Sóknargjöld hækkuð um 384 milljónir króna milli umræðna

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu áttu sókn­ar­gjöld sem rík­is­sjóður greiðir fyrir hvern ein­stak­ling að lækka á næsta ári. Nú hefur verið lögð til breyt­ing þess efnis að þau hækka. Alls kosta trú­mál rík­is­sjóð um 8,8 millj­arða króna á næsta ári.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, við þingsetningu Alþingis í haust.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, ásamt Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, við þing­setn­ingu Alþingis í haust. Mynd: Eyþór Árnason

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar, sem er skip­aður nefnd­ar­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks, leggur til að sókn­ar­gjöld verði hækkuð um 383,5 millj­ónir króna á næsta ári frá því sem lagt var til í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það var kynnt í sept­em­ber. Verði breyt­ingin sam­þykkt, sem er afar senni­legt, munu sókn­ar­gjöld sem ríkir greiðir á hvern ein­stak­ling verða tíma­bundið 1.192 krónur í stað 1.055 króna eins og lagt var til í fjár­laga­frum­varp­inu.

Trú- og lífs­­­skoð­un­­­ar­­­fé­lög hér á landi fá sókn­­­ar­­­gjöld greidd fyrir hvern skráðan ein­stak­l­ing, 16 ára og eldri. Á árinu 2022 greiðir ríkið 1.107 krónur á mán­uði á hvern ein­stak­l­ing í hverju félagi fyrir sig. Því munu fram­lögin hækka um 85 krónur á hvern ein­stak­ling í stað þess að lækka um 52 krónur líkt og fjár­laga­frum­varpið gerði ráð fyrir.

Tugir safnaða tæknilega gjaldþrota

Sá trú­ar­söfn­uður sem fær stærstan hluta sókn­ar­gjalda greiddan er þjóð­kirkjan.

Alls voru 58,9 pró­­sent lands­­manna skráðir í þjóð­­kirkj­una 1. nóv­em­ber síð­­ast­lið­inn. Það hlut­fall fór í fyrsta sinn undir 60 pró­­sent í sum­ar. Skráðum hefur fækkað um 1.625 frá 1. des­em­ber 2021 til 1. nóv­em­ber 2022.

Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­­­­­­sent lands­­­­­­­­­manna skráðir í þjóð­­­­kirkj­una. Síð­­­ast­liðna ára­tugi hefur hlut­­­fall þeirra sem til­­­heyra henni dreg­ist saman og frá árinu 2009 hefur með­­­­­­limum þjóð­­­­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári.

[adspot]Hún hefur þrátt fyrir það ekki verið ánægð með þær upp­hæðir sem hún fær í sinn hlut á und­an­förnum árum.

Í sam­an­tekt sem Kirkju­þing þjóð­kirkj­unnar skil­aði til fjár­laga­nefndar í haust vegna umfjöll­unar um fjár­laga­frum­varpið kom fram að það væri mat for­manns úthlut­un­ar­nefndar Jöfn­un­ar­sjóðs sókna að það séu að minnsta kosti 30 söfn­uðir í land­inu sem geti talist vera ógjald­færir sakir skertra sókn­ar­gjalda. Því mætti segja að „ þeir væru tækni­lega gjald­þrota.“

Þar sagði enn fremur að til­finn­ingin væri sú að miklu fleiri söfn­uðir séu í fjár­hags­vanda en að ein­hverju leyti sé vand­anum ýtt á undan með því að draga úr þjón­ustu og starfi og fresta við­haldi fast­eigna.„ Jöfn­un­ar­sjóður hefur í ákveðnum til­vikum haldið safn­að­ar­starfi á lífi með árlegum styrkjum en það er ekki hlut­verk sjóðs­ins til lengri tíma lit­ið. Það segir sig sjálft að eng­inn rekstur getur þolað tekju­fall á bil­inu 40 - 50 pró­sent árum saman án þess að það hafi alvar­leg áhrif. Því til við­bótar hefur verð­bólga und­an­farna mán­uði og miklar vaxta­hækk­anir gert stöð­una enn verri.“

Telja sig eiga miklu meira inni

Í áður­nefndri sam­an­tekt­ segir að skerð­ingin hafi verið við­var­andi frá árinu 2009 og auk­ist ár frá ári. „Ein­ungis lið­lega helm­ingi sókn­ar­gjalda verður skilað til safn­að­anna á næsta ári m.v. fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp, eða um 52 pró­sent af því sem ætti að ver­a.“

Þar segir enn fremur að í fjár­laga­frum­varpi 2023 hafi verið lögð til um það bil fimm pró­sent lækkun sókn­ar­gjalds­ins í um það bil tíu pró­sent verð­bólgu og að krónu­talan verði þar með nokkru lægri en var árið 2021, eða 1.060 krón­ur. Sam­kvæmt lögum ætti það að vera 2.010 krónur á næsta ári, eða 47,7 pró­sent hærra en lagt sé til. Því vanti 960 krónur á mán­uði í hvert greitt sókn­ar­gjald.

[adspot]Til sam­an­burðar þá var sókn­ar­gjaldið 975 krón­ur per gjald­anda á mán­uði árið 2020, 1080 krónur árið 2021 og 1.107 krónur í ár, að við­bættri tíma­bund­inni hækkun upp á 100 krónur per gjald­anda. Sú tíma­bundna hækkun skil­aði alls 272,4 millj­óna króna við­bót­ar­út­gjöldum hjá rík­is­sjóði í fyrra.

Sókn­ar­gjöld áttu að kosta rík­is­sjóð 2.961 millj­ónir króna á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Nú er ljóst að sú upp­hæð hækkar um 383,5 millj­ónir króna.

Heildarkostnaður vegna trúmála um 8,8 milljarðar á ári

Sókn­ar­gjöldin eru þó fjarri því einu útgjöld rík­is­sjóðs vegna trú­mála. Alls verður fram­lag rík­is­sjóðs til trú­mála á næsta ári, þegar allt er til talið, tæp­lega 8,8 millj­arðar króna sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar.

Í sam­ræmi við nýjan við­­­bót­­­ar­­­samn­ing um end­­­­ur­­­­skoðun á kirkju­jarð­­­­ar­­­­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­­­­ar­­­­kostnað kirkj­unnar frá 1998 sem var und­ir­­­rit­aður fyrir tæpum þremur árum fær þjóð­­­kirkjan þorra þess­­­arar upp­­­hæð­­­ar. Árlega fær hún fram­lög frá rík­­­­inu á grund­velli kirkju­jarða­­­­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­­­­mála­­­­sjóðs og Jöfn­un­­­­ar­­­­sjóðs sókna, auk meg­in­þorra sókn­­ar­gjalda. Í kirkju­jarða­­­sam­komu­lag­inu fólst að ríkið yfir­­­tók hund­ruð jarða sem kirkjan átti upp­­­haf­­­lega, gegn því að greiða laun presta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár