Þingmenn fjögurra flokka fara fram á fullan aðskilnað ríkis og kirkju

Lögð hefur verið fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að frum­varp um aðskilnað ríkis og kirkju verði lagt fram snemma árs 2021 og að sá aðskiln­aður verði gengin í gegn í síð­asta lagi 2034.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn fjög­urra flokka, þriggja úr stjórn­ar­and­stöðu og eins sem situr í rík­is­stjórn, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að fela for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra að leggja fram frum­vörp um ann­ars vegar fullan, laga­legan og fjár­hags­legan aðskilnað ríkis og kirkju og hins vegar um jafn­ræði allra trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga í sam­skiptum og skil­greindum verk­efnum þeirra við og fyrir ríki, sveit­ar­fé­lög og aðra opin­bera aðila.

[links]Samkvæmt til­lög­unni á að leggja frum­vörpin fram í síð­asta lagi á vor­þingi 2021, því síð­asta áður en að næstu þing­kosn­ingar verða haldnar miðað við áætlun. Þau eiga að kveða á um að fullur aðskiln­aður verði milli ríkis og kirkju í síð­asta lagi í árs­lok 2034.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar. Aðrir sem eru skrif­aðir fyrir því eru Hanna Katrín Frið­riks­son, Þor­gerður K. Gunn­ars­dóttir, Þor­steinn Víglunds­son, Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunn­ars­son, Helga Vala Helga­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Guð­mundur Andri Thorsson og Steinunn Þóra Árna­dóttir.

Því eru flutn­ings­menn­irnir úr Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn en einnig eru tveir flutn­ings­manna, þau Andrés Ingi og Steinunn Þóra, úr flokki for­sæt­is­ráð­herra, Vinstri grænum.

Trúfrelsi en eitt félag nýtur algerrar sérstöðu

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að á síð­ustu ára­tugum hafi orðið miklar breyt­ingar á við­horfi til trúar og hlut­verki hennar í nútíma­sam­fé­lagi, ekki síst gagn­vart tengslum við rík­is­valdið og vegna jafn­ræði milli trú­fé­laga, lífs­skoð­un­ar­fé­laga og þeirra sem kjósa að standa utan slíkra félaga. „Á Íslandi er trú­frelsi. Hitt blasir við að eitt trú­fé­lag nýtur algerrar sér­stöðu. Hin evang­el­íska lút­erska kirkja skal vera þjóð­kirkja á Íslandi og skal rík­is­valdið að því leyti styðja hana og vernda. Breyta má þessu með lögum.“

Bent er á að aðild að þjóð­kirkj­unni hafi tekið miklum breyt­ingum á síð­ustu öld og enn meiri það sem af er þess­ari öld. Fátt bendi til að sú þróun muni breyt­ast á kom­andi ára­tugum. „Nálægt 100% lands­manna voru skráðir í þjóð­kirkj­una á sínum tíma sú staða er nú en gjör­breytt. Samkvæmt gögnum Hag­stof­unnar voru um 90% lands­manna í þjóð­kirkj­unni árið 1998 en 65% um næst­liðin ára­mót. Þá hefur fólki innan þjóð­kirkj­unnar bein­línis fækkað allar götur frá árinu 2010. Árið 1998 voru 244.893 skráðir í þjóð­kirkj­una en 232.591 um síð­ustu ára­mót. Utan þjóð­kirkj­unnar voru á sama tíma 124.400 manns.“

Þjóðkirkjan best í stakk búin til að standa ein

Þjóð­kirkjan er samt sem áður stærsta ein­staka trú­fé­lag lands­ins og í grein­ar­gerð­inni segir að hún ætti að vera best í stakk búin allra þeirra til þess að standa á eigin fótum af öllum trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum. „Má ætla að þjóð­kirkjan, ekki síður en ríkið, hefði hag af laga­legum og fjár­hags­legum aðskiln­aði þess­ara stofn­ana.“

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan kallar á að lagt verði fram laga­frum­varp sem feli í sér fullan aðskilnað ríkis og kirkju að lögum bæði að formi, efni og fjár­hag. „Í því felst að búa þarf þannig um hnúta að slitin verði öll tengsl sem byggj­ast á gild­andi lögum og sér­stökum samn­ingum, þ.m.t. sér­á­kvæði stjórn­skip­un­ar­laga um þjóð­kirkj­una sem tryggir henni sér­stöðu umfram önnur trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög. Skal samið um end­an­legt upp­gjör allra samn­inga þannig að því upp­gjöri ljúki eigi síðar en árið 2034.“

Þá er kallað eftir því að lagt verði fram frum­varp að heild­stæðri lög­gjöf um öll trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög þar sem settar verði almennar reglur um starf­semi þeirra og eftir atvikum hvort ríkið eigi að hafa milli­göngu um inn­heimtu gjalda eins og nú tíðkast eða hvort að slík inn­heimta verði alfarið í höndum félag­anna sjálfra án aðkomu rík­is­ins. „Í frum­varp­inu verði einnig ákvæði um hvernig skuli staðið að samn­ingum við félögin sé talin þörf á að fela þeim til­tekin sam­fé­lags­leg verk­efni. Um þau verði þá gerðir sér­stakir tíma­bundnir þjón­ustu­samn­ingar og gætt fulls jafn­ræðis milli þeirra félaga sem vilja taka að sér slík verk­efni og upp­fylla almenn skil­yrði um fag­lega getu til þess að sinna þeim. Frumvarp af þessu tagi verði afgreitt á kjör­tíma­bil­inu. Í vilja­yf­ir­lýs­ingu sem fylgdi við­bót­ar­samn­ingi íslenska rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar um end­ur­skoðun á sam­komu­lagi um kirkju­jarðir er m.a. gert ráð fyrir end­ur­skoðun og brott­falli ýmissa laga sem varða þessi mál­efni og getur það einmitt nýst vel við að setja heild­stæða lög­gjöf um öll trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kirkjan

Fréttir

Prestar fá ekki að heyra undir kjara­ráð til fram­búðar

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta um að heyra áfram undir kjara­ráð til fram­búðar. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa undir. Lögin hafa nú verið afgreidd úr nefnd­inni til ann­arrar umræðu,...
Fréttir

Prestar vilja ekki fara undan kjara­ráði

Presta­fé­lag Íslands vill ekki að prestar, pró­fastar og bisk­upar verði færðir undan ákvörð­unum kjara­ráðs, líkt og lagt er til í frum­varpi sem for­menn allra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn Presta­fé­lags­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar. Samkvæmt frum­varp­inu til breyt­inga á lögum um kjara­ráð eru fjöl­margar stéttir, sem nú heyra undir ráðið, færðar undan því. Ef...
Fréttirkirkjan

Kirkju­ráð vill fá full sókn­ar­gjöld frá rík­inu

Kirkju­ráð vill að ríkið hætti að taka til sín hluta af inn­heimtum sókn­ar­gjöldum, eins og gert hefur verið frá hruni, og að kirkjan fái sókn­ar­gjöld að fullu greidd frá og með næsta ári. Ráðið hefur sent umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis auk þess sem bréfið þar sem þessa er kraf­ist var sent til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár