Fundað um Klausturmálið í dag – Ólíklegt að niðurstaða fáist

For­sætis­nefnd vinnur nú að því að kom­ast að nið­ur­stöðu í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða. Margir eru áhuga­samir um málið, sam­kvæmt nefnd­ar­manni, en ólík­legt þykir að nið­ur­staða fáist í dag.

Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður í for­sætis­nefnd Alþingis, segir í sam­tali við Kjarnann að nefndin sé að vinna að nið­ur­stöðu í Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða. Þeirri vinnu sé ekki lokið en fundað verður um málið seinna í dag.

„Það eru margir áhuga­samir um þetta en vinnan þarf að hafa sinn gang,“ segir Steinunn Þóra.

Hún segir enn fremur að ólík­legt sé að nið­ur­staða fáist eftir fund­inn í dag en ómögu­lega sé þó að spá fyrir um það fyrir fund­inn. „Við stefnum á að ljúka mál­inu.“

Tóku á móti andsvörum

Siða­nefnd Alþingis kláraði álit sitt um Klaust­ur­málið í síð­ustu viku og sendi í kjöl­farið til for­sætis­nefnd­ar. Þeir sex þing­menn sem náð­ust á upp­töku fengu álitið til umfjöll­unar og höfðu frest fram í lok síð­ustu viku til að skila andsvör­um.

[links]Fram kom á RÚV í gær að nefndin hefði tekið á móti andsvörum Klaust­ur­manna við nið­ur­stöðu siða­nefndar en Steinunn Þóra vildi ekki tjá sig um hverjir það hefðu verið sem brugð­ust við.

Klaust­­ur­­málið fór til siða­­nefndar Alþingis frá for­­sæt­is­­nefnd í lok maí síð­ast­lið­ins. Stein­unn Þóra og Har­aldur Bene­dikts­­son, þing­­­maður Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins, voru kjörin vara­­­for­­­setar for­­­sæt­is­­­nefndar Alþingis í jan­úar síð­­ast­liðnum til þess að fjalla um Klaust­­ur­­málið eftir að Stein­grímur J. Sig­­­fús­­­son, for­­­seti Alþing­is, og allir vara­­­for­­­setar úr hópi þing­­­manna, sögðu sig frá umfjöllun um Klaust­­­ur­­­mál­ið, vegna van­hæfis í lok síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár