Þingmenn Miðflokks: Alþingi í sama hlutverki og öryggislögregla í ógnarstjórnarríkjum

Þingmenn Mið­flokks­ins telja stjórn­ar­and­stæð­inga nýta sér aðstöðu sína sem kjörnir full­trúar til að bæta í þá grimmi­legu refs­ingu sem þeir hafi þegar hlotið.

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, Gunn­ar Bragi Sveins­son, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir og Bergþór Ólason.
Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, Gunn­ar Bragi Sveins­son, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir og Bergþór Ólason. Mynd: samsett

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, Gunn­ar Bragi Sveins­son, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir og Bergþór Ólason, þing­menn Mið­flokks­ins, telja Alþingi í sama hlut­verki og örygg­is­lög­regla í ógn­ar­stjórn­ar­ríkjum. Þau segja stjórn­ar­and­stæð­inga nýta sér aðstöðu sína sem kjörnir full­trúar að bæta í þá grimmi­legu refs­ingu sem þau hafi þegar hlotið, auk þess telja þau sig þolendur glæps en ekki ger­endur. Þetta kemur fram í andsvörum þeirra við áliti siða­nefndar Alþingis sem þau sendu for­sætis­nefnd.

Berg­þór og Gunnar Bragi, brutu siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, að því er kemur fram í áliti siða­nefnd­ar.

[adspot]Aðrir þing­­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­­mund­ur Davíð Gunn­laugs­­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólaf­ur Ísleifs­­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Mið­flokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­ar­inn­ar. Morg­un­blaðið greindi fyrst frá og hefur birt álit siða­nefndar auk and­svara þing­mann­anna.

Telja fulltrúar löggjafans refsa þolendum

Í sam­eig­in­legu bréfi Önnu Kol­brúnar, Bergþórs, Gunnars Braga og Sig­mundar Davíðs segir að í máls­með­ferð siða­nefndar felist alvar­leg brot á lögum og grund­vall­ar­reglum rétt­ar­ríkja. „Í stað þess að verja þolendur alvar­legs glæps hafa full­trúar lög­gjafans leitað allra leiða til að refsa þolend­unum,“ segir orð­rétt í bréf­inu.

„Þolendur afbrots­ins sem mála­til­bún­að­ur­inn byggir á, vinir þeirra og vanda­menn, hafa þegar mátt þola grimmi­legri refs­ingu en heim­iluð er í nútíma sam­fé­lagi. Markmið póli­tískra and­stæð­inga virð­ist vera að nýta aðstöðu sína sem kjörnir full­trúar til að bæta þar í,“ segir í bréf­inu. Þá segir jafn­framt að málið hafi ekki heyrt undir siða­reglur Alþingis og það að litið hafi verið fram hjá því und­ir­striki „ein­beittan vilja til að nýta málið með póli­tískum hætti.“

„Slíkt á ekki að geta gerst í lýðræðisríki“

[links]„Frá upp­hafi hefur málið verið póli­tísks eðlis og gengið út á að nýta opin­bera stöðu til að refsa flokki í minni­hluta án stoðar í lögum og reglum. Slíkt á ekki að geta gerst í lýð­ræð­is­ríki,“ segir í sam­eig­in­lega bréfi þing­mann­anna fjög­urra. Þau skrifa að for­dæmið sem gefið sé með því að lög­gjaf­inn „nýti lög­brot í þágu póli­tískra mark­miða“ muni óhjá­kvæmi­lega skaða störf þings­ins.

Í bréf­inu segir: „Af hálfu hlut­að­eig­andi var Alþingi Íslend­inga í raun sett í sama hlut­verk og örygg­is­lög­regla í ógn­ar­stjórn­ar­ríkjum með því að reyna að finna í illa feng­inni upp­töku af einka­sam­tali tæki­færi á að koma póli­tísku höggi á and­stæð­inga.“

Telja sig þolendur tvöfalds brots

„Ekki aðeins er leit­ast við að refsa þolendum alvar­legs afbrots heldur einnig að refsa mönnum fyrir að hafa í einka­sam­tali sagt frá áreitni sem þeir urðu fyrir. Þannig er leit­ast við að refsa þolendum tvö­falds brots,“ skrifa fjór­menn­ing­arnir.

„Af þremur full­trúum í siða­nefnd, sem allir tóku sæti eftir að máls­með­ferð hófst, hafði einn fall­ist á að málið félli ekki undir siða­regl­urnar. Annar fékk ekki tæki­færi til að leggja mat á það en sagði sig svo frá mál­inu af póli­tískum ástæðum. Nið­ur­staðan byggir því á mati minni­hluta siða­nefnd­ar­innar, eins full­trúa sem var skip­aður til verks­ins af aðilum sem þegar höfðu lýst sig van­hæfa,“ segir í bréf­inu. „Í ljósi þess að Jón Krist­jáns­son, sem skip­aður var for­maður vara­siða­nefndar í mál­inu sagði sig frá því af póli­tískum ástæðum vekur undrun að 7. og 8. vara­for­seti (ólög­lega kjörnir) skuli telja sig bæra til að úrskurða um málið en báðir eru þeir starf­andi póli­tískir and­stæð­ingar allra þeirra sem um er fjallað.“

„Í ljósi þess hvernig hluti vara­siða­nefndar nálg­ast málið má velta fyrir sér hvort frá upp­hafi hafi verið ætl­unin að styðj­ast fyrst og fremst við póli­tíska umfjöllun um málið. Gild­is­hlaðnar athuga­semdir um hug­ar­far þeirra sem um var fjallað gefa það til kynna. Í hand­riti því sem Alþingi sjálft lét vinna sést enda að ótal full­yrð­ingar um eðli sam­tals­ins voru vill­andi og rangar. Klipptir voru út bútar til að draga upp þá mynd að sam­talið hefði fyrst og fremst markast af „for­dómum í garð minni­hluta­hópa“. Að minnsta kosti einn full­trúi í vara­siða­nefnd virð­ist nálg­ast málið út frá þeirri fyrir fram gefnu mynd í stað þess að líta á heild­ar­sam­hengið. Þetta er til að mynda áber­andi þar sem þing­menn fá ákúrur fyrir að lýsa áreitni sem þeir urðu fyrir,“ skrifa þing­menn­irnir.

Fjór­menn­ing­arnir telja að brotin hafi verið ein mik­il­væg­asta regla rétt­ar­rík­is­ins gegn þeim vegna þess að þeir hafi ekki fengið að hlýða á þau gögn sem í upp­hafi voru lögð til grund­vallar máls­með­ferð­inni.

Málið vekur óhug Klaustursmanna

„Mál þetta allt vekur óhug af fjöl­mörgum ástæðum. Með því er leit­ast við að refsa þolendum glæps. Það er rekið áfram af póli­tískum and­stæð­ingum þeirra sem fyrir urðu og lög­gjaf­ar­sam­koman notuð í þeim til­gangi. Eðli­legri máls­með­ferð hefur hvergi verið fylgt. Farið hefur verið á svig við lög eftir að upp­haf­legir aðilar höfðu gert sig van­hæfa. Hinir sömu hafa þó áfram hlut­ast til um máls­fram­vind­una. Samræmis er hvergi gætt. Til­gang­ur­inn helgar með­alið. Skaðinn fyrir okkur og fjöl­skyldur okkar er mik­ill en verst er að þeir sem fara með vald skuli hafa leit­ast við að mis­nota það með svo alvar­legum hætti. Við verðum að vona að slíkt sé ekki til marks um það sem koma skal í íslensku sam­fé­lagi,“ skrifa fjór­menn­ing­arnir.

„Pólitísk réttarhöld“ siðanefndar

Í and­svari Sig­mundar Davíðs skrifar hann að það hljóti að slá ein­hvers konar met í aðför að per­sónu- og mál­frelsi þegar leit­ast sé við að nýta ólög­mæta upp­töku af einka­sam­tali.

Í bréfi Gunnars Braga segir: „Hin póli­tískt skip­aða siða­nefnd kemst að þeirri nið­ur­stöðu að und­ir­rit­aður hafi brotið siða­reglur Alþingis. Því hafna ég alger­lega sem og aðdrótt­unum um við­horf mitt til kvenna.“ Hann skrifar einnig að hvergi í lýð­ræð­is­ríki geti það talist eðli­legt að póli­tískir and­stæð­ingar fái vald til að dæma and­stæð­inga sína.

Anna Kolbrún segir í and­svari sínu að allur mála­til­bún­aður þessa máls hafi verið mjög sér­stakur og „virð­ist rek­inn af sér­stak­lega miklum þrótti af for­seta Alþingis svo ekki er annað hægt að álykta sem svo en að for­seti Alþingis sé á per­sónu­legri póli­tískri veg­ferð. Haldið var áfram með málið þrátt fyrir að Per­sónu­vernd hafi dæmt gögnin og öflun þeirra ólög­mæt. Ég viðr­aði álit mitt á ferli máls­ins í við­tali við RÚV. 16. jan­úar 2019.“

Í bréfi Bergþórs segir: „Það vekur undrun og óhug ef það að ég leyfi mér að fá dálitla útrás fyrir það sem ég hef gengið í gegnum og tjái mig um málið með þeim hætti sem ég treysti mér til, að því er ég taldi í öruggu umhverfi, sé það notað gegn mér í póli­tískum rétt­ar­höldum.“

Bergþór fer hörðum orðum um siða­nefnd og segir það hryggja sig að nefnd Alþingis skuli ætla sér að hans mati nýta sér glæp til að refsa þolendum brots­ins og um leið þolendum kyn­ferð­is­brots. Hann sagði álit siða­nefndar jafn­framt hafa „gild­is­hlað­inn tón.“

Bergþór vill leysa upp siðanefnd

„Stjórn­mála­menn eru í þeirri stöðu að kveða upp dóm yfir póli­tískum and­stæð­ingum sínum og ein­hvern vegin hefur þeim sem á hafa haldið tek­ist að klúðra málum þannig að öll eðli­leg við­mið hvað rétt­indi þeirra sem mála­rekstur bein­ist að hafa verið látin víkja,“ segir í bréfi Bergþórs.

„Í kjöl­far þeirra tveggja mála sem for­sætis-og siða­nefnd hafa klárað og kannski sér­stak­lega vegna þeirra mála sem for­sætis­nefnd hefur ekki klárað, tel ég rétt að það verði skoðað alvar­lega að leysa upp siða­nefnd Alþingis og þann feril sem nefnd­inni fylgir,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár