ASÍ: Stuðningi enn á ný beint að fyrirtækjum en ekki fólki

Alþýðu­sam­band Íslands hefur lýst yfir von­brigðum með nýjar til­lögur stjórn­valda um efna­hags­að­gerðir til að bregð­ast við áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og segir stuðn­ingi beint að fyr­ir­tækjum en ekki fólki.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands hefur lýst yfir von­brigðum með nýjar til­lögur stjórn­valda um efna­hags­að­gerðir til að bregð­ast við áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í til­kynn­ingu sem barst frá sam­band­inu síð­degis segir að til­lög­urnar séu „ekki í takti við áherslur ASÍ um að aðgerð­irnar eigi að tryggja afkomu­ör­yggi allra og vera í þágu fólks, ekki fjár­magns.“

„Enn á ný beina stjórn­völd stuðn­ingi sínum ekki að fólki heldur að fyr­ir­tækjum sem eftir óljósum leik­reglum geta sótt sér fjár­muni í vasa almenn­ings, óháð því hvort þau við­halda störfum, fara eftir kjara­samn­ingum eða standa skil á fram­lagi sínu til sam­fé­lags­ins. Það er lyk­il­at­riði við end­ur­reisn efna­hags­lífs­ins að tekjur fólks séu tryggðar, atvinnu­leys­is­bætur og önnur fram­færsla sé þannig að fólk geti lifað sóma­sam­legu lífi og stutt við þjón­ustu og fram­leiðslu með kaup­mætti sínum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

ASÍ sakar rík­is­stjórn­ina einnig um sam­ráðs­leysi við verka­lýðs­hreyf­ing­una.

„For­svars­fólk rík­is­stjórn­ar­innar hefur kosið að þróa til­lögur til aðgerða við for­dæma­lausum aðstæðum einkum í sam­tali við sjálft sig. Reyndin er hins vegar sú að þekk­ingin og reynslan liggur hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni og aðeins með sam­tali og sam­vinnu getum við búið til lausnir sem henta vanda af þeirri stærð­argráðu sem við nú stöndum frammi fyrir. Krafa okkar um sam­ráð snýr að þessu,“ er haft eftir Drífu Snædal for­seta ASÍ í til­kynn­ing­unni

ASÍ kallar eftir ítar­legri útfærslu á aðgerð­unum „svo hægt sé að meta hvort þær nái fram­settum mark­miðum um varnir, vernd og við­spyrnu fyrir Ísland.“

Í til­kynn­ingu ASÍ eru líka gerðar „alvar­legar athuga­semdir“ við það að ekki sé leit­ast við að tryggja afkomu öryggi þeirra hópa sem „fallið hafi á milli skips og bryggju“ í fyrri aðgerðum stjórn­valda. Þarna á ASÍ við ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, óléttar konur og for­eldra sem misst hafa úr vinnu vegna rask­ana á skóla­starfi barna þeirra.

Alþýðu­sam­bandið vill svo einnig að frek­ari kvaðir verði settar á fyr­ir­tæki sem njóta fyr­ir­greiðslu frá rík­inu í gegnum storm­inn.

„Þótt komið sé til móts við lítil fyr­ir­tæki, sem er vel, er sá stuðn­ingur ekki skil­yrtur við að störfum sé við­haldið. Ekki liggur fyrir útfærsla á til­lögum um skatta­af­slætti í formi frest­unar á skatt­greiðslum til fyr­ir­tækja en miðað við þær upp­lýs­ingar sem fram eru komnar eru engar kvaðir settar á fyr­ir­tæki sem njóta slíkrar fyr­ir­greiðslu. ASÍ áréttar fyrri áherslur sínar um að stuðn­ingur við fyr­ir­tæki skuli skil­yrtur því að störfum sé við­haldið og grund­vall­ar­rétt­indi launa­fólks séu virt. Fyr­ir­tæki eiga að sýna fram á að þau hafi nýtt eigin bjargir áður en þau sækja í sam­eig­in­lega sjóði og fyr­ir­tæki sem svindla á úrræðum stjórn­valda eiga að sæta við­ur­lögum,“ segir í til­kynn­ingu sam­bands­ins.

Jákvæðir punktar

ASÍ sér nokkra jákvæða punkta í til­lög­unum sem kynntar voru á blaða­manna­fundi sídð­egi í dag og segir þannig að til­lögur sem lúta sér­stak­lega að náms­mönnum séu mik­il­vægar til að tryggja afkomu­ör­yggi þeirra.

Alþýðu­sam­bandið seg­ist einnig styðja til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar um stuðn­ing við ein­yrkja og um atvinnu­upp­bygg­ingu í gegnum inn­lenda mat­væla­fram­leiðslu, nýsköpun, rann­sóknir og listir og menn­ingu, en segja þessar til­lögur um atvinnu­sköpun þó „fjarri því að mæta þeim mikla vanda sem blasir við á vinnu­mark­aði.

„Álags­greiðslur til fram­línu­starfs­fólks innan heil­brigð­is­kerf­is­ins koma að ein­hverju leyti til móts við þann hóp fólks sem hefur lagt líf sitt í hættu í bar­átt­unni við Covid-19. Verka­lýðs­hreyf­ingin á þó að koma að útfærslu slíkra aðgerða og hún á ekki að vera ein­göngu á hendi stjórn­enda ein­staka heil­brigði­stofn­ana. Þá telur ASÍ áherslur á félags­legar aðgerðir – sem lúta meðal ann­ars að fötl­uðu fólki og fjöl­skyldum fatl­aðra barna, börnum af erlendum upp­runa og öldruðum – vera jákvæðar og þær geti orðið til þess að milda lang­tíma­á­hrif krepp­unnar. Skortur á útfærslu gerir erfitt að meta umfang og áhrif aðgerð­anna,“ segir í til­kynn­ingu sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár