Þórólfur telur mikilvægt að tryggja landamærin betur

Sótt­varna­læknir telur mik­il­vægt að tryggja landa­mærin betur áður en hægt verði að slaka meira á inn­an­lands. Land­læknir vonar að per­sónu­bundnar sótt­varnir séu komnar til að vera. Góðar fréttir hafa verið að ber­ast af dreif­ingu bólu­efna.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á fund­inum í dag. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur látið Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra fá til­lögur að breyttum sótt­varna­að­gerðum á landa­mærum og býst við því að ráð­herra kynni reglu­gerð á næstu dögum.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag sagði Þórólfur að hann hefði meðal ann­ars lagt til að gerð yrði krafa um nei­kvætt próf áður en fólk kæmi í flug til Íslands, að verk­ferlar á landa­mærum yrðu lag­aðir svo auð­veld­ara yrði að sann­reyna hvort fólk væri að gefa yfir­völdum réttar upp­lýs­ingar og einnig að athugað yrði hvort hægt væri að skylda fólk til þess að dvelja í far­sótta­húsum eftir kom­una til lands­ins.

Sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að í kjöl­far þess að aðgerðir á landa­mærum yrðu hertar, til að lág­marka hætt­una á því að veiran leki inn í landið, gæti verið mögu­legt að slaka meira á hér inn­an­lands.

Þó þyrfti að koma í ljós hvernig áhrifin af síð­ustu til­slök­unum inn­an­lands yrðu fyrst. Of snemmt væri að segja til um hvort til­slak­an­irnar fyrr í mán­uð­inum gætu haft bakslag í för með sér.

Góðar fréttir af dreifingu bóluefna

Fram kom í máli Þórólfs að góðar fréttir hefðu borist um bólu­setn­ingar í síð­ustu viku. Ísland væri að fara að fá meira magn bólu­efna hraðar en talið hefði verið. Sótt­varna­læknir sagði að um 70 þús­und skammtar myndu koma til lands­ins í lok mars, en inni í þeirri tölu væri ekki magn bólu­efna frá AstraZeneca.

[adspot]

„Ég held að við getum verið von­góð um að við séum að fara að fá meira af bólu­efnum,“ sagði Þórólfur og vís­aði til nýrra frétta frá Danmörku um að Danir teldu sig verða búna að „bólu­setja alla í sumar“. Þar í landi er sagt frá því að nú megi búast við því að hægt verði að bólu­setja alla sem þess óska fyrir lok júní­mán­aðar.

Þórólfur segir að það sé enn erfitt að segja til um hversu hratt bólu­efni komi hingað til lands, en það muni ráð­ast af dreif­ing­ar­á­ætl­unum sem muni koma frá fyr­ir­tækj­unum.

16 prósent minna af sýklalyfjum ávísað í fyrra

Alma Möller land­læknir sagði á fund­inum að lands­menn þyrftu áfram að halda vöku sinni, við­halda per­sónu­bundnum sótt­vörnum og leita í sýna­töku ef minnti grunur vaknar um ein­kenni COVID-19. Hún minnti á upp­haf þriðju bylgj­unnar, þegar veiran var „undir rad­arnum“ í nokkrar vikur áður en hún braust fram af krafti.

Hún minnti á að per­sónu­bundnar sótt­varnir væru ekki bara góðar í bar­átt­unni við veiruna, heldur líka gegn öðrum umgangspestum, veiru­sýk­ingum og bakt­er­íu­sýk­ingum. Fram kom í máli Ölmu að sýkla­lyfja­á­vís­unum hefði fækkað til muna á síð­asta ári, eða um 16 pró­sent frá fyrra ári heilt yfir og hlut­falls­lega meira hjá börnum.

Þetta sagði Alma vera mjög mik­il­vægt, þar sem sýk­ingar valdi þján­ingum, auki álag á heil­brigð­is­kerfið og auki á þann vanda sem mann­kynið glímir við og mun glíma við til fram­tíðar, sýkla­lyfja­ó­næmi.

Land­læknir vonar því að per­sónu­bundnar sótt­varnir séu komnar til að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár