Prestar vilja ekki fara undan kjararáði

Presta­fé­lag Íslands vill ekki að prestar, pró­fastar og bisk­upar verði færðir undan ákvörð­unum kjara­ráðs, líkt og lagt er til í frum­varpi sem for­menn allra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn Presta­fé­lags­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar.

Samkvæmt frum­varp­inu til breyt­inga á lögum um kjara­ráð eru fjöl­margar stéttir, sem nú heyra undir ráðið, færðar undan því. Ef frum­varpið verður að lögum mun verk­efni kjara­ráðs verða að ákveða laun og starfs­kjör þjóð­kjör­inna manna, dóm­ara, sak­sókn­ara, ráð­herra, ráðu­neyt­is­stjóra og þeirra skrif­stofu­stjóra sem heyra undir ráð­herra sem fer með starfs­manna­mál rík­is­ins og fara með fyr­ir­svar fyrir hönd ráð­herra við gerð kjara­samn­inga. Þá mun kjara­ráð áfram ákvarða laun for­seta­rit­ara, seðla­banka­stjóra, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og rík­is­sátta­semj­ara.

Til bráða­birgða verða hins vegar laun og starfs­kjör bisk­ups, vígslu­bisk­upa, pró­fasta og presta þjóð­kirkj­unnar áfram ákvörðuð af kjara­ráði, „þar til sam­komu­lag hefur náðst við þjóð­kirkj­una um nýtt launa­fyr­ir­komu­lag.“

Prestar eru ósáttir við þetta og vilja að þeirra kjör verði áfram ákvörðuð af kjara­ráði. Þeir segja að for­send­urnar sem gefnar séu fyrir bráða­birgða­á­kvæð­inu séu ekki fyrir hendi. „Það er mjög mik­il­vægt, ekki síst vegna hags­muna Rík­is­sjóðs, að launa­á­kvarð­anir vegna presta, pró­fasta og bisk­upa verði teknar af óvil­höllum aðila í ljósi kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins frá 1997 og lögum sam­kvæmt. Ekki er neitt sem bendir til þess að breyt­ing verði gerð á þeim ákvæðum og því sam­komu­lagi á næstu miss­erum,“ segir meðal ann­ars í umsögn presta. Ef breyt­ing verði gerð á sam­komu­lagi rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar um þessi mál verði hægur vandi að færa ákvarð­anir um laun presta frá kjara­ráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kirkjan

Fréttir

Prestar fá ekki að heyra undir kjara­ráð til fram­búðar

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta um að heyra áfram undir kjara­ráð til fram­búðar. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa undir. Lögin hafa nú verið afgreidd úr nefnd­inni til ann­arrar umræðu,...
Fréttirkirkjan

Kirkju­ráð vill fá full sókn­ar­gjöld frá rík­inu

Kirkju­ráð vill að ríkið hætti að taka til sín hluta af inn­heimtum sókn­ar­gjöldum, eins og gert hefur verið frá hruni, og að kirkjan fái sókn­ar­gjöld að fullu greidd frá og með næsta ári. Ráðið hefur sent umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis auk þess sem bréfið þar sem þessa er kraf­ist var sent til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár