Möguleikar kirkjunar til hagræðingar ekki fullreyndir

Bisk­ups­stofa og Kirkju­ráð vilja að fjár­veit­ingar verði reikn­aðar miðað við sömu for­sendur og gert var fyrir hrun.

Fjárveitingar til kirkjunar hafa verið skertar með lagasetningum og samkomulagi frá hruni.
Fjár­veit­ingar til kirkj­unar hafa verið skertar með laga­setn­ingum og sam­komu­lagi frá hruni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra telur að íslenska þjóð­kirkjan hafi ekki full­reynt allar hag­ræð­ing­ar­mögu­leika sína og að dóms­mála­ráðu­neytið sé til­búið að aðstoða kirkj­una við þær hag­ræð­ingar. Þetta segir ráð­herra í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort verða eigi við kröfu bisk­ups­stofu og kirkju­ráðs um auknar fjár­veit­ingar til þjóð­kirkj­unnar.

Í umsögn bisk­ups­stofu og kirkju­ráðs við fjár­hags­á­ætlun rík­is­ins fyrir árin 2018-2022 er talið að fjár­veit­ingar til kirkj­unnar séu van­reikn­aðar um rúm­lega einn og hálfan millj­arð. Kirkjan vill að ríkið standi við hið svo­kall­aða kirkju­jarða­sam­komu­lag sem gert var árið 1997. Í því sam­komu­lagi felst að Þjóð­kirkjan afhenti rík­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun 138 presta og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu.

[links]Í umsögn­inni kemur fram að kirkjan og ríkið hafi gert með sér samn­ing um skerð­ingu fjár­út­hlut­unar sam­kvæmt for­sendum kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins af ósk rík­is­ins í kjöl­far efna­hags­hruns­ins 2008. Sá samn­ingur var tíma­bund­inn og hann end­ur­nýj­aður árlega. Þar sem ríkið hefur ekki lagt fram kröfu um að samn­ing­ur­inn verði end­ur­nýj­að­aður segir í umsögn­inni að „þar með má ljóst vera að tíma­bili upp­náms í fjár­málum rík­is­ins er lokið að mati rík­is­ins“. Kirkjan telur því engar ástæður fyrir tíma­bund­inni skerð­ingu séu til staðar lengur.

Kirkjan hefur farið fram á það áður að skil­málar kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins verði teknir upp aftur. Þrátt fyrir að í umsögn­inni segi að ríkið hafi ekki sóst eftir að end­ur­nýja samn­inga um skertar fjár­veit­ingar síð­ast­liðin tvo ár sendi þjóð­kirkjan frá sér frétta­til­kynn­ingu árið 2015 að hún hafi hafnað beiðni um end­ur­nýjun. Kjarninn fjall­aði um málið á sínum tíma.

[adspot]

Útreikningar Kirkjuráðs mun hærri en ríkisins

Kirkjan telur að not­ast eigi við for­sendur kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins við útreikn­inga á fjár­veit­ingum til hennar og að kirkjan eigi ekki að taka á sig frek­ari skerð­ingar. Samkvæmt umsögn­inni er talið að ríkið þurfi að hækka áætl­aðar fjár­veit­ingar um 553,6 millj­ónir til að upp­fylla skil­yrði kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins.

Bisk­ups­stofa og Kirkju­ráð telja einnig sam­kvæmt umsögn­inni að þar sem efna­hag­skrepp­unni sé lokið eigi einnig að reikna sókn­ar­gjöld út frá þeim lögum sem að þeim lúta. Í kjöl­far efna­hags­hruns­ins hafa bráða­birgðar ákvæði verið sett á lög um sókn­ar­gjöld sem ógilda upp­runa­legar for­sendur lagan fyrir útreikn­ingi sókn­ar­gjalda.

Síðan 2009 hefur upp­hæð sókn­ar­gjalda því verið stjórnað með bráða­birgðar laga­setn­ingum ár hvert. Kirkjan fór opin­ber­lega fram á það í des­em­ber á síð­ast­liðnu ári að því yrði hætt og sókn­ar­gjöld rynnu óskert til trú­fé­laga.

Samkvæmt útreikn­ingum kirkj­unnar eru áætluð sókn­ar­gjöld sem eiga að renna til kirkj­unnar því van­reiknuð um 1.111,5 millj­ónir króna.Kirkjan telur því að ef fjár­veit­ingar til hennar hækki ekki muni ríkið skulda henni sam­tals 1.669 millj­ónir króna.

Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjarnans hvort hækka eigi fjár­veit­ingar til kirkj­unnar segir að ekki verði gert ráð fyrir því að svo verði á grund­velli sókn­ar­gjalda. Ráðherra segir að sókn­ar­gjöldin séu ákveðin í fjár­lögum og ekki liggi fyrir neinir sér­stakir samn­ingar við kirkj­una varð­andi annað. Dóms­mála­ráðu­neytið telur að kirkju­mála­sam­komu­lagið hafi verið efnt að fullu fram til árs­ins 2016. Samkvæmt ráð­herra eru við­ræður milli ríkis og kirkju í gangi varð­andi end­ur­skoðun á því sam­komu­lagi. Ráðherra segir að „málið sé hins vegar flókið og við­ræðum miði hægt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kirkjan

Fréttir

Prestar fá ekki að heyra undir kjara­ráð til fram­búðar

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta um að heyra áfram undir kjara­ráð til fram­búðar. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa undir. Lögin hafa nú verið afgreidd úr nefnd­inni til ann­arrar umræðu,...
Fréttir

Prestar vilja ekki fara undan kjara­ráði

Presta­fé­lag Íslands vill ekki að prestar, pró­fastar og bisk­upar verði færðir undan ákvörð­unum kjara­ráðs, líkt og lagt er til í frum­varpi sem for­menn allra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn Presta­fé­lags­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar. Samkvæmt frum­varp­inu til breyt­inga á lögum um kjara­ráð eru fjöl­margar stéttir, sem nú heyra undir ráðið, færðar undan því. Ef...
Fréttirkirkjan

Kirkju­ráð vill fá full sókn­ar­gjöld frá rík­inu

Kirkju­ráð vill að ríkið hætti að taka til sín hluta af inn­heimtum sókn­ar­gjöldum, eins og gert hefur verið frá hruni, og að kirkjan fái sókn­ar­gjöld að fullu greidd frá og með næsta ári. Ráðið hefur sent umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis auk þess sem bréfið þar sem þessa er kraf­ist var sent til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár