Að minnsta kosti 30 kirkjusöfnuðir tæknilega gjaldþrota vegna skertra sóknargjalda

Þjóð­kirkjan segir að ein­ungis lið­lega helm­ingi sókn­ar­gjalda sé skilað til safn­aða miðað við fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp. Skerðing hafi haf­ist 2009 og sé við­var­andi. Að óbreyttu kostar útgreiðsla sókn­ar­gjalda rík­is­sjóð um þrjá millj­arða á næsta ári.

Þjóðkirkjan er að uppistöðu fjármögnuð úr ríkissjóði. Hér sjást Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, við þingsetningu í haust.
Þjóð­kirkjan er að uppi­stöðu fjár­mögnuð úr rík­is­sjóði. Hér sjást Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, og Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, við þing­setn­ingu í haust. Mynd: Eyþór Árnason

Það er mat for­manns úthlut­un­ar­nefndar Jöfn­un­ar­sjóðs sókna að það séu að minnsta kosti 30 söfn­uðir í land­inu sem geti talist vera ógjald­færir sakir skertra sókn­ar­gjalda. Því mætti segja að „ þeir væru tækni­lega gjald­þrota.“ Þetta kemur fram í sam­an­tekt sem Kirkju­þing þjóð­kirkj­unnar hefur skilað inn til fjár­laga­nefndar vegna umfjöll­unar um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp og breyt­ingar á lögum sem ráð­ast þarf í vegna þess.

Þar segir enn fremur að til­finn­ingin sé sú að miklu fleiri söfn­uðir séu í fjár­hags­vanda en að ein­hverju leyti sé vand­anum ýtt á undan með því að draga úr þjón­ustu og starfi og fresta við­haldi fast­eigna.„ Jöfn­un­ar­sjóður hefur í ákveðnum til­vikum haldið safn­að­ar­starfi á lífi með árlegum styrkjum en það er ekki hlut­verk sjóðs­ins til lengri tíma litið. Það segir sig sjálft að eng­inn rekstur getur þolað tekju­fall á bil­inu 40 - 50 pró­sent árum saman án þess að það hafi alvar­leg áhrif. Því til við­bótar hefur verð­bólga und­an­farna mán­uði og miklar vaxta­hækk­anir gert stöð­una enn verri.“

Undir 60 prósent í þjóðkirkjunni

Alls voru 59,7 pró­sent lands­manna skráðir í þjóð­kirkj­una 1. októ­ber síð­ast­lið­inn. Það hlut­fall fór í fyrsta sinn undir 60 pró­sent í sumar.

Árið 1992 voru 92,2 pró­­­­­­­­sent lands­­­­­­­­manna skráðir í þjóð­­­kirkj­una. Síð­­ast­liðna ára­tugi hefur hlut­­fall þeirra sem til­­heyra henni dreg­ist saman og frá árinu 2009 hefur með­­­­­limum þjóð­­­­­kirkj­unnar fækkað á hverju ári.

[adspot]Trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­lög hér á landi fá sókn­­ar­­gjöld greidd fyrir hvern skráðan ein­stak­l­ing, 16 ára og eldri. Á árinu 2022 greiðir ríkið 1.107 krónur á mán­uði á hvern ein­stak­l­ing í hverju félagi fyrir sig. Alls fara um átta millj­arðar króna í mála­­flokk­inn trú­­mál á næsta ári sam­­kvæmt fjár­­lög­um þessa árs. Í sam­ræmi við nýjan við­­bót­­ar­­samn­ing um end­­­ur­­­skoðun á kirkju­jarð­­­ar­­­sam­komu­lag­inu frá 1997 og samn­ingi um rekstr­­­ar­­­kostnað kirkj­unnar frá 1998 sem var und­ir­­rit­aður fyrir tæpum þremur árum fær þjóð­­kirkjan þorra þess­­arar upp­­hæð­­ar. Árlega fær hún fram­lög frá rík­­­inu á grund­velli kirkju­jarða­­­sam­komu­lags­ins sem og fram­lög sem renna til Kirkju­­­mála­­­sjóðs og Jöfn­un­­­ar­­­sjóðs sókna, auk meg­in­þorra sókn­ar­gjalda. Í kirkju­jarða­­sam­komu­lag­inu fólst að ríkið yfir­­tók hund­ruð jarða sem kirkjan átti upp­­haf­­lega, gegn því að greiða laun presta.

Segja einungis liðlega helming sóknargjalda skilað til safnaða

Þjóð­kirkjan hefur hins vegar ekki verið ánægð með þau fram­lög sem hún fær úr rík­is­sjóði á und­an­förnum árum, og sér­stak­lega ekki það sem hún telur að sé skerð­ing á sókn­ar­gjöldum. Sú skerð­ing hófst árið 2009. Í sam­an­tekt­inni segir að skerð­ingin hafi verið við­var­andi frá því ári og auk­ist ár frá ári. „Einungis lið­lega helm­ingi sókn­ar­gjalda verður skilað til safn­að­anna á næsta ári m.v. fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp, eða um 52 pró­sent af því sem ætti að vera.“

Þar segir enn fremur að í fjár­laga­frum­varpi 2023 sé lögð til um það bil fimm pró­sent lækkun sókn­ar­gjalds­ins í um það bil tíu pró­sent verð­bólgu og að krónu­talan verði þar með nokkru lægri en var árið 2021, eða 1.060 krónur. Samkvæmt lögum ætti það að vera 2.010 krónur á næsta ári, eða 47,7 pró­sent hærra en lagt sé til. Því vanti 960 krónur á mán­uði í hvert greitt sókn­ar­gjald.

Til sam­an­burðar þá var sókn­ar­gjaldið 975 krónur per gjald­anda á mán­uði árið 2020, 1080 krónur árið 2021 og 1.107 krónur í ár, að við­bættri tíma­bund­inni hækkun upp á 100 krónur per gjald­anda. Sú tíma­bundna hækkun skil­aði alls 272,4 millj­óna króna við­bót­ar­út­gjöldum hjá rík­is­sjóði í fyrra. Að óbreyttu munu sókn­ar­gjöld kosta rík­is­sjóð 2.961 millj­ónir króna á næsta ári.

Lítið traust og meiri­hluti vill aðskilnað

Þeim Íslend­ingum sem treysta þjóð­­kirkj­unni hefur fækkað um helm­ing frá alda­mót­um, en í könnun sem var birt snemma á þessu ári sögð­ust 29 pró­sent lands­­manna bera mikið traust til henn­­ar. Af þeim stofn­unum sam­fé­lags­ins sem spurt var um traust til mæld­ust ein­ungis tvær með minna traust en þjóð­kirkj­an: banka­kerfið (23 pró­sent) og borg­ar­stjórn Reykja­víkur (21 pró­sent).

[adspot]Önnur ástæða fyrir fækkun í þjóð­­kirkj­unni sem blasir við er sú að ára­tugum saman var skipu­lag mála hér­­­­­lendis þannig að nýfædd börn voru ætið skráð í trú­­­­­­­­fé­lag móð­­­­­­­­ur. Það þurfti því sér­­­­­­­­stak­­­­­­­­lega að skrá sig úr trú­­­­­­­­fé­lagi í stað þess að skrá sig inn í það.

Þessu var breytt árið 2013 og nú þurfa báðir for­eldrar að til­­­­­­heyra sama trú- og lífs­­­­­­skoð­un­­­­­­ar­­­­­­fé­lagi til að barnið sé skráð í félag, ann­­­­­­ars skrá­ist barnið utan­ ­trú­­­­­­fé­laga. Á sama tíma var ramm­inn utan um hvers kyns félög mættu skrá sig sem trú- og líf­­­­skoð­un­­­­ar­­­­fé­lög og þiggja sókn­­­­ar­­­­gjöld rýmk­að­­­­ur.

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að ein­ungis 15 pró­­­sent lands­­­manna eru ánægð með störf Agn­­­esar M. Sig­­­urð­­­ar­dótt­­­ur, bisk­­­ups Íslands, sam­­­kvæmt þjóð­­­ar­púlsi Gallup.

Alls sögð­ust 51 pró­­­sent lands­­­manna að þeir vildu aðskilnað ríkis og kirkju. Hlut­­­fallið hefur verið yfir 50 pró­­­sent í næstum árlegum könn­unum Gallup frá árinu 2007.

Í þjóð­­­ar­púls­inum sást að fólk undir fer­tugu er helst hlynnt aðskiln­að­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár