Framlag til þjóðkirkjunnar aukið um 857 milljónir

Rúmlega þriðj­ungur þjóð­ar­innar er ekki skráður í þjóð­kirkj­una og með­limum hennar hefur fækkað hratt síð­ustu ár. Framlög rík­is­ins til hennar aukast hins vegar á næsta ári.

Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir er biskup Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Framlög úr rík­is­sjóði til þjóð­kirkj­unnar aukast um 857 millj­ónir króna á næsta ári miðað við fjár­lög árs­ins í ár. Þau eiga að 2.074 millj­ónir króna í ár sam­kvæmt gild­andi fjár­lögum en hækka í 2.981 millj­ónir króna á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi sem kynnt var í gær. Þetta er sama upp­hæð og þjóð­kirkjan fékk sem við­bót­ar­greiðslu á fjár­auka­lögum árs­ins 2018 og því mun heild­ar­upp­hæðin sem rennur til kirkj­unnar að óbreyttu verða sam­bæri­leg á næsta ári og á þessu.

[links]Samkvæmt gild­andi fjár­mála­á­ætlun eiga fram­lögin að hald­ast á þessum slóðum næstu árin. Árið 2021 er áætlað að skatt­greið­endur greiði 2.926 millj­ónir króna til þjóð­kirkj­unnar og árið eftir 2.871 milljón króna. Þorri þess fram­lags sem ratar til hennar er vegna rekst­urs á emb­ætti Biskups Íslands.

Sú mikla hækkun sem á sér stað á fram­lagi úr rík­is­sjóði til þjóð­kirkj­unnar er, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu, er til að upp­fylla svo­nefnt kirkju­jarð­ar­sam­komu­lag við hana í „sam­ræmi við nið­ur­stöðu reikni­lík­ans sem notað er til að reikna út fram­lög sam­kvæmt samn­ingi rík­is­ins og kirkj­unnar“.

Til við­bótar við þessi fram­lög greiðir ríkið sókn­ar­gjöld til trú­fé­laga, en þar er þjóð­kirkjan lang fyr­ir­ferða­mest enda eru tæp­lega tveir af hverjum þremur lands­mönnum í henni. Sókn­ar­gjöld næsta árs eru áætluð 2.567 millj­ónir króna og því má áætla að um 1,7 millj­arður króna af þeirri upp­hæð renni til þjóð­kirkj­unnar. Þá fær kirkjan greiðslu vegna kirkju­mála­sjóðs, alls 316 millj­ónir króna á næsta ári, og vegna jöfn­un­ar­sjóðs sókna, alls 404 millj­ónir króna.

Þingmaður sagði samninginn „hroðalegan“

Fram­lagið til þjóð­kirkj­unnar er vegna hins svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags milli ríkis og kirkju sem gert var 10. jan­úar 1997. Í því var samið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­töldum prests­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­is­sjóð. Á móti mundi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu, náms­leyfi, fæð­ing­ar­or­lof, veik­indi og fleira.

[adspot]Á grunni þessa er þjóð­kirkjan á fjár­lögum og fær umtals­verða fjár­muni úr rík­is­sjóði. Frá árinu 1998 hafa greiðslur hins opin­bera vegna þessa verið á fimmta tug millj­arða króna.

Tekist var á um kirkju­jarð­ar­sam­komu­lagið á þingi í nóv­em­ber í fyrra. Þar sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, að samið hefði verið um greiðslur til kirkj­unnar um ókomna tíð. Verð samn­ing­anna væri raun­veru­lega táknað með tölu­stafnum átta á hlið. „Kirkjuj­arð­irn­ar eru því bók­staf­lega óend­an­lega dýr­ar,“ sagði Helgi. Hann bætti því við að samn­ing­ur­inn væri hroða­legur.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var til svars og sagði það mik­il­vægt að ríkið stæði við gerða samn­inga. Það myndi þurfa „ein­hverja risa­stóra upp­hæð til að gera upp fram­tíð­ina“ ef breyta ætti samn­ingnum.

Skömmu síðar ávarp­aði hann kirkju­þing. og sagði meðal ann­ars að lítil sann­girni væri í mál­flutn­ingi sumra þeirra sem hæst tala um aðskilnað ríkis og kirkju. „Oft virð­ist manni sem mál­flutn­ingur af þessu tagi stafi einkum frá mjög ungu fólki, sem ekki hefur lent í neinum áföllum og hefur ekki séð það starf sem kirkjan vinnur við sálu­sorgun og ýmis konar félags­þjón­ust­u.“

Þriðjungur þjóðar utan þjóðkirkju

Þeim sem eru skráðir í þjóð­kirkj­una hefur fækkað jafnt og þétt á und­an­förnum árum, þrátt fyrir að íbúum hafi fjölgað umtals­vert. Nú eru 232.040 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una en þeir voru 253.069 árið 2009 þegar fjöldin náði hæstu hæðum. Alls eru 64 pró­sent þeirra rúm­lega 360 þús­und manna sem búa á Íslandi því skráðir í þjóð­kirkj­una.

Það þýðir að rúm­lega þriðj­ungur lands­manna er ekki skráður í hana, eða 128.350 manns.

Athugasemd frá Þjóðkirkjunni sem bætt er við klukkan 13:12:

Oft er handa­gangur í öskj­unni þegar fjár­lög rík­is­sjóðs til næsta árs eru til­kynnt. Eins og gefur að skilja í slíkum æsing eru stundum mis­tök gerð. Ekkert til að erfa – miklu frekar nauð­syn­legt að leið­rétta.

Í frétt Vísis og fleiri miðla er full­yrt að aukin fram­lög til þjóð­kirkj­unnar nemi 860 millj­ónum á fjár­lögum 2020. Þetta er rangt.

Í fjár­lögum árs­ins 2019, sem blaða­maður ber saman við fjár­lög 2020, sem fjár­mála­ráð­herra kynnti í morgun, vant­aði uppá 854 millj­ónir vegna Kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags. Í við­auka­fjár­lögum hefur þessi upp­hæð verið leið­rétt.

Þessi háttur hefur verið hafður á und­an­farin ár.

Í fjár­lögum árs­ins 2020 eru fjár­fram­lög til þjóð­kirkj­unnar óskert og á pari við heild­ar­fjár­fram­lög árs­ins 2019. Það er því engin fram­laga­aukn­ing til þjóð­kirkju Íslands í fjár­lögum 2020. Það er þjóð­kirkj­unni mikið kapps­mál að fara vel með fjár­muni kirkj­unnar. Þjóð­kirkjan vill kapp­kosta að tryggja að þeir fjár­munir efli þjón­ustu við íbúa þessa lands. Þjóð­kirkja Íslands sinnir afar metn­að­ar­fullri og mik­il­vægri þjón­ustu um allt land í formi sál­gæslu, fræðslu og vel­ferð­ar­þjón­ustu.

Þjóð­kirkjan gerir engan grein­ar­mun á skráðum og óskráðum með­limum. Allir njóta þess­arar þjón­ustu ef þeir óska. Þessi grunn­þjón­usta er til grund­vallar þegar rýnt er í fjár­fram­lög til þjóð­kirkj­unnar sem eru óbreytt í fjár­lögum árs­ins 2020 fyrir fyrstu umræðu Alþingis.“

Athugasemd ritstjórnar Kjarnans:

Ekkert í frétt­skýr­ingu Kjarnans er rangt né vill­andi. Skýrt er greint frá þeirri greiðslu sem féll þjóð­kirkj­unni í skaut á fjár­auka­lögum síð­asta árs í frétta­skýr­ing­unni. Sú greiðsla er vegna árs­ins 2018. Fjár­auka­lög fyrir árið 2019 hafa ekki verið lögð fram og því ekk­ert sem stað­festir að fram­lag úr rík­is­sjóði til þjóð­kirkj­unnar verði það sama í ár og það verði á næsta ári. Fyr­ir­sögn hennar vísar til breyt­inga á greiðslum á milli sam­þykktra fjár­laga 2019 og fjár­laga­frum­varps 2020 og er því rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár