VR stefn­ir Fjár­mála­eft­ir­lit­inu

Stjórn VR hefur sam­þykkt að stefna stofn­un­inni fyr­ir að viður­kenna ekki lög­mæti ákvörð­unar full­trúa­ráðs VR um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Úr safni

Full­trú­ar VR af­hentu Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur stefnu á hend­ur Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í dag. Stjórn VR sam­þykkti að stefna stofn­un­inni fyr­ir að viður­kenna ekki lög­mæti ákvörð­unar full­trúa­ráðs VR um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna. Mbl.is greinir fyrst frá.

„Mark­miðið er fyrst og fremst að fá þenn­an úr­sk­urð FME dæmd­an ógild­an,“ seg­ir Ragn­ar Þór í sam­tali við mbl.is og vís­ar til þess að FME lít­ur svo á að ákvörðun um aft­ur­köll­un­ina sé ekki gild þar sem hún hafi ekki, að mati stofn­un­ar­inn­ar, verið tek­in af stjórn VR eins og sam­þykkt­ir Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna gera ráð fyr­ir.

[links]Greint var frá því í fréttum í byrjun júlí að FME teldi aft­ur­köllun á til­nefn­ingu stjórn­ar­manna sjóða vega að sjálf­stæði stjórna þeirra. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur beint því með dreifi­bréfi til stjórna líf­eyr­is­sjóða að taka sam­þykktir sínar til skoð­unar með það að leið­ar­ljósi að skýra hvort og þá við hvaða aðstæður sé mögu­legt að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna sem kjörn­ir/til­nefndir hafa ver­ið.

Auk þess kom fram í til­kynn­ing­u frá Fjár­mála­efn­ir­lit­inu í byrjun júlí að sam­kvæmt lögum um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða skuli meðal ann­ars kveða á um hvernig vali stjórn­ar­manna líf­eyr­is­sjóðs­ins og kjör­tíma­bili þeirra skuli hátt­að. Hins vegar væri ekki frekar kveðið á um hvernig að til­nefn­ingu eða kjöri skuli staðið eða hvort aft­ur­köllun sé heim­il.

Enn fremur taldi Fjár­mála­eft­ir­litið að val stjórn­ar­manna færi eftir ákvæðum í sam­þykktum líf­eyr­is­sjóða sem væru þó „al­mennt hljóðar um hvort og þá við hvaða aðstæður umboð stjórn­ar­manna verði aft­ur­kall­að. Óskýrar sam­þykktir hvað þetta varðar gera ferli við val og mögu­lega aft­ur­köllun á umboði stjórn­ar­manna ógagn­sætt.“

Umboð stjórn­ar­manna VR aft­ur­kallað

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­sjóð­i verzl­un­­ar­­manna ­í júní síð­­ast­liðnum var sam­­­­­­þykkt að aft­­­­­­ur­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­sjóðs verzl­un­­ar­­manna og var að auki sam­­­­­­þykkt til­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­menn til­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­ hafði stjórn­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­að­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­mönnum félags­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­­­lækk­­­­­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­­­samn­ing­i. VR­ hefur lýst því yfir að þessi að­­gerð félags­­ins sé full­kom­­lega lög­­­leg.

Ragnar Þór Ing­­ólfs­­son, for­­mað­­ur­ VR, sagði í stöð­u­­færslu á Face­­book að það væri ekk­ert í lögum sem banni sér og stjórn­­ VR­­ að skipta út stjórn­­­ar­­­mönnum í líf­eyr­is­­­­sjóð­­um. Hann benti á að stjórn­­­ar­­­menn í LIVE væru ekki kosnir á aðal­­­fundi heldur skip­aður af þeim aðilum sem að sjóðnum standa. „Ég treysti því fólki, sem full­­trú­a­ráðið valdi, full­kom­­lega til að taka mál­efna­­lega og sjálf­­stæða afstöðu í þeim málum sem kunna að koma á borð stjórn­­­ar­innar fram að þeim tíma.“

Hann sagði jafn­framt lík­­­lega væri það eina ­leiðin til raun­veru­­­legra breyt­inga að sjóð­­­fé­lagar líf­eyr­is­­­­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint. Þannig væri hægt að aftengja atvinn­u­lífið og verka­lýðs­hreyf­­ing­una sem hann sagði að væri í ákveð­inn­i ­mót­­sögn við sjálfa sig sem fjár­­­magns­eig­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár