Framlínufólk sem sýktist við störf sín á rétt á bótum

Þúsundir opin­berra starfs­manna í Banda­ríkj­unum hafa sýkst af COVID-19. Í upp­hafi far­ald­urs var skil­greint hvaða störf væru í fram­lín­unni og þar með hverjir væru í mestri hættu á að smit­ast við störf sín.

Framlínustarfsmaður að störfum í Boston.
Fram­línu­starfs­maður að störfum í Boston. Mynd: EPA

Um 4.000 opin­berir starfs­menn í Banda­ríkj­unum hafa farið fram á bætur í kjöl­far þess að hafa smit­ast af kór­ónu­veirunni í störfum sínum. Einnig hafa ást­vinir 60 rík­is­starfs­manna sem lét­ust vegna COVID-19 farið fram á bætur.

Þetta kemur fram í frétt Washington Post í dag en þar er enn­fremur bent á að fjöld­inn eigi eftir að aukast á næstu vikum sam­kvæmt skýrslu stofn­unar innan vinnu­mála­ráðu­neyt­is­ins sem gerð var um áhrif COVID-19 á rík­is­starfs­menn.

Í fyrra voru greiddir þrír millj­arðar dala í bætur til yfir 200 þús­und opin­berra starfs­manna sem höfðu veikst eða slasast við störf sín og voru óvinnu­færir af þeim sökum. Í upp­hafi far­ald­urs­ins voru opin­berir starfs­menn í fram­línu­störfum, sem þóttu útsett­astir fyrir smiti, skil­greindir. Þeir eru m.a. lög­reglu­menn, sjúkra­flutn­inga­menn og starfs­menn heil­brigð­is­stofn­ana. Það er fólk úr þessum hópum sem hefur ríkan rétt til bóta ef það sýkt­ist í vinn­unni.

Af þeim umsóknum um bætur sem borist hafa vinnu­mála­ráðu­neyt­inu hefur innan við tíu verið synjað.

Í frétt Washington Post segir að gögnum um smit meðal opin­berra starfs­manna í Banda­ríkj­unum sé ekki haldið mið­lægt saman en að ljóst sé að í það minnsta 19 þús­und hafa sýkst við störf sín og tæp­lega 100 hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins. Í varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu einu saman hafa smit greinst hjá yfir 5.000 borg­ara­legum starfs­mönnum frá því í mars. 257 þeirra eru enn á sjúkra­húsi. 32 hafa lát­ist. Um 24 þús­und smit hafa svo greinst meðal banda­rískra her­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár