VR segir aðgerðina fullkomlega löglega

VR hefur svarað áminn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og segir að sú aðgerð félags­ins að draga umboð núver­andi stjórn­ar­for­manna félags­ins í Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna til baka sé full­kom­lega lög­leg.

VR hefur formlega svarað áminningu Fjármálaeftirlitsins um þær kröfur sem gerðar eru til starfsemi lífeyrissjóða sem eftirlitið birti í kjölfar ákvörðunar VR um að draga umboð núverandi stjórnarmanna félagsins í Lífeyrissjóði Verslunarmanna. „Þessa sneið fáum við frá Fjármálaeftirlitinu vegna þeirrar fullkomnlega löglegu aðgerðar okkar að draga umboð núverandi stjórnarmanna okkar í Lífeyrissjóði verzlunarmanna til baka og skipa þar nýtt fólk eins og er okkar hlutverk og ábyrgð,“ segir í svari VR. 

VR situr ekki þögult hjá

Á fundi sem hald­inn var í full­­trú­a­ráði VR í Líf­eyr­is­­sjóði verzlunarmanna í gær­kvöldi var sam­­þykkt að aft­­ur­­kalla umboð stjórn­­­ar­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna og var að auki sam­­þykkt til­­laga um nýja stjórn­­­ar­­menn til bráðabirgða. Áður hafði stjórn VR lýst yfir trún­­að­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­ar­­mönnum félags­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­legra vaxta verð­­tryggðra sjóð­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­lækk­­­anir í nýgerðum kjara­­samn­ing­i.

Fjármálaeftirlitið birti á vef sínum þann 19. júní áminningu í tilefni frétta um að stéttarfélag hefði til skoðunar að afturkalla umboð stjórnarmanna sem félagið hafði þegar tilnefnt í stjórn lífeyrissjóðs. Fjármálaeftirlitið benti því á þær kröfur sem gerðar eru til starfsemi lífeyrissjóða samkvæmt lögum. Í áminningunni segir að Fjármálaeftirlitið telji að stjórnarmönnum lífeyrissjóða sé óheimilt að beita sér fyrir því að lífeyrissjóði séu nýttir í öðrum tilgangi en þeim sem lýst er í lögum um starfsemi lífeyrissjóða.

VR hefur nú svarað þessari áminningu og segir að aðgerð þeirra sé fullkomlega lögleg. Félagið bendir jafnframt á að í nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði hafi verið lögð áhersla á vaxtalækkun. Samkvæmt umfjöllun VR hefur lækkun vaxta á markaði undanfarin misseri ekki skilað sér til neytenda í lægri vöxtum íbúðalána og álag banka og lífeyrissjóða hefur bara aukist.

„Þegar stjórnarmenn VR í lífeyrissjóðnum standa að ákvörðun sem gengur þvert gegn þessari sátt og mikilvægu stefnu VR og hækkar vexti á íbúðalánum, þrátt fyrir að vextir á markaði hafa lækkað, situr VR ekki þögult hjá.“

Í svarinu segir jafnframt að Fjármálaeftirlitið hljóti að eiga að haga sínu eftirliti þannig að hagsmunir neytenda séu varðir. „Hvernig væri nú að Fjármálaeftirlitið sinnti þessum skyldum og gætti hagsmuna lántakenda eins og þeir gæta hagsmuna fjármagnseigenda?“

Krafa um að sjóðirnir starfi með siðferðislegu sjónarmiði

[links]Í stöðufærslu á Facebook skrifar Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, fyrr í dag að nú sé tími til kom­inn að verka­lýðs­hreyf­ingin beiti sér fyrir því að atvinnu­rek­endur fari úr stjórnum líf­eyr­is­sjóða. Í færslunni svarar Ragnar Guð­rúnu Haf­steins­dótt­ur, vara­­for­manni stjórn­­ar Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna (LV) og stjórn­­­ar­­for­manni Lands­­sam­­taka líf­eyr­is­­sjóða, en hún sagði í sam­tali við mbl.is í gær­kvöldi að henni þætti at­b­­urðarásin væg­­ast sagt mjög hrygg­i­­leg. „Verzlunarmannafélag Reykja­vík­­­ur, rétt eins og Sam­tök at­vinn­u­lífs­ins, er bak­land sjóðs­ins og þeir sem eiga að standa vörð um hann en ekki gera aðför að stjórn­­inni eins og þarna var gert að hálfu VR.“

Ragnar segir aftur á móti að lengi hafi verið rök­studdur grunur um skugga­stjórnun af hálfu fyrrum stjórn­ar­manna úr röðum SA og því bros­legt að slíkar ásak­anir skuli koma úr röðum þeirra sem sjóð­irnir hafa raun­veru­lega þjón­að. „Þessi hörðu við­brögð koma ekki á óvart í ljósi þess að krafa okkar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni er að sjóð­irnir starfi með sið­ferð­is­legri sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi og taki hag almenn­ings (allra sjóð­fé­laga) fram yfir taum­lausa græðgi og þjónkun við fjár­mála­kerf­ið,“ skrifar Ragn­ar.

Hann segir að í ljósi þess að engin haldbær rök hafi verið fyrir hækkun sjóðs­ins á breyti­legum vöxtum – heldur hefðu þeir þvert á móti átt að lækka – og að stjórn sjóðs­ins hafi fund­ist vextir vera orðnir of lágir, og hafi þannig breytt um við­mið í miðri á, megi spyrja um rétt­ar­stöðu þeirra sjóð­fé­laga sem eru með lán á breyti­legum vöxtum hjá sjóðn­um.

Sér ekki hvernig Fjármálaeftirlitið geti setið hjá

Guðrún sagði jafnframt í samtali við mbl.is að hún sæi ekki hvernig Fjármálaeftirlitið ætli að sitja hjá hjá þessum málum. „Ég sé ekki hvernig Fjár­­­mála­eft­ir­litið ætl­­ar að sitja hjá í þess­um mál­um, því að þarna er ut­an­að­kom­andi aðili far­inn að vasast í ákvörð­unum stjórn­­ar sem að hann hef­ur ekk­ert vald til að gera. Hann hef­ur ekki boð­vald gagn­vart stjórn­­­ar­­mönn­um sem að hann skip­ar í þessa stjórn, það er al­­veg á hrein­u,“ sagði hún.

Ragnar svarar því í stöðufærslunni og segir: „Ef Guð­rún Haf­steins­dóttir kallar eftir við­brögðum FME vegna þeirra breyt­inga sem við sam­þykktum á stjórn sjóðs­ins, og erum í fullum rétti til, þá mætti hún láta nokkrar af glóru­lausum fjár­fest­ingum sjóðs­ins fylgja með í þeirri beiðni um skoð­un.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár