Siðanefnd Alþingis hefur sent álit sitt um Klausturmálið til forsætisnefndar

Siða­nefnd Alþingis hefur klárað álit sitt um Klaust­ur­málið svo­kall­aða og sent for­sætis­nefnd. Þeir sex þing­menn sem náð­ust á upp­töku hafa fengið álitið til umfjöll­unar og hafa frest fram í lok þess­arar viku til að skila andsvörum.

Þingmennirnir sex á Klaustur bar
Þing­menn­irnir sex á Klaustur bar Mynd: Samsett mynd

Siða­nefnd Alþingis hefur klárað álit sitt um Klaust­ur­málið svo­kall­aða og sent til for­sætis­nefndar. Þeir sex þing­menn sem náð­ust á upp­töku hafa fengið álitið til umfjöll­unar og hafa frest fram í lok þess­arar viku til að skila andsvörum. For­sætis­nefnd klárar síðan lík­lega málið í næstu viku og verður álitið þá gert opin­bert. Frá þessu er greint í frétt RÚV í dag.

Klaust­ur­málið fór til siða­nefndar Alþingis frá for­sætis­nefnd í lok maí síð­ast­lið­ins. Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, og og Har­aldur Bene­dikts­son, þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, voru kjörin vara­­for­­setar for­­sæt­is­­nefndar Alþingis í jan­úar síð­ast­liðnum til þess að fjalla um Klaust­ur­málið eftir að Stein­grímur J. Sig­­fús­­son, for­­seti Alþing­is, og allir vara­­for­­setar úr hópi þing­­manna, sögðu sig frá umfjöllun um Klaust­­ur­­mál­ið, vegna van­hæfis þann 17. des­em­ber 2019.

[adspot]

Siða­nefnd hefur þegar skilað for­sætis­nefnd öðru áliti vegna Klaust­ur­máls­ins, en það var birt í lok mars síð­ast­lið­ins. Stein­unn Þóra og Har­aldur höfðu óskað eftir álit­inu. Í því sagði meðal ann­ars: „Al­­þing­is­­­menn eru op­in­ber­ar per­­­són­­­ur, sú hátt­­­semi sem um ræðir átti sér stað á op­in­ber­um vett­vangi og teng­ist mál­um sem hafa verið áber­andi í þjóð­­fé­lags­um­­ræð­unni. Þar sem hátt­ernið varðar al­­­menn­ing verður ekki litið á þau at­vik sem hér um ræðir sem einka­­­sam­­tal.“

Var það mat meiri­hluta nefnd­ar­innar að sam­ræð­­urnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þing­­manna Mið­­flokks­ins og Flokks fólks­ins, á þeim tíma sem sam­ræð­­urnar áttu sér stað, falli undir gild­is­­svið siða­reglna þings­ins.

Sex þing­menn á bar

Þriðju­dag­inn 20. nóv­em­ber fóru sex þing­menn – fjórir úr Mið­flokki og tveir úr Flokki fólks­ins – á Klaust­ur bar, í námunda við Alþing­is­hús­ið. Þar sett­ust þeir nið­ur, drukku áfengi og töl­uðu með niðr­andi og meið­andi hætti um sam­starfs­fólk sitt í stjórn­mál­um.

Þeir stærðu sig einnig að póli­tískum hrossa­kaupum með sendi­herra­stöð­ur, þing­menn Mið­flokks­ins reyndu að telja þing­menn Flokks fólks­ins um að ganga til liðs við sig auk þess sem nið­ur­lægj­andi orð eru látin falla um Freyju Har­alds­dótt­ur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann og þekktan bar­áttu­mann fyrir auknum rétt­indum fatl­aðra sem glímir við sjald­gæfan bein­sjúk­dóm, og þekktan sam­kyn­hneigðan tón­list­ar­mann.

Það sem þing­menn­irnir sex, þeir Sig­­­mundur Dav­­íð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­­son og Ólafur Ísleifs­­­son úr Flokki fólks­ins, vissu ekki var að í nálægð við þá sat ein­stak­lingur sem upp­haf­lega kall­aði sig bara „Mar­vin“. Sá tók upp það sem fram fór og sendi á valda fjöl­miðla.

Upp­tök­urnar voru síðar birtar í fjöl­miðlum og „Mar­vin“ steig síðar fram sem Bára Hall­dórs­dótt­ir.

Karl Gauta Hjalta­syni og Ólafi Ísleifs­syni var vísað úr Flokki fólks­ins í kjöl­farið og gengu til liðs við Mið­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár