í þróun svo lítil reynsla hefur kom­ist á þau.

Eitt gam­alt megr­un­ar­lyf, sem kall­ast phentermine, hefur nú mögu­lega fengið breyttan til­gang en lyfið hefur hingað til ein­ungis verið notað í skamman tíma. Þegar lyf­inu er ávísað á sjúk­linga er það yfir­leitt ein­ungis notað í 12 vikur, þar sem lang­tíma notkun er talin geta haft skað­leg áhrif.

Samkvæmt rann­sókn sem unnin var við Wake Forest Baptist Medical Center gæti lyfið nú fengið hlut­verk sem lang­tíma lyf við offitu. Í rann­sókn­inni skoð­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn heilsu­far sjúk­linga sem höfðu fengið lyf­inu ávísað til lengri tíma. Þau mátu áhrif lyfs­ins á ýmsa hjarta­tengda þætti, svo sem blóð­þrýst­ing og áhætt­una á því að fá hjarta­á­fall. Lyfið er nefni­lega örvandi og því ekki endi­lega hættu­laust að taka það, sé ekki ástæða til.

Helstu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru að þeir sjúk­lingar sem tóku lyfið í tvö ár sáu bestan árangur við þyngd­ar­tap. Þeir ein­stak­lingar sem tóku lyfið í skemmri tíma sáu einnig árangur en þegar lyfja­töku var hætt var hætta á þyngd­ar­aukn­ingu á ný. Þegar heilsu­far þátt­tak­enda var metið í kjöl­far lang­tíma inn­töku lyfs­ins kom í ljós að engin aukin áhætta á hækk­andi blóð­þrýst­ingi eða hjarta­á­föllum, svo dæmi séu nefnd, fylgdi inn­töku lyfs­ins.

Enn sem komið er hefur lyfið ekki verið sam­þykkt til lang­tíma notk­unar. Fólk ætti því alls ekki að nota það öðru­vísi en læknir ráð­leggur notkun á því. Þessi rann­sókn bendir þó til þess að þarna sé á ferð­inni mögu­leg lausn til að bæta líf og heilsu þeirra sem glíma við offitu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár