„Tíma­bært að sjóð­fé­lagar og almenn­ingur standi í lapp­irnar gegn vaxtaokri“

Formaður VR segir það vera löngu orðið tíma­bært að sjóð­fé­lagar og almenn­ingur, í gegnum verka­lýðs­hreyf­ing­una, standi í lapp­irnar gegn vaxta­okri og öðru sið­leysi sem fengið hafi að þríf­ast innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins alltof lengi.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að nú sé tími til kom­inn að verka­lýðs­hreyf­ingin beiti sér fyrir því að atvinnu­rek­endur fari úr stjórnum líf­eyr­is­sjóða. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Á fundi sem hald­inn var í full­trúa­ráði VR í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna í gær­kvöldi var sam­þykkt að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna og var að auki sam­þykkt til­laga um nýja stjórn­ar­menn til bráða­birgða.

Áður hafði stjórn VR lýst yfir trún­að­ar­bresti gagn­vart stjórn­ar­mönnum félags­ins hjá sjóðnum vegna sam­þykktar stjórnar hans um hækkun breyti­legra vaxta verð­tryggðra sjóð­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­lækk­anir í nýgerðum kjara­samn­ing­i.

Telur VR eiga að standa vörð um sjóðinn en ekki gera aðför að stjórn

[links]Ragnar svarar í færsl­unni Guðrúnu Haf­steins­dóttur, vara­for­manni stjórn­ar Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna (LV) og stjórn­ar­for­manni Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, en hún sagði í sam­tali við mbl.is í gær­kvöldi að henni þætti at­b­urðarásin væg­ast sagt mjög hryggi­leg. „Verzl­un­ar­manna­fé­lag Reykja­vík­ur, rétt eins og Sam­tök at­vinnu­lífs­ins, er bak­land sjóðs­ins og þeir sem eiga að standa vörð um hann en ekki gera aðför að stjórn­inni eins og þarna var gert að hálfu VR.“

„Þau af­skipti sem að sér­stak­lega for­maður stjórn­ar VR hef­ur haft af stjórn LV eru með öllu óá­sætt­an­leg og gagn­rýni ég það harka­lega. Ég vil minna á það að all­ir þeir sem setj­ast í stjórn­ir fé­laga, hvort sem það eru fé­laga­sam­tök eða skráð hluta­fé­lög eða önn­ur, lúta öll umboðs­skyldu við hlut­hafa sem lýt­ur að því að við erum öll sjálf­stæð í okk­ar störf­um og við meg­um ekki und­ir nokkr­um kring­um­stæðum hlaupa á eft­ir duttl­ung­um fólks úti í bæ sem vill ráðskast með þær niður­stöður sem koma frá þess­um stjórn­um,“ sagði Guðrún við mbl.is.

Hún bætti því við að Ragn­ar Þór hefði ýjað margoft að því að ef að þetta og hitt yrði ekki gert, þá myndi hann skipta út stjórn­ar­mönn­um í líf­eyr­is­sjóðnum og nú væri það að raun­ger­ast. „Ég sé ekki hvernig Fjár­mála­eft­ir­litið ætl­ar að sitja hjá í þess­um mál­um, því að þarna er ut­anað­kom­andi aðili far­inn að vasast í ákvörð­unum stjórn­ar sem að hann hef­ur ekk­ert vald til að gera. Hann hef­ur ekki boð­vald gagn­vart stjórn­ar­mönn­um sem að hann skip­ar í þessa stjórn, það er al­veg á hreinu,“ sagði hún.

Skuggastjórnun af hálfu fyrrum stjórnarmanna

Ragnar segir aftur á móti að lengi hafi verið rök­studdur grunur um skugga­stjórnun af hálfu fyrrum stjórn­ar­manna úr röðum SA og því bros­legt að slíkar ásak­anir skuli koma úr röðum þeirra sem sjóð­irnir hafa raun­veru­lega þjónað.

„Þessi hörðu við­brögð koma ekki á óvart í ljósi þess að krafa okkar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni er að sjóð­irnir starfi með sið­ferð­is­legri sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi og taki hag almenn­ings (allra sjóð­fé­laga) fram­yfir taum­lausa græðgi og þjónkun við fjár­mála­kerfið,“ skrifar Ragnar.

Hann segir að í ljósi þess að engin hald­bær rök hafi verið fyrir hækkun sjóðs­ins á breyti­legum vöxtum – heldur hefðu þeir þvert á móti átt að lækka – og að stjórn sjóðs­ins hafi fund­ist vextir vera orðnir of lágir, og hafi þannig breytt um við­mið í miðri á, megi spyrja um rétt­ar­stöðu þeirra sjóð­fé­laga sem eru með lán á breyti­legum vöxtum hjá sjóðnum.

Ekki í fyrsta skipti sem SA vilja hafa áhrif á val verkalýðshreyfingarinnar

„Guðrún Haf­steins­dóttir bítur svo haus­inn af skömminni með því að kalla eftir við­brögðum FME vegna breyt­inga sem við gerðum á full­trúum okkar í stjórn LIVE. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Samtök atvinnu­lífs­ins vilja ráða eða hafa áhrif á það hvaða full­trúa verka­lýðs­hreyf­ingin skipar á móti þeim í stjórn. Af hverju ætli það sé?

Ef Guðrún Haf­steins­dóttir kallar eftir við­brögðum FME vegna þeirra breyt­inga sem við sam­þykktum á stjórn sjóðs­ins, og erum í fullum rétti til, þá mætti hún láta nokkrar af glóru­lausum fjár­fest­ingum sjóðs­ins fylgja með í þeirri beiðni um skoðun,“ skrifar Ragnar.

Hann segir það vera löngu orðið tíma­bært að sjóð­fé­lagar og almenn­ingur, í gegnum verka­lýðs­hreyf­ing­una, standi í lapp­irnar gegn vaxta­okri og öðru sið­leysi sem fengið hafi að þríf­ast innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins alltof lengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár