Ekki allir þjónar jafnir í dönsku guðshúsunum

Niðrandi og nið­ur­lægj­andi fram­koma í garð kven­presta er vanda­mál í dönsku þjóð­kirkj­unni og mörg dæmi um að þær hafi hrak­ist úr starfi. Dönsk lög um jafn­rétti til starfa óháð kyni hafa til þessa und­an­skilið eina starfs­stétt: presta.

Þegar Hafn­ar­há­skóli tók til starfa árið 1479 var guð­fræði­deildin ein fjög­urra deilda skól­ans, hinar voru lög­fræði, lækn­is­fræði og heim­speki. Háskól­inn var karla­skóli og það var ekki fyrr en 396 árum síðar (1875) að konur fengu leyfi til að stunda þar nám. Það var sama ár og konur fengu leyfi til að taka stúd­ents­próf í Danmörku. Tveimur árum síðar, 1877, hóf fyrsta konan nám við skól­ann, nánar til­tekið við lækna­deild­ina. Hún hét Nielsine Nielsen og var 27 ára. Náminu lauk hún árið 1885 og var fyrsta konan til að ljúka háskóla­námi í Danmörku. Hún opn­aði eigin stofu í Kaup­manna­höfn árið 1889. Nielsine Nielsen lést árið 1916.

Máttu læra guðfræði en ekki fá embættispróf

Þótt konur hafi árið 1875 fengið leyfi til að stunda nám í guð­fræði við Hafn­ar­há­skóla var gam­al­gróið karla­veldið samt við sig. Konur gátu ekki fengið leyfi til að starfa sem prestar þótt þær lykju nám­inu. Þetta hafði í för með sér að konur sótt­ust ekki eftir að leggja stund á guð­fræði.

[adspot]Það var ekki fyrr en árið 1916 að konur fengu leyfi til að ljúka emb­ætt­is­prófi í guð­fræði, með starfs­leyfi. 26. júní það ár útskrif­að­ist Rigmor Karen Sofie Larsen með emb­ætt­is­próf í guð­fræði, með hæstu ein­kunn.

Fleiri ljón í veginum

Eins og áður sagði fengu konur árið 1916 starfs­leyfi að loknu emb­ætt­is­prófi í guð­fræði. Sá hængur var þó á að konur gátu ekki, lögum sam­kvæmt, gegnt prests­emb­ættum innan dönsku þjóð­kirkj­unnar. Lögum um jöfn rétt­indi kynj­anna til að gegna opin­berum emb­ættum var breytt árið 1919, en þar voru prests­emb­ætti und­an­skilin. Meg­in­á­stæðan var and­staða dönsku presta­stétt­ar­innar og meðal ann­ars bent á að Jesús hafi verið karl­maður, og læri­svein­arnir karlar. Ef að því kæmi að kona sækt­ist eftir að gegna prests­emb­ætti innan dönsku þjóð­kirkj­unnar yrði að taka afstöðu til þess sagði í bréfi presta til ráðu­neytis kirkju­mála. Árin liðu og þær konur sem luku prófi í guð­fræði sinntu ýmsum störfum öðrum en prests­emb­ættum.

Lagabreytingar

Árið 1947 var lögum breytt og þar með var heim­ilt að ráða konur til prests­starfa við dönsku þjóð­kirkj­una. Í stað þess að í lög­unum stæði að karlar gætu gegnt prests­emb­ættum stóð nú mann­eskja, per­son. Það var þó ein­ungis heim­ild, sókn­ar­nefndir gátu ákveðið að ganga fram­hjá kven­kyns umsækj­endum. Ári síðar, 1948, voru þrjár konur vígðar til prests í Óðins­véum, þær fyrstu í land­inu. Þá voru liðin 983 ár frá því að Haraldur blá­tönn kristn­aði Dani. Hundruð presta mót­mæltu vígslu kvenn­anna þriggja.

Árið 1978 var jafn­rétt­islögum enn breytt en áfram var í gildi und­an­þágu­heim­ild varð­andi emb­ætti presta, sú heim­ild er enn í gildi.

Meira en annar hver prestur í dag er kona

Frá því að kon­urnar þrjár fengu prests­vígslu árið 1948 hefur margt breyst. Í dag eru prestar dönsku þjóð­kirkj­unnar um það bil 2400, af þessum fjölda er meira en helm­ingur konur. Nánar til­tekið 58 pró­sent.

[adspot]Í nýlegri könnun kom fram að átta af tíu bisk­upum lands­ins vilja að lögum verði breytt þannig að und­an­þágu­heim­ild sókn­ar­nefnda varð­andi kven­presta verði afnumin. Fjórir af bisk­up­unum tíu eru konur.

Biblían mikilvægari en dönsk lög á Borgundarhólmi

Þrátt fyrir að rúmur helm­ingur allra presta í Danmörku séu konur eru ekki allir á þeirri skoðun að þær séu hæfar til slíkra starfa. Filip Ambrosen safn­að­ar­nefnd­ar­for­maður í smá­bænum Hasle á Borg­und­ar­hólmi seg­ist algjör­lega mót­fall­inn kven­prestum. Ef til þess kæmi að kona yrði skipuð prestur myndi hann umsvifa­laust segja af sér og flytja sig í aðra sókn. Filip Ambrosen segir að í Bibl­í­unni sé afdrátt­ar­laust kveðið á um að konur geti ekki verið prestar. Hann seg­ist ekki vera á móti konum, síður en svo, en fólki sé ætlað mis­mun­andi hlut­verk, að vera prestur sé karl­manns­starf. Safn­að­ar­nefndin í þorp­inu Rutsker á Borg­und­ar­hólmi er sömu skoð­unar.

Auk þess­ara tveggja safn­aða eru örfáir söfn­uðir ann­ars staðar í Danmörku þar sem and­staða er við kven­presta og þeir ekki valdir til starfa.

Slæmur mórall og niðurlægjandi framkoma

Fyrir tveim vikum greindi danska útvarpið, DR, frá nýrri könnun meðal starfs­manna dönsku þjóð­kirkj­unnar. Um er að ræða org­anista, fast­ráðna söngv­ara, graf­ara, kirkju­verði og umsjón­ar­menn, sem sé annað starfs­fólk en presta. Samtals eru starfs­menn­irnir um það bil tólf þús­und og þrjú þús­und svör­uðu könn­un­inni. Nið­ur­stöð­urnar hafa vakið athygli en þar kom í ljós að einn af hverjum þremur taldi sig hafa orðið fyrir nið­ur­lægj­andi fram­komu í starfi sínu, langoft­ast frá safn­að­ar­nefnd­ar­fólki. Safn­að­ar­nefnd­irnar eru um það bil sextán hund­ruð, þær eru skip­aðar leik­mönnum og eru kosnar fjórða hvert ár. Í könnun danska útvarps­ins kom fram að margir þeirra sem sitja í safn­að­ar­nefnd­unum hafi enga, eða litla, reynslu af slíkum störfum og ímyndi sér að þeir geti beitt eins­konar til­skip­un­ar­stjórnun og tali niður til starfs­manna.

Prestar draga upp dökka mynd

Fyrir um það bil ári birti sjón­varps­stöðin TV2 Lorry langt við­tal við Katrine Blin­ken­berg sókn­ar­prest á Sjálandi. Hún hafði rætt við 49 starf­andi presta, af báðum kynjum, í Kaup­manna­höfn. Í við­töl­unum kom fram að prest­arnir, einkum kon­urnar, höfðu upp­lifað nei­kvæða og niðr­andi fram­komu í sinn garð og þekktu sömu­leiðis allir dæmi um presta sem höfðu hrökkl­ast úr starfi vegna þessa. Í fram­haldi af við­töl­unum höfðu prest­arnir sem rætt var við und­ir­ritað yfir­lýs­ingu sem birt­ist í „Prest­inum“ tíma­riti presta. Umfjöllun TV2 Lorry vakti mikla athygli og var rædd í þing­inu. Ane Halsboe- Jørg­en­sen kirkju­mála­ráð­herra ákvað í fram­hald­inu að koma á lagg­irnar ráð­gjaf­artil­boði, eins og hún komst að orði, fyrir starfs­fólk þjóð­kirkj­unnar. Ýmsir úr hópi þing­manna sögðu ráð­gjaf­artil­boðið ekki duga, meira þyrfti til að ef takast ætti að upp­ræta vand­ann.

Fyrir nokkrum dögum birti danska útvarpið við­tal við Meghan Welch Jakobsen fyrr­ver­andi prest í smá­bænum Gudhjem á Borg­und­ar­hólmi. Hún lauk emb­ætt­is­prófi í guð­fræði árið 2017, 49 ára að aldri, og réðst þá til starfa í Gudhjem. Hún kvaðst strax hafa fundið að hún væri ekki vel­komin, fólk hefði veist að henni og sagt að það kærði sig ekki um kven­prest og myndi ekki sækja kirkju hjá henni. Á end­anum sagði Meghan Welch Jakobsen upp, hún er nú starf­andi prestur í Holbæk á Sjálandi og kveðst mjög ánægð.

Ráðherra skoðar lagabreytingar

Í við­tali fyrir nokkrum dögum sagði Ane Halsboe- Jørg­en­sen kirkju­mála­ráð­herra að nið­ur­staða áður­nefndrar könn­unar danska útvarps­ins væri von­brigði þótt hún hefði ekki komið á óvart. Hún kvaðst vona að hægt yrði að ráða bót á ástand­inu, í sátt og sam­lyndi. Jafn­framt sagð­ist hún til­búin að skoða laga­breyt­ingar varð­andi skipan presta og nefndi sér­stak­lega vilja mik­ils meiri­hluta bisk­upa lands­ins til breyt­inga.

„En ég vil ekki ana að neinu“ sagði ráð­herr­ann „kirkjan er mik­il­væg stofnun í sam­fé­lag­inu og um hana þarf að ríkja sátt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár