Biskup segir ekki siðferðilega rétt að nota stolin gögn til að afhjúpa mál

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, segir að sið­bót í íslensku sam­fé­lagi eigi að fel­ast í end­ur­nýjun á gömlum gildum Íslend­inga, eins og trú. Hún telur ekki sið­ferð­is­lega rétt að nota gögn sem eru stolin til að leiða sann­leik­ann í ljós.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, segir að henni finn­ist ekki sið­ferði­lega rétt að stela gögnum og fara á bak við fólk til að afhjúpa mál og leiða sann­leik­ann í ljós. Þetta kemur fram í við­tali við hana í Morg­un­blað­inu í dag.

Notkun gagna sem fjöl­miðlar komust yfir í óþökk þeirra sem þau eiga hafa verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farna viku eftir að Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­þykkti lög­bann á notkun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media á gögnum úr gamla Glitni. Lög­bannið hefur verið harð­lega gagn­rýnt, meðal ann­ars af full­trúa Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu (ÖSE) um frelsi fjöl­miðla. Hann hvatti íslensk stjórn­völd til að aflétta því. Full­trúar flesta stjórn­mála­flokka á Íslandi hafa annað hvort for­dæmt lög­bannið eða gagn­rýnt það mjög harka­lega og Blaða­manna­fé­lag Íslands og Félag frétta­manna hafa gert það sömu­leiðis. Þá sendi Rit­höf­unda­sam­band Íslands frá sér ályktun vegna lög­banns­ins og það sama gerðu PEN á Íslandi, sam­tök rit­höf­unda, þýð­enda og rit­stjóra. Þá sendu Gagnsæi, sam­tök gegn spill­ingu, frá sér harð­orða til­kynn­ingu þar sem lög­bannið er for­dæmt.

Biskup Íslands segir við Morg­un­blaðið að sið­bót í íslensku sam­fé­lagið ætti að fel­ast í end­ur­nýjun á þeim gildum sem Íslend­ingar hafi reitt sig á í ald­anna rás og hafi verið sið­ferði­legur grunnur lífs­við­horfa lands­manna um langt skeið, og á þar við trúna og fylgi­fiska hennar. „Ein leið til að kom­ast að rót vand­ans er að greina hann, draga sann­leik­ann fram í hverju máli og núll­stilla hlut­ina[...]Ég er ekki sam­mála því að allt sé leyfi­legt í sann­leiks­leit­inni. Mér finnst til dæmis ekki sið­ferði­lega rétt að stela gögnum og fara á bak við fólk til að afhjúpa mál og leiða sann­leik­ann í ljós. Við þurfum að byrja upp á nýtt með sann­leik­ann að leið­ar­ljósi og þá eru trú­mennska, virð­ing og kær­leikur ekki langt undan í þeirri veg­ferð. Umræðan um nýja stjórn­ar­skrá er hluti af þrá fólks eftir traust­ari grunni til að standa á, líka í sið­ferð­is­legum efnum. Og til þess að aftur skap­ist nauð­syn­legt traust í sam­fé­lag­inu hefur kirkjan hlut­verki að gegna. Trú er traust, sem verður ekki end­ur­heimt nema við berum virð­ingu fyrir hvert öðru og sjálfum okkur.“

Hún seg­ist ótt­ast að alþing­is­kosn­ing­arnar um kom­andi helgi skili Íslend­ingum ekki ein­hverju nýju „nema menn átti sig á því að það þarf að taka sinna­skiptum[...]Það er ekki nóg að stjórn­ar­sátt­mál­inn fjalli um aðgerðir í ein­staka mála­flokkum, svo sem fjár­málum og hús­næð­is­málum. Það þyrfti að byrja umræð­una varð­andi stjórn­ar­sam­starf á því að spyrja á hvaða sið­ferði­lega grunni ætlum við að standa. Þegar þeirri spurn­ingu hefur verið svarað má útfæra aðgerðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kirkjan

Fréttir

Prestar fá ekki að heyra undir kjara­ráð til fram­búðar

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­lit til óska presta um að heyra áfram undir kjara­ráð til fram­búðar. Þetta kemur fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa undir. Lögin hafa nú verið afgreidd úr nefnd­inni til ann­arrar umræðu,...
Fréttir

Prestar vilja ekki fara undan kjara­ráði

Presta­fé­lag Íslands vill ekki að prestar, pró­fastar og bisk­upar verði færðir undan ákvörð­unum kjara­ráðs, líkt og lagt er til í frum­varpi sem for­menn allra stjórn­mála­flokka hafa lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn Presta­fé­lags­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar. Samkvæmt frum­varp­inu til breyt­inga á lögum um kjara­ráð eru fjöl­margar stéttir, sem nú heyra undir ráðið, færðar undan því. Ef...
Fréttirkirkjan

Kirkju­ráð vill fá full sókn­ar­gjöld frá rík­inu

Kirkju­ráð vill að ríkið hætti að taka til sín hluta af inn­heimtum sókn­ar­gjöldum, eins og gert hefur verið frá hruni, og að kirkjan fái sókn­ar­gjöld að fullu greidd frá og með næsta ári. Ráðið hefur sent umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis auk þess sem bréfið þar sem þessa er kraf­ist var sent til for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra í lok nóv­em­ber....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár