Þjóðkirkjan vill hærri greiðslur úr ríkissjóði en meirihluti þjóðarinnar vill ekki Þjóðkirkju

Þjóð­kirkjan hafn­aði á föstu­dag beiðni inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um áfram­hald­andi nið­ur­skurð. Hún vill að ríkið standi við hið svo­kall­aða krikju­jarða­sam­komu­lag sem gert var árið 1997. Í því sam­komu­lagi fólst að Þjóð­kirkjan afhenti rík­inu um 600 jarðir til eignar en á móti átti ríkið að greiða laun 138 presta og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu. Samkvæmt frétt á heima­síðu Þjóð­kirkj­unnar var land undir Garðabæ og fleiri jarðir sem stór hluti bæj­ar­fé­laga stendur nú á á meðal þeirra jarða sem afhentar voru. Síðar bætt­ist jörðin Þing­vellir við.

Frá banka­hruni hefur verið veittur afsláttur af þessu sam­komu­lagi og Þjóð­kirkjan áætlar að sá afsláttur nemi um 2,5 millj­örðum króna. Nú vill kirkjan ekki lengur veita afslátt og náist ekki sam­komu­lag milli inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og kirkj­unnar um fram­lögin mun málið fara fyrir gerð­ar­dóm.

Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að hún von­ist eftir að sam­komu­lag náist. Leiða verði að leita til að mæta kröfum kirkj­unnar með ein­hverjum hætti.

En hvað finnst almenn­ingi um fram­lag rík­is­sjóðs til Þjóð­kirkj­unnar? Myndi hann vilja ráð­stafa því fé með öðrum hætti?

Fær um fimm milljarða á ári


Þjóð­kirkjan fær ansi veg­legt fram­lag úr rík­is­sjóði á hverju ári. Á fjár­lögum 2015 er gert ráð fyrir að hún fái 1,5 millj­arða króna úr sam­eig­in­legum sjóðum til að standa undir starf­semi sinni. Hún fær einnig 1,9 millj­arða króna í svokölluð sókn­ar­gjöld, sem skipt­ast á milli trú­fé­laga. Öll önnur trú­fé­lög á land­inu fá sam­tals 324 millj­ónir króna vegna slíkra gjalda.

Þá greiðir rík­is­sjóður 273 millj­ónir króna í Kirkju­mála­sjóð, 72 millj­ónir króna í Kristni­sjóð og 353 millj­ónir króna í Jöfn­un­ar­sjóð sókna. Rekstur kirkju­garða kostar loks skatt­greið­endur um einn millj­arð króna á ári. Samtals er því kostn­aður rík­is­sjóðs á þessu ári vegna Þjóð­kirkj­unnar og starf­semi hennar 5,1 millj­arður króna. Þó er vert að taka fram að hluti þess kostn­aðar sem fellur til vegna rekst­urs kirkju­garða myndi áfram falla á ríkið þótt kirkjan yrði aðskilin frá rík­is­bákn­inu.

Mest greiddi ríkið til Þjóð­kirkunnar á árunum 2008 og 2009, þegar fram­lög námu 5,4 millj­örðum króna hvort árið.

kirkjan

|

Create infographics

Mun fleiri vilja aðskilnað ríkis og kirkju

En vilja Íslend­ingar Þjóð­kirkju?

Í mars birti Við­skipta­ráð nið­ur­stöður könn­unar sem það lét gera á við­horfi almenn­ings til fjár­mögn­unar stofn­ana og emb­ætta á Íslandi. Þar kom meðal ann­ars fram að 55,6 pró­sent svar­enda töldu að ríkið eigi ýmist ekki eða að mjög litlu leyti að fjár­magna Þjóð­kirkj­una. 17 pró­sent sögðu að ríkið ættið að fjár­magna kirkj­una til helm­inga en 27,4 pró­sent töldu að Þjóð­kirkjan eigi að miklu eða öllu leyti að vera fjár­mögnuð af rík­is­sjóði. Mikill munur var á svörum eftir aldri. Yngra fólk var mun síður hlynnt rík­is­fjár­mögnun kirkj­unnar en þeir eldri. Þá var einnig veru­legur munur á svörum eftir stjórn­mála­skoð­unum. Fram­sókn­ar­menn studdu rík­is­fjár­mögnun kirkj­unnar mest allra en flestir Píratar voru á móti henni.

Gallup hefur einnig kannað hug almenn­ings gagn­vart aðskiln­aði ríkis og kirkju árlega um nokkuð langt skeið. Árið 1996 voru 53 pró­sent fylgj­andi aðskiln­aði en 31 pró­sent voru á móti. Árið 2003 voru 59 pró­sent fylgj­andi aðskiln­aði en 29 pró­sent á móti. Árið 2009 voru 60 pró­sent hlynnt aðskiln­aði en 20 pró­sent á móti. Árið 2012 voru 59 pró­sent hlynnt aðskiln­aði en um fimmt­ungur var á móti. Í lok árs 2014 hafði dregið úr fjölda þeirra sem ertu hlynntir aðskiln­aði, og hlut­fall þeirra komið niður í 51 pró­sent. Hins vegar voru ein­ungis um 30 pró­sent sem voru á móti aðskiln­aði. Því er enn mik­ill munur milli hópanna.

Það hefur líka einu sinni verið kosið um hlut­verk kirkj­unnar í íslenskri stjórn­skipan. Í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um til­lögur stjórn­laga­ráðs um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá sem fram fór í októ­ber 2012. Þar var ein spurn­ingin orðuð með eft­ir­far­andi hætti: „Vilt þú að í nýrri stjórn­ar­skrá verði ákvæði um Þjóð­kirkju á Íslandi?“. Alls sögðu 51 pró­sent þeirra sem svör­uðu þess­ari spurn­ingu að þeir vildu slíkt ákvæði en 38 pró­sent sögðu nei. Þó er vert að taka fram að ein­ungis 24,6 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá þennan októ­ber­dag 2012 svör­uðu henni ját­andi.

Stöðugur flótti úr Þjóðkirkjunni

Það fækkað jafnt og þétt í Þjóð­kirkj­unni. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 gengu 1.357 fleiri úr henni en í hana. Alls skráðu 1.706 ein­stak­lingar sig úr Þjóð­kirkj­unni en 309 í hana. Sókn­ar­börnum Þjóð­kirkj­unnar fækk­aði um 3,2 pró­sent á árunum 2005 til 2014. Þeir voru 250.759 tals­ins í upp­hafi þess tíma­bils en 242.743 í lok árs í fyrra. Á sama tíma fjölg­aði Íslend­ingum um 35.523, en sú fjölgun skil­aði sér ekki neinni aukn­ingu á sókn­ar­börnum Þjóð­kirkj­unnar. Fækkun þeirra sem kjósa að vera í Þjóð­kirkj­unni hefur raunar verið mjög stöð­ugur um lengra skeið. Lengi vel var skipu­lag á Íslandi með þeim hætti að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­fé­lag móður. Það þurfti því sér­stak­lega að skrá sig úr trú­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það. Lang­flestar mæður voru í Þjóð­kirkj­unni og því fjölg­aði sókn­ar­börnum hennar nán­ast til jafns við fædda Íslend­inga.

Nú er fyr­ir­komu­lagið hins vegar þannig að nýjum for­eldrum er gert að velja hvaða trú­fé­lagi þau vilja að börn þeirra til­heyri þegar nafn þeirra er skráð, eða hvort þau vilji að börnin standi utan trú­fé­lags, ef for­eldr­arnir eru ekki skráðir í sama trú­fé­lag og eru skráðir í sam­búð eða hjú­skap.

Árið 1992 voru 92,2 pró­sent lands­manna skráðir í Þjóð­kirkj­una. Um ald­ar­mótin var það hlut­fall komið niður í 89 pró­sent og í dag er það 73,8 pró­sent. Þeim íslensku rík­is­borg­urum sem kusu að standa utan Þjóð­kirkj­unnar voru 30.700 um síð­ustu ald­ar­mót. Í byrjun þessa árs voru þeir 86.357 tals­ins. Þeim hefur því fjölgað um rúm­lega 55 þús­und á 15 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár