Kirkjuráð vill fá full sóknargjöld frá ríkinu

Kirkju­ráð vill að ríkið hætti að taka til sín hluta af inn­heimtum sókn­ar­gjöldum, eins og gert hefur verið frá hruni, og að kirkjan fái sókn­ar­gjöld að fullu greidd frá og með næsta ári. Ráðið hefur sent umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis auk þess sem bréfið þar sem þessa er kraf­ist var sent til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber.

„Í ljósi afkomu rík­is­sjóðs standa engin rök til þess lengur að inn­heimtum sókn­ar­gjöldum sé ekki skilað að fullu til rétt­hafa sinna. Rík­is­sjóður hefur frá hruni fjár­mála­kerf­is­ins í októ­ber 2008 haldið eftir hluta af fé því sem hann hefur inn­heimt fyrir rétt­hafa sókn­ar­gjalda,“ segir í bréf­inu. Árlega hafi verið gefin út yfir­lýs­ing um að fjár­mál rík­is­ins hafi kom­ist í upp­nám og ríkt hafi neyð­ar­á­stand sem heim­ili rík­inu að taka til sín fjár­muni sem það inn­heimtir fyrir aðra.

„Engin leið er til að rétt­læta þetta lengur og því getur kirkju­ráð ekki fall­ist á að lögum nr. 91/1987 um sókn­ar­gjöld o.fl. verði breytt svo sem gert hefur verið til þessa með lögum um ráð­staf­anir í rík­is­fjár­málum.“ Kirkju­ráð gerir þá kröfu að ákvæðum fjár­laga­frum­varps­ins verði hagað í sam­ræmi við þetta, segir í bréf­inu að lokum.

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem nú er til með­ferðar í þing­inu kemur fram að við­ræður standi yfir milli ríkis og kirkju um fjár­hags­leg sam­skipti þeirra á milli. „Vilji rík­is­ins stendur til að ein­falda aðkomu rík­is­ins að fjár­veit­ingum og auka sjálf­stæði Þjóð­kirkj­unnar til ráð­stöf­unar fjár­muna.“ Þá er bent á það að miklar breyt­ingar hafa orðið á trú­málum á und­an­förnum árum. Árið 2008 hafi verið 27 trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög skráð en á þessu ári séu þau 44. Mesta breyt­ingin á skrán­ingum fólks hefur verið úr kirkj­unni, en tæp­lega fimmtán þús­und manns hafa skráð sig úr kirkj­unni á þessum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kirkjan

Fréttir

Prestar fá ekki að heyra undir kjara­ráð til fram­búðar

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta um að heyra áfram undir kjara­ráð til fram­búðar. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa undir. Lögin hafa nú verið afgreidd úr nefnd­inni til ann­arrar umræðu,...
Fréttir

Prestar vilja ekki fara undan kjara­ráði

Presta­fé­lag Íslands vill ekki að prestar, pró­fastar og bisk­upar verði færðir undan ákvörð­unum kjara­ráðs, líkt og lagt er til í frum­varpi sem for­menn allra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn Presta­fé­lags­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar. Samkvæmt frum­varp­inu til breyt­inga á lögum um kjara­ráð eru fjöl­margar stéttir, sem nú heyra undir ráðið, færðar undan því. Ef...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár