Fasta hvetur myndun andoxunarefna

Er eitt­hvað vit í því að fasta? Mögulega.

Mataræði sem felur í sér föstu í ákveð­inn tíma hafa notið vax­andi vin­sælda. Má þá nefna matar­æði sem felur í sér föstu í eina viku, nokkra daga eða jafn­vel bara ein­hverja klukku­tíma yfir sól­ar­hring­inn.

Fjöl­margar rann­sóknir hafa verið fram­kvæmdar, í frumu­línum og dýrum, sem sýna að fasta getur haft jákvæð áhrif á líf­eðl­is­fræði­lega ferla. Sem dæmi hafa rann­sóknir sýnt fram á að fasta hægir á öldrun.

Nýlega birti rann­sókn­ar­hópur við Okinawa Institute of Science and Technology í Japan, grein í Scientific Reports þar sem þau skoða um 130 mis­mun­andi nið­ur­brots­efni í lík­am­anum. Rann­sóknin er fram­kvæmd á litlum hópi, fjórum ein­stak­lingum, meðan þau fasta í allt að 58 klst.

Rann­sóknin fer þannig fram að sjálf­boða­lið­arnir eru látnir fasta og blóðprufur eru svo teknar úr þeim eftir 10 klukku­stundir 34 klukku­stundir og í lokin eftir 58 klukku­stundir. Blóðpruf­urnar eru svo not­aðar til að skoða alls konar efni sem mynd­ast í lík­am­anum vegna mis­mun­andi ferla í fru­munum.

Sam­an­tekið sá hóp­ur­inn aukn­ingu í 44 af þeim efnum sem þau skoð­uðu. Af þessum 44 hefur 14 verið lýst áður. Það sem vakti sér­staka athygli hóps­ins var aukn­ing ýmissa andox­un­ar­efna meðan á föst­unni stóð og vís­bend­ingar um aukna hvat­bera virkni.

Aukin hvat­bera­virkni er mjög áhuga­verð þar sem slíkt bendir til þess að þau nær­ing­ar­efni sem eru til staðar eru nýtt til hins ýtrasta til að mynda ATP, orku­ein­ingar frumunnar.

Hér er að sjálf­sögðu um mjög litla rann­sókn að ræða, enda aðeins fjórir ein­stak­lingar skoð­aðir. Þrátt fyrir það gefur hún góðar vís­bend­ingar um hvaða ferlar fara í gang þegar föstur eiga sér stað.

Með því að nota lít­inn hóp til að skima yfir breitt svið efna­hvarfa er auð­veld­ara að þrengja leit­ina síðar meira með stærri hóp af sjálf­boða­liðum.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár