Um 15 prósent ánægð með störf biskups Íslands og þriðjungur treystir þjóðkirkjunni

Meiri­hluti lands­manna vill aðskilnað ríkis og kirkju. Stuðn­ingur við slíkt er mestur á meðal yngri hluta þjóð­ar­innar en fólk yfir sex­tugu er á móti. Kjós­endur allra stjórn­mála­flokka nema tveggja eru í meira mæli hlynntir en and­vígi aðskiln­aði.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ásamt Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, ásamt Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Einungis 15 pró­sent lands­manna eru ánægð með störf Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur, bisk­ups Íslands, sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er svipað hlut­fall og þegar Gallup spurði um ánægju með störf hennar árið 2018, þegar hún mæld­ist 14 pró­sent, en minna en þegar spurt var síðar árið 2019, og ánægjan mæld­ist 19 pró­sent.

Til sam­an­burðar mæld­ist ánægja með störf Karl Sig­ur­björns­sonar, sem var biskup á undan Agnesi 85 pró­sent árið 1998. Þegar hann lét af emb­ætti árið 2012 var ánægjan þó komin niður í 19 pró­sent. Vin­sældir Agnesar hafa dalað jafn og þétt frá því að hún tók við sem biskup, en þá mæld­ust vin­sældir hennar 45 pró­sent.

Mark­tækur munur er á ánægju með Agnesi eftir því hvaða flokk svar­endur kjósa. Einungis 4 til 8 pró­sent kjós­enda Pírata, Sam­fylk­ingar og Sós­í­alista­flokks eru ánægð með störf hennar en mest ánægja er á meðal kjós­enda Vinstri grænna (24 pró­sent) og Mið­flokks­ins (20 pró­sent). Kjós­endur Flokks fólks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks eru þar skammt undan.

Meirihluti vill aðskilnað

Þriðj­ungur lands­manna, alls 33 pró­sent, segj­ast treysta þjóð­kirkj­unni en 36 pró­sent treysta henni ekki. Þetta eru svipuð hlut­föll og hafa verið á und­an­förnum árum þegar spurt hefur verið um traust til kirkj­unnar.

Alls 46 til 48 pró­sent kjós­enda Mið­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Flokks fólks­ins segj­ast treysta kirkj­unni en ein­ungis 10 til 20 pró­sent kjós­enda Pírata, Sós­í­alista­flokks og Pírata. Á meðal tveggja síð­ast­nefndu flokk­anna er van­traust gagn­vart kirkj­unni sér­stak­lega mikið, en 63 til 65 pró­sent kjós­enda þeirra segj­ast ekki treysta þjóð­kirkj­unni.

[adspot]Alls segj­ast 51 pró­sent lands­manna að þeir vilji aðskilnað ríkis og kirkju. Hlut­fallið lækkar lít­il­lega frá árinu 2019 þegar 55 pró­sent sögð­ust á þeirri skoðun en það hefur verið yfir 50 pró­sent í næstum árlegum könn­unum Gallup frá árinu 2007.

Í þjóð­ar­púls­inum sést að fólk undir fer­tugu er helst hlynnt aðskiln­aði. Hjá yngsta hópnum, 18 til 29 ára, eru rúm­lega tveir af hverjum þremur, alls 67 pró­sent, á þeirri skoðun að skilja eigi á milli ríkis og kirkju. Hjá hópnum sem er þar fyrir ofan, 30 til 39 ára, er stuðn­ingur við aðskilnað enn meiri, eða 71 pró­sent. Eini ald­urs­hóp­ur­inn sem er í meira mæli and­vígur aðskiln­aði ríkis og kirkju en hlynntur eru lands­menn sem eru 60 ára og eldri. Innan þess hóps eru 31 pró­sent fylgj­andi aðskiln­aði en 38 pró­sent and­víg.

Kjós­endur tveggja stjórn­mála­flokka, Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins, eru í meira mæli and­víg en fylgj­andi aðskiln­aði ríkis og kirkju. Kjós­endur allra ann­arra flokka sem voru í fram­boði til þings í sept­em­ber eru hins vegar að meiri­hluta hlynntir aðskiln­aði, þar með taldir kjós­endur allra stjórn­ar­flokk­anna.

Fækkað hratt í þjóðkirkjunni

Alls voru 229.623 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una þann 1. októ­ber, sam­kvæmt tölum frá Þjóð­skrá Íslands. Þar segir að þessi hópur sé 61,3 pró­sent íbúa lands­ins og þeir sam­kvæmt því rúm­lega 372 þús­und tals­ins. Það þýðir að tæp­lega 143 þús­und íbúar standi utan þjóð­kirkj­unnar nú um stund­ir, og eru þá í öðrum trú­fé­lögum eða standa alveg utan trú­fé­laga. Þeir hafa aldrei verið fleiri.

Um síð­ustu alda­mót stóðu alls tæp­lega 31 þús­und manns utan þjóð­kirkj­unn­ar. Þeim sem kjósa að gera það hefur því fjölgað um 112 þús­und á rúmum tutt­ugu árum. Til að setja þá tölu í sam­hengi þá eru það fleiri en búa sam­an­lagt í Kópa­vogi, Hafn­ar­firði, Garða­bæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi sem stend­ur, en íbúar þess­ara fimm sveit­ar­fé­laga eru sam­tals tæp­lega 104 þús­und tals­ins.

Þeim lands­­mönnum sem eru í þjóð­­kirkj­unni hefur fækkað hratt á síð­ast­liðnum árum. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra met­­­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­­­menn í henn­i.

Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú, líkt og áður sagði, 229.623. Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­­­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 23.446 frá árs­­­­byrjun 2009.

Á sama tíma, tæpum 13 árum, hefur íbúum lands­ins fjölgað um tæp­lega 53 þús­und. Því hafa 76.340 íbúðar lands­ins valið að ganga úr, eða skrá sig ekki í, þjóð­kirkj­una frá byrjun árs 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kirkjan

Fréttir

Prestar fá ekki að heyra undir kjara­ráð til fram­búðar

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta um að heyra áfram undir kjara­ráð til fram­búðar. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa undir. Lögin hafa nú verið afgreidd úr nefnd­inni til ann­arrar umræðu,...
Fréttir

Prestar vilja ekki fara undan kjara­ráði

Presta­fé­lag Íslands vill ekki að prestar, pró­fastar og bisk­upar verði færðir undan ákvörð­unum kjara­ráðs, líkt og lagt er til í frum­varpi sem for­menn allra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn Presta­fé­lags­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar. Samkvæmt frum­varp­inu til breyt­inga á lögum um kjara­ráð eru fjöl­margar stéttir, sem nú heyra undir ráðið, færðar undan því. Ef...
Fréttirkirkjan

Kirkju­ráð vill fá full sókn­ar­gjöld frá rík­inu

Kirkju­ráð vill að ríkið hætti að taka til sín hluta af inn­heimtum sókn­ar­gjöldum, eins og gert hefur verið frá hruni, og að kirkjan fái sókn­ar­gjöld að fullu greidd frá og með næsta ári. Ráðið hefur sent umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis auk þess sem bréfið þar sem þessa er kraf­ist var sent til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár